Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1959, Page 35

Samvinnan - 01.01.1959, Page 35
Molyspeed er upplausn af Molybdenum Disulpide og smurolíu SAE 30, ætlaðri til að blanda í bifreiðaolíuna. Þunn Molybdenum himna sezt á slitfleti vélarinnar, og þar sem þessi himna þolir hærri þrýsting (7000 kg pr. cm2) og hærri hita (400° C) heldur en smurningsolía, er Molybdenum himnan vélinni hin mesta vörn undir erfiðum kringumstæðum, jafnframt því sem hún auðveldar mjög ræsingu og gang við venjulegar aðstæður. Fyrir bifreiðarstjórann þýðir notkun Molyspeed: Meiri viðbragðsflýti. — Létt- ari ræsingu. — Jafnari gang vélarinnar. — Vörn gegn rispum í legum. — Aukið afl. — Minni eyðslu. — Lengri vélaendingu. Tilraunir, sem gerðar hafa verið við fullt álag á benzínvél, sýndu allt að 20% meiri orkuafköst og 10% minni benzíneyðslu, þegar smurningsolían var blönduð Molyspeed heldur en þegar fyrsta flokks smurningsolía var notuð án Molyspeed. Molyspeed er afgreitt í 250 gr. dósum og er 1 dós ætluð í 4—5 lítra af smurolíu. Ráðlegt er að láta vélina ganga 5—10 mínútur eftir að Molyspeed hefur verið látið i smurningsolíuna, til þess að Molybdenum efnið nái að setjast á alla slitfleti vél- arinnar og mynda þar himnu. Til að viðhalda þessari himnu á slitflötum vélarinnar nægir að blanda Molyspeed í smurolíuna í annaðhvort sinn, sem skipt er um smurolíu. Molyspeed blandast við allar gerðir smurolíu, þar með taldar efnabætt- ar olíur og fjölþykktar olíur. KEILDSOLUBIRGÐIR: F J A L A R H. F. Skólavörðustíg 3 — Símar 17975 og 17976 — Reykjavík ( ! ! ! ( Orðsending til bænda! Þeir bændur, sem ætla að kaupa dráttarvélar eða önnur tæki til Iand- búnaðarstarfa á komanda vori, ættu ekki að draga að senda pantanir sínar. Afgreiðslutími verksmiðjanna er frá 3—6 mánuðum, og er því mikil- vægt að vita með nægjum fyrirvara, hver þörf bænda er fyrir hin ýmsu tæki, til þess að við getum sem fyrst áætlað gjaldeyrisþörfina og komið um- sóknum í hendur gjaldeyrisyfirvaldanna sem allra fyrst. Væntum við þess, að bændur komi óskum sínum á framfæri við kaup- félag sitt eða beint til okkar. SAMVINNAN 31

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.