Neisti - 25.03.1982, Side 2

Neisti - 25.03.1982, Side 2
NEISTI NEISTI: Útgefandi Fylking byltingarsinnaðra kommúnista - stuðn- ingsdeild Fjórða Alþjóðasambandsins. Ábyrgðarmaður: Birna Þóröardóttir. Merktar greinar túlka ekki endilega stefnu Fylkingarinnar. Aðsetur: Laugavegur 53A, sími 17513 LEiÐARI GEGNNATÚ Þrítugasta mars n.k. verða 33 ár liðin frá því að Alþingi samþykkti inngöngu íslands í Atlandshafsbandalagið, eða Nató. Nató var stofnað til að vera hernaðarlegt samtrygg- ingarhagkerfi heimsvaldasinna gegn nýlendubyltingunni, verkalýðshreyfingu aðildarlandanna og Sovétríkjunum. A þessum árum hafði kinverska byltingin slegið ugg i brjóst heimsvaldasinna, auk þess sem þeir óttuðust sósialiska byltingu verkafólks í Evrópulöndunum eftir stríðið, sérstak- lega í Frakklandi og Grikklandi. Nú þrjátíu og þrem árum síðar er hlutverk Nató enn hið sama. Natóherirnir eru uppteknir við að bæla niður frelsis- baráttu alþýðufólks. í Natórikinu Tyrklandi er herinn við völd og beitir pyntingum og aftökum gegn pólitískum and- stæðingum sínum og gengur á milli bols og höfuðs á verka- lýðshreyfingunni. A Norður-írlandi ver breski herinn mis- rétti og kúgun og fótumtreður sjálfsákvörðunarrétt írsku þjóðarinnar. En sem fyrr er það þó forysturikið, Banda- ríkin, sem eru virkust á þessum vettvangi. I El Salvador og reyndar í Mið-Ameríku i heíld, stendur bandariska heims- valdastefnan á bak við kaldrifjaða útrýmingarherferð gegn alþýðu manna. Það er kominn tími til að við herðum róðurinn fyrir úrsögn íslands úr þessu blóði drifna bandalagi. VÖRN KAUPMÁTTAR Frá fyrsta mars fjölgar krónunum í launaumslögum launa- fólks um 7.51%. Þessi kauphækkun á að vera bætur fyrir verðhækkanir á tímabilinu frá 1. nóvember á siðasta ári til 1. febrúar s.l. Sú verðhækkun var 12.72%. Ríkisstjórnin «eyddi» 3% verðhækkunum með niðurgreiðslum, en Úlafs- lögin klipu heil 2.21% af verðbólguvísitölunni. Þessar staðreyndir sýna að grunnkaupshækkun frá í haust er að mestu horfin. Þessar staðreyndir sýna einnig hversu ófullkomið núverandi vísutölukerfi er. Verkafólk fær fyrst í mars bætur fyrir verðhækkanir, sem urðu kannski í nóvember. Ekki er nóg með að bæturnar komi seint, heldur eru þær skertar þá loksins þær koma. Siðan vill ríkisstjórnin hefja viðræður við verkalýðshreyfinguna um frekari skerðingu vísitölukerfis launa! Fylkingin mótmælir harðlega vísitöluleik ríkisstjórnar- innar, sem er tíl þess gerður að skerða kaupmátt launa. Fylkingin krefst þess að þegar verði tekinn upp nýr visitölu- grunnur sem endurspegli á réttan hátt raunverulega neyslu verkafólks í landinu. Ljáum ekki máls á neinni skerðingu vísitölukerfis launa! Kvennaframboðið - afstaða Fylkingarinnar Miðstjórn Fylkingarinnar ályktar: Vegna kvennaframboðs til borg- arstjómarkosninga í Reykjavik i vor vill Fylkingin taka fram eftir- farandi: 1) Fylkingin mun ekki styðja kvennaframboðið i komandi borgarstjórnarkosningum. 2) Fylkingin telur að stéttarlegur grundvöllur kvennaframboðsins sé smáborgaralegur hvað varðar félagslega undirstöðu og póli- tiska tilhöfðun. Kvennaframboð- ið þróast ekki út frá baráttu verkalýðsstéttarinnar á pólfísku og faglegu sviði á sama hátt og borgaralegu verkalýðsflokkarnir -Alþýðubandalagið og Alþýðu- flokkur - á sinum tima. Þrátt fyrir stéttasamvinnusinnaða stefnu þessara flokka eru þeir verkalýðsflokkar eins og Fylking- in hefur útskýrt við margvisleg tækifœri. Fylkingin telur að sami stéttarlegi stimpillinn geti ekki átt við um kvennafram- boðið. 3) Fylkingin telur kvennafram- boðið reka stéttasamvinnusinn- aða pólitík sem birtist m.a. i hugmyndafræðilegum grund- velli þess. Þar er lögð höfuð- áhersla á « sameiginlegan reynsluheim» kvenna sem rök- stuðning fyrir sameiginlegri póli- tiskri aðgerð af hálfu kvenna. Með þessu er reynt að breiða yfír stéttaandstæður og mismun- andi hagsmuni á meðal kvenna. 