Neisti - 08.03.1984, Síða 29
Grenada
Efst eru Kúbumenn á 1. maí s.l. í St. Georges, höfuðborg Grenada, í miðið
fjöldafundur á Grenada, neðst undirbúa bandarískir landgönguliðar skot-
árás.
Upplausnarástandið innan hersins var
svo alvarlegt að uppreisn hefði brotist út
innan nokkurra daga.
Þeir hefðu ekki verið færir um að
stjórna landinu, því þó þeir hefðu náð
landinu, höfðu þeir hvorki unnið fólki
né byltinguna. Vinnandi fólk á Grenada
hafði glatað ákafanum og orkunni og
hætt áreynslunni og því sjálfboðastarfi
sem það hafði lagt byltingunni til í fjög-
ur og hálft ár.
Byltingarherráðið gat ekki reiknað
með meira en 2 prósent stuðningi, eftir at-
burðina 19. okt. og útgöngubannið.
Efnahagslífi hefði staðnað. Grenada
hefði gjörsamlega einangrast frá um-
hverfinu.
Hvernig myndir þú draga saman
helstu lœrdómana af falli verkamanna
og bœndastjórnarinnar á Grenada?
Það mikilvægasta er að hefja vísinda-
lega og hlutlausa rannsókn, sem leiði í
Ijós og skýri þær alvarlegu villur sem
NJM gerði, greina í sundur huglægar og
hlutlægar ástæður sem lágu til mistak-
anna, draga saman Iærdóma og ályktan-
ir af þessari greiningu og auðga með
þeim byltingarsinnaða fræðikenningu
og nýta í byltingarstarfi.
Jákvæður árangur, ávinningar af for-
dæmi byltingarinnar á Grenada verða
enn að gefa okkur kjark og hugmyndir,
og veita okkur leiðsögn þegar við höld-
um áfram baráttunni gegn heimsvalda-
stefnunni og handlöngurum hennar,
gegn nýlendustefnu, ný-nýlendustefnu og
fasisma.
Við megum ekki láta hugfallast vegna
hinna sorglegu áfalla 19. og 25. október.
Heldur eigum við að efla bjartsýni og
traust með því að halda áfram að krefj-
ast hraustlega tafarlauss brottflutnings
alls erlends herafla, og að yfirráðum
Bandaríkjanna á Grenada ljúki. Það
verður að binda endi á herferð ofsókna
og ógnanna gegn NJM og fylgismönnum
hennar og stuðningsmönnum byltingar-
innar. Við eigum líka að fordæma her-
ferð afturhaldsins um gjörvallar Kara-
bísku eyjarnar, sem notfærir sér atburð-
ina á Grenada til að berja niður öll fram-
faraöfl í andheimsvaldasinnuðu- og
verkalýðshreyfingunni.
Sem stendur eigum við að leggja mikið
af mörkum til að styðja félaga okkar í
Nícaragúa sem standa frammi fyrir inn-
rás sem Bandaríkjamenn styðja, eða
taka ef til vill beinan þátt í. Það er tími
til kominn að allt framfara- og byltingar-
sinnað fólk í heiminum sameinist. Það er
tími til kominn að rísa upp úr smá-
flokkakrit og einangrunarstefnu og sam-
einast í breiðri andheimsvaldasinnaðri
einingarfylkingu um frið, réttlæti og fé-
lagslegar framfarir.
29