Samvinnan - 01.03.1960, Page 20
Um kvikmyndir
AMERÍSKUR FRUMHERJI: GRIFFITH
Úr myndinni Intolcrance (Umburðarleysi), tekinni 1916.
Stjórnandi D. W. Griffith.
Atriði úr myndinni The Birth of a Nation (Fæðing þjóðar), tekinni 1915.
Stjórnandi D. W. Griffith.
Hinn snjalli franski kvikmyndahöfundur René Clair
sagði eitt sinn frá kvöldi í Lundúnum. Hann var á gangi
í kínverska hverfinu með nokkrum enskum vinum sín-
um, þeir voru að sýna honum þetta einkennilega hverfi
þar sem fátæktin birtist í svo margvíslegum döprum
myndum í gufuslæðum þokunnar sem svam um strætin
þröng milli skældra gamalla húsa en ljósið virðist vaxa
og þverra, sækja fram og þokast frá líkt og reyr í stormi,
eða óbugandi lax í straumi sem hann fær ekki sigrað.
Hann segir frá því að þetta kvöld hafi þráfalt leitað á
hugann þættir úr kvikmyndum hins mikla ameríska
frumherja D. W. Griffith sem var talinn einn snjallastur
kvikmyndahöfundur á árunum frá 1914 fram yfir 1920.
Það sem bar fyrir augun í Kínahverfinu í furðuveröld
Lundúnaþokunnar minnti René Clair svo mikið á þenn-
an mann sem hann hafði dáð mjög að fyrst hélt hann sig
vera að dreyma þegar hann sá í krá einni það kvöld
mann standa einan við skenkiborðið og þjóra viský ótrú-
lega líkan myndum af sjálfum Griffith. Gat hugsunin
hafa magnað fram þá mynd? Clair reis upp frá borði vina
sinna og spurði þennan einþambara næturinnar hvort
hann væri Griffith. Jú, sá var maðurinn. Hann þáði að
setjast við borðið hinna, drakk með þeim viský, hló hátt
mörgum sinnum, segir Clair: líkt og hann hygðist
sanna að hann gæti ennþá hlegið, fór með kafla eftir
Shakespeare, stóð svo skyndilega upp, fór, hvarf í nótt-
ina. En Clair hélt áfram að hugsa um þennan mann sem
ferðaðist einn, og hafði eitt sinn verið frægasti kvik-
myndahöfundur heimsins, — nú var hann að koma frá
Bandaríkjunum frá samningaumræðum vegna kvik-
myndar sem fóru út um þúfur.
Griffith var einn helztu brautryðjenda og byltingai-
manna í kvikmyndalistinni. Hann fæddist 1875 í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna, vann ungur fyrir sér sem blaða-
maður, slökkviliðsmaður, verkamaður; stundum var
hann skáld, flakkari, leikari unz hann hafnaði í kvik-
myndaiðnaðinum unga og var farinn að stjórna kvik-
myndum árið 1908. Hann gerði mikinn fjölda kvik-
mynda á næstu árum og varð víðfrægur; en árið 1915
varð hann frægastur allra kvikmyndahöfunda með stór-
verki sínu: Birth of a Nation (Fæðing þjóðar), kvikmynd
um þrælastríðið. Hún olli byltingu í kvikmyndagerð, þar
komu nýjar aðferðir til sögunnar sem höfðu djúp áhrif
á hina snjöllustu kvikmyndahöfunda um alllangt skeið,
þar á meðal þá sænsku snillinga sem rætt var um í síð-
asta þætti: Sjöström og Stiller, og Sovéthöfundarnir
Eisenstein og Pudovkin sem lyftu kvikmyndinni í æðra
listrænt veldi fremur en nokkrir aðrir þökkuðu engum
meira en Griffith fyrir frjó áhrif í myndbyggingartækni
sem blómstraði í hinu fræga montage Sovétríkjanna. Að
þessu montage komum við síðar í þessum þáttum.
20 SAMVINNAN