4) Fylkingin álitur að þverpóli- tiskt samkrull af þessu tagi muni skapa rugling og vekja falsvonir hjá konurn. Verði það til þess að veikja framvöxt róttækrar kvennabaráttu og sé þar af leið- andi sktef afturábak í kvenfrels- isbaráttunni. Leiðir það til tjóns fyrir konur almennt og alþýðu- konur sérstaklega. 5) Fylkingin telur framsækna kvennabaráttu verða að byggja á stefnugrundvelli þar sem kveðið sé skýrt á um þær þjóðfélagslegu afstæður sem stuðla aö kúgun kvenna og skýri karlveldiseigin- leika þess kapitaliska þjóðfélags sem við búum við. Þannig séu dregnar fram i dagsljósið hinar hlutlægu orsakir kúgunar kvenna. Benda verður á ráðstaf- anir sem gera verði til að aflétta þessari kúgun og setja fram skýrar kröfur i þvi sambandi. Stefna verður að þvi að virkja konur til fjöldaaðgerða um þess- ar kröfur og knýja á um að verka- lýðshreyfíngin geri þær að sinum. 21.3. 82 Aðild Spánar að Nató. Þann 25.feb. sl. samþykkti Alþingi fyrir íslands hönd aðild Spánar að Nató. Þingmenn Al- þýðubandalagsins sátu hjá við afgreiðslu málsins ásamt tveimur þingmönnum Framsókn- ar. Aðrir þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni (að visu var 21 þingmaður fjarstaddur). Afstaða Nató-sinna þarf engum að koma á óvart, hins- vegar hlýtur afstaða þingmanna Abl. að vekja furðu. I seinni umræðu um málið gerði Ölafur Ragnar Grimsson allvel grein fyrir þeirri miklu andstöðu gegn aðildinni að Nató sem ríkir meðal Spánverja. Eins gerði ÓRG grein fyrir þvi að spænska rikisstjómin og meirihluti þing- manna hefðu hundsað kröfuna um þjóðaratkvæði, enda vitað að aðild að Nató yrði felld í slíkri atkvæðagreiðslu. En hvers vegna sátu þingmenn Abl. hjá? Við fyrri umræðu í sameinuðu þingi var því lýst yfir «að þingmenn Alþýðubandalags- sins myndu sitja hjá við af- greiðslu málsins þar eð Abl. væri andvígt þátttöku Islands í NATO».(ÓRG) Hvílík rök! Við erum svo mikið á móti Nató að við getum ekki einu sinni greitt atkvæði gegn því að ok hernað- arbandalagsins leggist yfir fleiri. Ef alþjóðleg samstaða riði all- staðar jafn slypp af mann- fundum, þá væri illa komið í vit- skertri veröld. Nú er það svo að yfirlýst sann- færing verður oft smá þurfi að gjalda hana einhverju verði. I þessu tilviki er því ekki einu sinni til að dreifa. Abl. átti ekkert á hættu þótt þingmenn þess greiddu atkvæði gegn útþenslu Nató. Engum stólum, hvorki ráðherra né öðrum hafði verið ógnað, en á hinn bóginn hefði smáskerfur verið lagður á bar- áttuskálar Natóandstæðinga á Spáni. Að vera á móti Nató felur i sér að berjast gegn þessari risa- vöxnu hemaðarskepnu hvar og hvenær sem er og styðrja eftir megni alla sem slikt gera. HINN NÝJIHREINLEIKI Afstaða Natósinna á þingi þarf engum að koma á óvart, en fávís- leg trúðslæti þeirra era með ein- dæmum. Nú er Spánn sem óspjölluð mey að morgni. Spán- arher, flekklaus sveinn, sem sómir sér vel í bandalagi böðl- anna. Má vera að skipt hafi verið um orður og borða í spænska hernum, en fyrir innan flíkumar fer gamli, tryggi Frankóherinn. Æfing hans á sjálfsagt eftir að bera á góma þegar bomar verða saman bækurnar i Brussel, en þar er ráðgert að 300 spænskir liðsforingjar gangi til liðs við herstjórn Nató. Ekki mun V-Þjóðveijum veita af 3 þúsund manna spænskri herdeild sem staðsetja á í V-Þýskalandi. Bandaríkjaher er hagvanur og breytingin eingöngu i mynd full- nægðra formsatriða. Banda- rísku herstöðvarnar sem verið hafa á Spáni í nokkra áratugi munu breytast í bandariskar Nató-herstöðvar. Hemaðarleg samvinna Nató- ríkjanna og Spánar er ekkert ný af nálinni, þótt ljótt hafi verið að ræða um það fyrr en nú að gamla, súra vínið hefur fengið nýjan plastbelg. Spánn er og hefur verið eitt helsta vighreiður Bandaríkjanna í Evrópu. Natóandstæðingar á Spáni sem reyndu að knýja fram þjóðar- atkvæðagreiðslu fllttuðu stöðugt saman andstöðu sina við banda risku herstöðvamar i landinu og aðild að Nató. Þessum her- stöðva- og Nató-andstæðingum bragðust þingmenn Abl. þegar þeim vora bragguð sömu launráð og íslenskum Nató- og her- stöðvaandstæðingum. bþ

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.