Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1959, Síða 23

Samvinnan - 01.01.1959, Síða 23
guðfræðiprófessor sagði eitt sinn, að ef. Matthías Jochumsson hefði á miðjum aldri fengið tækifæri til að fara til Gyð- ingalands og dvelja þar í halft ár, mundi hann alla þá stund hafa verið gagntek- inn af trúarlegri og sögulegri hrifningu, Iíkt og þegar hann orti sín andríku kvæði um sögufræga atburði heinia á Islandi. Matthías fékk ekki þá aðstöðu. en dóm- ur Magnúsar um þvílíka ferð, til lands- ins helga, var óhrekjanlegur. Nú hentar ekki öllum skáldum að fara til Gyðinga- lands, þó að það hefði átt við föður þjóðsöngsins íslenzka. Hvert skáld og listamaður þurfa að eignast sína paradís til að fá vakningu og hressingu með til- breytni í samræmi við gáfur og lista- stefnu. Guðmunclur Ingi. Nú vil ég í lok þessa máls snúa mér til bænda landsins, menntamálaráðs og þeirra sem veita heiðursverðlaun1) til bænda á hvað ég mundi gera til að mæta Guðmundi Inga á rniðri leið í samræmi við dómsorð Magnúsar prófessors um Matthías Jochumsson. Ef ég ætti sæti í menntamálaráði eða þeirri nefnd er út- hlutar verðlaunum skálda og listamanna, myndi ég leggja til að hann fengi ár- lega sómasamleg heiðurslaun, sem væru skálda og listamannalaun af almannafé og miðuð við það að hann er snjallt og frumlegt skáld um Ijóðræn málefni og málsvari og höfuðprestur sveitanna og fólksins, sem býr i dölum og við strendur landsins. Ég vildi auk þess mega láta Guðmund Inga fá ferðafé á fimrn ára x) Greinin er skrifuð áður en Guðmundur Ingi fékk bókmenntaverðlaun Ríkisútvarpsins. fresti, nægilegt til að vera hálft ár eða heilt frá sínu heimili, þar sem hann kýs helzt að dvelja, annaðhvort í landinu sjálfu eða utanlands. Ef ég væri einn af hinum mörgu snjöllu mönnurn, sem stýra félagsmálum byggðanna, mundi ég enn- fremur óska eftir við Norðra að gefa út heitustu og snjöllustu landbúnaðarljóð Guðmundar Inga í sérstöku úrvali og dreifa því um byggðir landsins. líkt og þegar Ragnar í Smára selur úrvalsljóð sinna skálda fyrir þá upphæð, sem svar- ar burðargjaldi fvrir bréf til útlanda. Þessi úrvalsljóð ættu að verða eign allra efnilegra ungmenna í sveitum. Þau ættu að vera numin í búnaðarskólum og sung- in á samkomum bænda, þar sem ljóð þættu viðeigandi dagskrárefni. Ef ég væri svo heppinn að eiga sæti í stjórn þeirra nefnda, sem ráða stórum bænda- fundum, mundi ég bjóða Guðmundi Inga að koma þangað sem heiðursgestur, án þess að því fylgdi nokkur skylda urn að lesa þar ljóð, eða flytja þar erindi. En slík kynning við bændur og þeirra mál, mvndi að minni hyggju verða honum þvílík hressing, sem guðfræðiprófessorn- um þótti líklegt að dvöl í Gyðingalandi hefði verið séra Matthíasi Jochumssyni. I Sóldögg hinni nýútkomnu, er eitt af mörgum fögrum kvæðum sýnilega ort eftir að Guðmundur Ingi dvaldi á bænda- hátíð á fögrum stað, þar sem hugsjón hans um hlutverk landbúnaðarins hefur fengið mikla viðurkenningu. I þessu kvæði lýsir hann breyttum óræktarmó- um, grýttri jörð í grjótlendri sveit, sem flagi og síðar verður að akurlendi. Þar var auðnin grædd með vélaorku og nú- tímatækni. Raforka úr bæjarlæknum dælir nokkurskonar Nílarvatni yfir sandauðnir, svo að þær vefjast í grasi. Fossinn og vélarnar skapa gróður og líf. Brekkan bak við bæinn bóndans er orð- in víðáttumikið og fagurt skógarland, en hver græðikvistur fluttur að úr fjar- lægð. Ilér mætir skáldinu yrkisefni, sem setur anda hans í hreyfingu. Kvæði hans um þetta sérstaka Grettistak í sveitun- um mun lifa löngu eftir að skáldið og kynslóðin sem græddi skóginn og rækt- aði sandflákana, er gengin til hinztu hvíldar. Ég býzt að vísu ekki við að fá valdasæti í neinni af þeim nefndum, sem ráða þessum málum, enda er þar nægur og góður liðskostur til að ráða fram úr málum án aðstoðar. En samt vil ég hvetja forystumenn byggðanna til at- hafna í þessu efni og ungt fólk í byggð- um landsins til að eignast Ijóð Guð- mundar Inga. Ekki til að stvðja Norðra, þó að það megi vel gera, heldur til að flytja nokkuð af sólargeislum, sólbráð og sóldögg Guðmundar Inga inn í sveita- lífið, sem andleg fjörefni á erfiðum tím- um. Allir sem hugsa til séra ðlatthíasar munu nú harma að hann var uppi á þeim tímum, þegar stakkur landsmanna var svo þröngur, að engum kom til hug- ar að gefa þá skáldinu tækifæri til að anda að sér hressandi lofti á helgum stöðum landsins helga. Nú eru aðrar að- stæður hér á landi. Bændastéttin er stórhuga, bæði um málefni heimilanna, þar sem mikið er aðhafst og þá ekki síð- ur í höfuðstaðnum, þar sem fyrirtæki bænda er að reisa eina veglegustu bygg- ingu borgarinnar sem heimili fyrir stjórn bændamálanna. Jafnframt þessum stór- virkjum rnega leiðtogar bænda vel muna það, að frægð íslenzkra bænda í þúsund ár hefur að hálfu leyti eða vel það, verið bundið við andleg afrek stéttar- innar, og sú hlið sveitamenningarinnnar má ekki koðna niður né dofna, þar sem efnalegar framkvæmdir eru nú á rnörg- um sviðum áberandi og sögulegar, svo að af ber í samanburði við þróunarskil- yrði fyrri alda. Jónas Jónsson frá Hriflu. — Jón hefur orðið var. — Hvað kemur yður til að halda, að ég hafi ekki átt þessa kórónu? SAMVINNAN 19

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.