Neisti - 08.03.1984, Síða 32
El Salvador
Salvador Cayetano Carpio.
mála þessari stefnu, þ.e. Carpio og
Rogelio Bazaglia. Þeirsöfnuðu síðan um
sig klíku innan FPL og var hún í and-
stöðu við markmið forystu samtakanna
og gengu hagsmunir klíkunnar fyrir
hagsmunur FPL.
Þessi stefna Carpios leiddi út í ógöng-
ur og til voðaverka því þann 6. apríl sl.
stýrði Bazaglia hópi sem fór að einum
foringja skæruliða FPL, Mélida Anaya
Montes (Comander Ana María) og
myrti hana. Carpio framdi síðan sjálfs-
morð þann 12. apríl.
Forysta FPL kom síðan saman í ágúst
og fordæmdi þar morðið á Comander
Ana Maria, sjálfsmorð Carpios og
klíkuvinnubrögð hans og pólitíska
stefnu sem leiddi til þess að morðið var
framið og var alvarleg hindrun á leið til
sameiningar.
í fyrstu viku desember var opinberlega
lýst yfir stofnun nýrra pólitískra sam-
taka, MOR, (Byltingarhreyfing verka-
manna — Salvador Cayetano Carpio).
Hér er um að ræða klofning Carpiosinna
út úr FPL.
í annarri viku desember kom svo út
yfirlýsing frá FPL þar sem klofnings-
brölt MOR var fordæmt, og bent á að
þeir sem að klofningnum stóðu hafi
hafnað samþykktum FPL og stefni að
því að halda áfram pólitík Carpios. Jafn-
framt ítrekar FPL fyrri ályktanir.
Staða FMLN nú
Yfirlýsing FMLN um sameiningu
kemur fram eftir að mál Carpios hafa
verið rædd og afstaða tekin til pólitískrar
stefnu hans og stöðu byltingarinnar í E1
Salvador. Sérstaklega skiptir afdráttar-
laus afstaða FPL miklu máli í þessu sam-
bandi.
FMLN er nú sterkara en nokkru sinni
fyrr bæði pólitískt og hernaðarlega.
Þessi styrkur kemur hvað greinilegast
fram í þeim hernaðarlegu sigrum sem
unnist hafa í lok síðasta árs og byrjun
þessa. Þar má nefna þegar hersveitir
FMLN unnu. E1 Paraíso herbúðirnar og
jöfnuðu þær við jörðu. Einnig þegar
þær eyðilögðu Cuscatlan brúna og rufu
þar með helstu umferðaræð milli austur-
og vesturhluta landsins. Radio Vencer-
emos telur að með þessum hernaðarlegu
sigrum hafi verið markað upphaf að
nýrri sókn sem það kallar „Sameinuð al-
þýða gegn innrás heimsvaldasinna þar til
sigur vinnstí*
í Washington er nú verið að undirbúa
hernaðarlega íhlutun í E1 Salvador til
þess að reyna að púkka upp á riðandi
stjórn landsins. Þessi staðreynd gerir
hernaðarlega og pólitíska sameiningu
byltingaraflanna enn brýnni.
Yfirlýsing FMLN um sameiningu er
mjög mikilvægur áfangi í sögu byltingar-
innar í E1 Salvador.
Byltingarhreyfingarnar eru tilkomnar
sem einangraðir hópar, sem störfuðu
neðanjarðar. Pólitískt liðu hreyfingarnar
fyrir þetta ástand. Þær þurftu að starfa
neðanjarðar undir mikilli ógnarstjórn og
ofsóknum. Þær einangruðust hver frá
annarri og tortryggni hindraði sameigin-
legar aðgerðir þó ekki væri endilega um
mikinn pólitískan ágreining að ræða.
Sigur byltingarinnar í Nicaragua 1979
markaði nýtt stig í byltingarþróuninni í
E1 Salvador. Þá sáu verkamenn og
bændur hvers stéttasystkin þeirra í
Nicaragua voru megnug og verkamenn
og bændur í Nicaragua urðu fyrirmynd
alþýðu E1 Salvador. Eftir því sem hreyf-
ing fjöldans í baráttunni gegn ríkis-
stjórninni óx, urðu kröfur byltingar-
manna í hinum ýmsu hreyfingum fyrir
sameiningu herafla byltingarinnar há-
værari.
Árið 1980 ákváðu fjórar hreyfingar,
þ.e. FPL, kommúnistaflokurinn, ERP
og FARN að samræma aðgerðir sínar og
mynduð var „Sameinaða byltingar-
stjórnin“. Seinna kom svo fimmta hreyf-
ingin PRTC til liðs við hinar fjórar og
upp úr því var FMLN stofnað. Samband
sem skyldi sameina ýmis fjöldasamtök
og hreyfingar, FDR var einnig mynduð
og sótti það pólitíska leiðsögn til FMLN.
Þegar verkalýðsstéttin fór að taka
meiri þátt í baráttunni og fjöldi nýrra
liðsmanna óx komst sameining bylting-
araflanna í einn flokk á dagskrá. Stjórnir
Nicaragua og Kúbu studdu þessa þróun
og á ráðstefnu sem haldin var 1982 í
Havanna fyrir byltingarmenn í Róm-
önsku Ameríku var eitt meginmálið á
dagskránni mikilvægi sameinaðrar bylt-
ingarforystu.
Við stefnubreytingu FPL á síðasta ári
var stigið stórt skref til sameiningar.
Þrátt fyrir klofning fylgismanna Carpi-
os þá er FMLN nú sterkara en nokkru
sinni fyrr og sameining byltingarhreyf-
inganna í einn flokk er í sjónmáli.
Alþjóðlegt stuðningsstarf
Það er mikilvægt að jafnframt því sem
byltingarhreyfingar í E1 Savador sjálfu
sameinist, að það sama gerist meðal
stuðningshreyfinga byltingarinnar í E1
Salvador, sem starfa um allan heim.
í yfirlýsingu FMLN er varað við því að
óvinir byltingarinnar þ.á m. CIA muni
reyna að notfæra sér klofning MOR út
úr FPL til að sundra hinni alþjóðlegu
stuðningshreyfingu. Lygum muni verða
beitt og Ijúgvitnum teflt fram til þess að
gera sameinaða byltingarhreyfingu tor-
tryggilega og grafa þar með undan
stuðningi erlendis frá.
En það var ekki aðeins þrýstingur frá
fjöldanum í E1 Salvador sem kallaði á
sameiningu heldur einnig þrýstingur frá
hinni alþjóðlegu stuðningshreyfingu
byltingarinnar í E1 Salvador.