Samvinnan - 01.03.1960, Síða 30
Auk þess að vera
nauðsynlegt við bakstur,
er ROYAL lyftiduft ágætt við aðra matar-
gerð, t. d. við eftirfarandi:
Egglakökur (ommelettur)
verða léttarl ef þér notið
teskeið (■lóttfulla) ai
ROYAL lyftiduiti ó móti
hverlu eggL
Næst er þér steykið fisk
blandið ROYAL lyftidufti
saman við raspið. Hið
steykta verður betra og
stökkara. Hæfilegt er að
nota ‘/2 tsk. (sléttiulla) af
ROYAL lyftidufti á móti
30 gr. ai raspi.
Kartöflustappan verður
loftmeiri og betri ef 2 tsk.
(sléttfullar) af ROYAL
lyftidufti eru hrærðar
•aracm við moðalakammt
Marensbotnar og annað gert
úr eggjahvitum og sykri verð-
ur fíngerðara ef ROYAL lyfti-
duft er notað. þannig: A móti 2
mtsk. (sléttf.) af sykri og einni
eggjahvitu komi Yj tsk. (slóttf.)
af ROYAL lyfUduítL
Royal lyftiduft er
heimsþekkt gæðavara sem reynslan
hefur sýnt að ætið má treysta.
NOTIÐ
Royal
KÖLDU
/\oual
°7 al búðingarnir
ERU BRAGÐGÓÐIR
Sagan eilífa
Framhald a£ bls. 27.
hann. „Húsið að tarna er eitt-
hvað annað en eyjan mín.
Hann leit aftur á öldunginn
og gróf fingurna í hári sínu.
„Þess vegna er ég svo hár-
prúður,“ sagði hann. „Ég ætl-
aði að láta klippa mig í kvöld.
Hinir tveir liöfðu lofað að
fylgja mér til rakarans, en sáu
sig um hönd og ákváðu þess
í stað að fara með mig á
kvennafar. En sem betur fór,
komst ég ekki svo langt, því
að þá hefði ég auðvitað ekki
hitt yður. Ég mun fljótlega
venjast því á nýjan leik að
tala við fólk, enda er ég eng-
an veginn eins heimskur og ég
lít út fyrir að vera.“
„En ánægjulegt hlýtur það að
vera,“ sagði mr. Clay, að
mestu við sjálfan sig, „mjög á-
nægjulegt, get ég ímyndað
mér, að dvelja á eyðiey, þar
sem hægt er að lifa óttalaus
við hverskyns truflun eða ó-
næði.“
„Að mörgu leyti var það gott
og blessað," sagði pilturinn
rólega. „Ég tíndi egg á
ströndinni og veiddi fisk. Ég
hafði hnífinn minn, góðan
hníf, og skar með honum
merki í börkinn á stóru tré,
í hvert skipti og ég sá votta
fyrir nýju tungli. Ég skar í
börkinn níu sinnum, en
gleymdi því síðan, og „Bar-
racuda" kom ekki fyrr en
tveimur eða þremur tungl-
um síðar.“
„Þú ert ungur,“ sagði mr.
Clay, „og hefur því væntan-
lega glaðst þegar skipið konr
og flutti þig aftur til manna.“
„Jú, ég var mjög ánægður
með það,“ sagði pilturinn,
„sökum ákveðinnar ástæðu.
En að henni slepptri hafði ég
vanist eynni, og gat vel hugs-
að mér að dveljast þar alla
ævi. Eins og ég sagði yður, er
eyjan ekki þögul. Ég hlustaði
á ölduniðinn allar nætur, og
þegar vindaði, heyrði ég þyt-
inn í storminum öllu megin
við mig. Ég heyrði þegar sjó-
fuglarnir vöknuðu af nætur-
svefni sínum. Einu sinni
rigndi í heilan mánuð og í
annað skipti í fjórtán daga. I
bæði skiptin gekk á með
þrumum og eldingum. Regn-
ið flæddi syngjandi niður frá
himninum, og þrumurnar
virtust mæla mannsmáli, með
rödd gamla skipstjórans mins.
Ég varð furðu lostinn, því ég
hafði ekki heyrt rödd mánuð-
um saman.“
„Voru næturnar langar?“
spurði mr. Clay.
„Álíka og dagarnir," svaraði
sjómaðurinn. „Dagur rann,
svo dimmdi af nóttu, og dag-
aði á ný. Öll dægur voru jafn-
löng. Þannig er það ekki í
mínu föðurlandi, þar sem
næturnar eru stuttar á sumr-
in en langar á veturna.“
„Hvað hugleiddir þú um næt-
ur?“ spurði mr. Clay.
MATREIÐSLAN AUÐVELD
Fjórar bragðtegundir:
Súlckulaði
Vanillu
Karamellu
Hindberja
Tíl sölu 1 flestum
matvöru verzlun um
landsins.
Kvikmyndir
Framhald af bls. 21.
voru stundum skelkaðir við hinar nýstárlegu hugmyndir
og byltingarkenndu aðferðir Griffiths með því að segja
þeim að hann færi alveg eins að og Dickens að segja
sögu, munurinn væri sá einn að Dickens hefði notað orð
en hann notaði myndir. Og það var áreiðanlega margt
líkt með þessurn tveim höfundunr sem sigruðu samtíma-
menn sína með óviðjafnanlegu samblandi af barnaskap
og snilli og báðir náðu hylli og aðdáun sem við undr-
umst nú áður en við förurn að athuga málið.
1948 hvarf Griffith úr þögn og gleymsku þessa lífs út
fyrir hinn kínverska múr sölnaðra blóma og hvarf út í
þoku dauðans.
30 SAMVINNAN