Stéttabaráttan - 10.05.1972, Page 2

Stéttabaráttan - 10.05.1972, Page 2
2 LeiÓari: Sú aðför og lítilsvirðing sem verka- lýðnum var sýnd l.maí, þegar endur- bótasinnaðir verkalýðsleiðtogar og stéttasamstarfspáfar luku upp einum munni um, að nú skyldi leggja allar kröfur verkalýðsins á hilluna og fylkja honum þess í stað undir hags- munakröfur íslenzks auðvalds um út- færslu landhelginnar í 50 mílur, hefur flett lýðræðisblæjunni af "verkalýðsvinunum"í "alþýðustjórn- inni". Hver af öðrum stóðu sósíal- fasistar og stéttasamstarfsprelátar Alþýðubandalagsins upp og lýstu yfir hafinni krossferð og þjóðfrelsisbar- áttu íslenzku þjóðarinnar gegn kúg- unaröflum heimsvaldastefnunnar á is- landi, með andakt og hetjumóð. Nú skyldi reisa fána íslenzkrar þjóð- ernishyggju og þjóðin skyldi standa sameinuð, stétt með stétt, gegn hinum kúgandi óvini'. En þegar nefna átti óvininn vafðist "alþýðuherrun- um" tunga um tönn. Jafn kokhraustir og þeir hafa alltaf verið við að lýsa Bandaríkin sem einvöldum kúg- ara og arðræningja íslenzku þjóðar- innar, jafn hjáróma urðu nú yfir- lýsingarnar um að hinn kúgandi aðili væri USA, ásamt með Brezkum, Þýzkum, Sovéskum, Japönskum heimsvaldasinnum og jafnvel fleiri'. Sannleikurinn er sá, að í málflutningi "alþýðuherr- anna", sem er algjörlega samhljóma svartasta afturhaldsboðskap borgara- stéttarinnar í Morgunblaðinu, glytti sem snöggvast í þær fölsku forsendur sem liggja til grundvallar henti- stefnu þeirra og stéttasamstarfs- pólítík. "SULTARAUÐVALDIÐ" Allt frá því er hægriöflin innan gamla KFI urðu ofan á og náðu að leggja byltingarflokkinn niður til að taka upp í hans stað samfylking- arflokk með sósíalfasistum úr Al- þýðuflokknum til að veiða atkvæði, hafa þessir herrar markvisst unnið að því að dylja stéttamótsetningar íslenzka auðvaldsþjóðfélagsins. Þeir hafa æ ofaní æ reynt að sann- færa verkalýðinn um að engan óvin sé að finna innan landamæranna, hin eina og sanna óvin sé að finna vestan Atlantshafsins og því til sönnunar er bent á nærveru USA- hersins í Keflavík. Til að renna stoðum undir stéttasamstarfspóli- tík sína og firra íslenzka borgara- stétt ábyrgð, æpa þessir auðvalds- þjónar hver í kapp við annan um "hernumið land" - "þjóðfrelsisbar- áttu íslenzku þjóðarinnar" og að islenzkt auðvald sé i rauninni eins konar ómerkilegir mútuþegar og milli- liðir bandariskra auðjöfra, sem færi blóðaura sina jafnharðan inn á svissneska banka til ávöxtunar og lifi að öðru leyti á sparifé is- lenzkrar alþýðu'. '. Verkalýðurinn veit vel, að ekkert auðvald getur nærst á þeim sultarlaunum, sem verkamenn- irnir sjálfir geta vart framfleytt sér og sinum á, nema með ómannlegri yfirvinnu og þrældómi'. En "alþýðu- herrarnir" haida þvi blákalt fram, að gróði auðvaldsins fari fram á þennan sultarmáta, þvert ofani vit- neskju hins stéttvisa verkamanns, að allur gróði auðvaldsins er ekki annað en gildisaukinn, sem verka- lýðurinn skapar með vinnu sinni, en borgarastéttin hirðir án þess að nein greiðsla komi i staðinn'. Allt tal sósialdemókratanna i Alþýðu- bandalaginu um að islenzk borgara- stétt sé aðeins milliliður erlends auðvalds er með ásetningi gert til að dylja arðrán islenzku borgara- stéttarinnar á öreigastéttinni og halda verkalýðnum frá byltingar- starfi og stéttabaráttu, en beina honum þess i stað inn á brautir stéttasamvinnu og tilbúinnar