Neisti - 08.03.1984, Blaðsíða 40

Neisti - 08.03.1984, Blaðsíða 40
Framkvæmdanefnd Fylkingarinnar: Verjum alþýðubyltingarnar í Mið-Ameríku Eftir innrás Bandaríkjanna á eyríkið Grenada í Karabíska hafinu hafa átökin milli byltingarafla alþýðu og heims- valdastefnunnar i þessum heimshluta hafist ■ æðra veldi. Árás sex þúsund hermanna á 110 þús- und íbúa eyríkisins sýnir, að stjórn Bandaríkjanna er reiðubúin til að grípa til meiriháttar hernaðaraðgerða til að stöðva alþýðubyltingarnar í Mið-Amer- íku, og er jafnvel vís til að ráðast á Kúbu. Ef einhver efast um þetta, þarf ekki annað en að lita til hinna stöðugu heræf- inga Bandaríkjanna í ríkjum Mið-Amer- íku, ítrekaðra ögrana og árása gagnbylt- ingarsinnaðra skæruliða í Nicaragua, sem eru gerðir út af stjórn Bandaríkj- anna, og hina vaxandi hernaðaraðstoð, sem veitt er ríkisstjórnum E1 Salvador, Honduras og Guatemala. Þá vinnur stjórn Bandaríkjanna stöð- ugt að því að undirbúa almenningsálitið heimafyrir undir bein styrjaldarátök, og vinna bug á eftirverkunum Vietnam- stríðsins. Frammi fyrir þessum ógnunum þjapp- ar alþýða Nicaragua og E1 Salvador sér saman um forystu sína. Landsfólkið gerír sér mætavel grein fyrir því að amerísk innrás mun leiða til endurreisnar hataðr- ar borgara- og landeigendastéttar, sem getur ekki unnt alþýðu manna einföld- ustu mannréttinda, hvað þá annað. Frammi fyrir þessum ógnunum og eft- ir inrásina á Grenada hefur stuðnings- starfið í Bandaríkjunum sjálfum og öðr- um heimsvaldalöndum einnig tekið kipp, og vex nú hröðum skrefum. Oft var þörf en nú er nauðsyn brún, og fleiri og fleiri skilja hversu mikilvægt það er að styðja með ráðum og dáð brjóstfylkingu heimsbyltingarinnar í dag, FMNL/FDR í E1 Salvador, og FSNL í Nicaragua. Það á bæði við um þá, sem styðja stefnu al- þýðuforystunnar í þessum löndum, og hina, sem finna að einu og öðru í fram- kvæmd byltingarbaráttunnar, en vita um leið, að engir vankantar hennar geta fal- ið kjarna málsins — nefnilega að þarna eru nú stigin af fátæku bændafólki og verkamönnum risaskref fram á við fyrir mannkynið allt. Fylkingin er meðal þeirra, sem álíta stuðningsstarf við byltinguna í El Salva- dor og Nicaragua eitt mikilvægasta verk- efni sósíalista á líðandi stund. Slíkt starf getur verið með ýmsum hætti, og Fylk- ingin hefur fyrir sitt leyti ákveðið að helga þessum málum meira rúm í blaði sínu en hingað til, og jafnframt ákveðið, að taka eins mikinn þátt í herferðum El Salvadornefndarinnar á íslandi og henni er fært. Jafnframt munu Fylkingarfélagar leita eftir því innan verkalýðshreyfingar- innar, þar sem þeir eru niður komnir, að hreyfingin styðji á áþreifanlegan hátt baráttu stéttarsystkina íslensks verkalýðs í El Salvador og Nicaragua. Fylkingin skorar á alla lesendur Neista að leggja sitt lóð á vogarskál byltingar- innar með þvi að styðja byltinguna í Mið-Ameríku með einhverjum hætti. Takið málið upp í stéttarfélögum ykkar, stjórnmálafélögum og takið þátt í starfi El Salvadornefndarinnar á íslandi og styðjið hana með fjárframlögum ykkar. Framkvæmdanefnd miðstjórnar Fylkingarinnar Sex ára afmæli kvennasamtaka sandinista fagnað.

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.