þjóð- frelsisbaráttu. BANDARISKI HERINN - KOGUNARTÆKI TÆKI ISLENZKRAR BORGARASTÉTTAR William Rogers, utanrikisráðherra Nixon-stjórnarinnar, hlaut eins og menn eflaust mtina verðugar móttökur stúdenta i Arnagarði fyrir skemmstu. Þessum ótýnda leigumorðingja i þágu bandariska auðvaldsins var sýnd sama litilsvirðing og hatur og annars staðar þar sem útsendarar USA koma, hvergi er þessum snötum heimsvalda- stefnunnar vært nema i fylgd vel vopnaðs lögregluliðs. En "alþýðu- stjórnin" fagnaði vini sinum og full- vissaði hann um að allt tal um brott- flutning herliðsins væri aðeins til að halda vinsældunum og koma í veg fyrir að stéttsvikararnir misstu kverkatök sin á verkalýðnum, herinn yrði um kyrrt, þar i lægi beggja hagur. Þrátt fyrir öll gifuryrðin og stórbokkatalið um að bandariskt auð- vald væri einrátt á Islandi og að þjóðin berðist fyrir frelsi sinu gegn USA-heimsvaldastefnunni, herinn væri hér til að hernema landið osvfr. hefur Alþýðubandalagið látið ógert að reka þennan hræðilega fjandmann is- lenzkrar alþýðu af landi brott, þvert ofan i gefin kosningaloforð. Þetta kemur ekki á óvart, ástæðan er hrein- lega sú, eins og KHML hefur áður bent á, að herinn er hér ekki sem hernámstæki USA-heimsvaldastefnunnar, þótt bandarikin hafi hér aðstöðu, heldur fyrst og fremst sem tæki is- lenzkrar borgarastéttar, til að geta gripið til ef illa búin innlend lög- regla skyldi reynast ónóg til að kúga öreigastéttina og halda henni i skefjum. Og það er ekki af ástæðu- lausu sem óttinn nagar islenzku borgarana. 9.nóvember 1932 var lög- reglan i Reykjavik borin ofurliði af öreigunum i hörðum götubardögum. Eina leið "alþýðustjórnarinnar" til að efna loforð sin um brottför hers- ins, væri að koma á fót rikislög- reglu, sem gæti gegnt kúgunarhlut- verki hersins. Þegar við berjumst gegn hernum, skal haga baráttunni út frá þvi, að hann er eitt af kúgunartækjum borgara- stéttarinnar og nokkurs konar hluti af rikisvaldi hennar. VOPNIÐ ER SKIPULAGNING. Þegar öreigastéttin býst til baráttu gegn kúgun og kjaraskerðingarsókn auðvaldsins, er henni nauðsynlegt að gjörþekkja stéttaróvininn og öll þau vopn, sem hann hefur yfir að ráða, svo hún geti vegið og metið hvernig beri að snúa sér i einstökum vanda- málum sem upp koma i hinni daglegu baráttu, þannig að hinni sósialisku byltingu sé jafnframt þjónað. Þegar við búumst til baráttu gegn auðvaldinu er okkur fyrst nauðsyn- legt að skipuleggja öreigana undir merki kommúnismans i byltingarflokk. Meginhindrunin i vegi fyrir stofnun sliks flokks, er kverkatak endur- bótasinnanna i Alþýðubandalaginu og verkalýðsforystunni, sem um margt eru tengdir. Hinn taktiski höfuð- óvinur öreigastéttarinnar i dag, er Alþýðubandalagið, þjóðfélagsleg höfuðstoð borgarastéttarinnar. Við verðum að berjast gegn áhrifum þess yfir þorra verkalýðsins og slik bar- átta verður þvi aðeins háð með ár- angri, að öreigastéttin skipuleggi sig i Kommúniskan byltingarflokk, þvi aðeins með valdbyltingu munu ör- eigarnir gegna hinu sögulega hlut- verki sinu. Slikur flokkur verður að vera kjarni stéttarinnar, órofa tengdur henni og vopnaður reynslunni af baráttu öreiga heimsins, allt frá dögum Karls Marx til Maós Tsetungs. Slikur flokkur má enga hagsmuni hafa aðra en stéttarinnar og getur aldrei knéfallið fyrir þingræði borgara- stéttarinnar. HÖFUÐVERKEFNIÐ - BYLTINGARSINNAÐ NAMSSTARF. Kommúnistahreyfingin m-1 stefnir að myndun Kommúnisks byltingarflokks, sem getur leitt öreigastéttina gegn um stórsjóa stéttabaráttuna til sig- urs. Afangi i þessari baráttu er myndun kommúniskra samtaka, samtaka allra þeirra er hafa hafið námsstarf i marxismanum-leninismanum-hugsun Maós Tsetungs. Orð Lenins:"An bylt- ingarsinnaðrar fræðikenningar, engin byltingarhreyfing", eru enn i fullu gildi. Byltingarsinnað námsstarf er höfuðverkefni öreigastéttarinnar i dag, til þess að hún geti tileinkað sér sameinaða baráttureynslu öreiga heimsins, og notað þessa almennu þekkingu við séraðstæður islenzka þjóðfélagsins. KHML hefur unnið að gerð leshrings i marxismanum-lenin- ismanum-hugsun Maós Tsetungs þjóðfélagsins. KHML hvetur alla með- vitaða verkamenn og stéttfrændur ör- eigastéttarinnar til að hefja bylt- ingarsinnað námstarf sem skref i átt að myndun kommúniskra samtaka og siðar kommúnisks flokks'. GEGN STÉTTASAMVINNU ENDURBOTASINNA ALÞÝÐUBANDALAGSINS 0G VERKALTÐS- FORYSTUNNAR'. LÆRUM AF STÉTTABARATTUNNI, 0G GERUM ÞEKKINGU OKKAR AÐ VOPNI TIL FLOKKS— MYNDUNAR'. FRAM TIL HINNAR SOSlALlSKU BYLTINGAR'. Frh.af forsiðu Ræða... svið þjóðecnislegrac' stéttasamvinnu gegn erlendu kúgunarvaldi og halda honum frá baráttu gegn höfuðóvini sínum, íslenzkri borgarastétt. AB hefur sérlega sannað tryggð sina við borgarana með því að veita iðnvæð- ingu þeirra forystu, með því að berjast fyrir útvíkkun landhelginnar fyrir hagsrnunum borgaranna íslenzku og með því að kæfa hverja baráttu- tilraun verkalýðsins gegn auðvaldinu með stéttasamstarfspólitík sinni. Höfuðóvinurinn er innlend borgara- stétt og þegar við berj-umst gegn USA-hernum, þá berjumst við gegn honum vegna þess að hann er eitt af kúgunartækjum isienzkrar borgara- stéttar gegn öreigastéttinniVið vísum tilraunum AB til að draga at- hygli verkalýðsins frá kúgun borg- arastéttarinnar með því að veifa herstöðvunum og kalla Island "ný- lendu og kúgaða þjóð" á bug og föll- um ekki í þá gryfju að taka afstöðu út frá hagsmunum hins þjóðlega hluta íslenzkra borgara. Við megum ekki takmarka baráttu okkar við herinn og ímyndaða kúgun heimsvaldasinnaðs ríkis, við getum ekki fallizt á stéttasamstarf gegn erlendum ítökum, sem aðeins eru efnahagsleg tengsl, óhjákvæmileg á skeiöi heimsvalda- stefnunnar, en ekki pólitísk kúgun. Því íslenzka borgarastéttin hefur pólitískt sjálfstæði og barátta hennar fyrir útvíkkun landhelginnar er barátta fyrir útvíkkun einokunar- svæðis hennar, barátta fyrir eigin hagsmunum, að fá einokunaryfirráð yfir auðlindum hafsins umhverfis Island. í öllum vandamálum sem við fáumst við, hljótum við alltaf að spyrja: Hverjir eru hagsmunir öreigastéttar- innar? livernig á að haga baráttunni í hinum einstöku vandamálum til aö hún þjóni þannig lokatakmarkinu, só- síalísku byltingunni? Fyrir öreiga- stéttina er aðeins ein leið til freisis undan kúgun og arðráni borg- arastéttarinnar, hún verður að ná pólitískum völdum þjóðfélagsins með byliingu, mölbrjóta hið kapítalíska ríkisvald og reisa sitt eigið, al- ræði öreiganna.7 En í dag hljótum við að miða starfið út frá þessu lokatakmarki, við verðum að haga baráttunni þannig, að við getum slegið vopn borgarastéttarinnar úr höndum hennar og lagt hana að velli í stéttabaráttunni. Höfuðverkefnið er skipulagning öreigastéttarinnar £ kommúnískan flokk, byltingarflokk, sem er kjarni stéttarinnar og órofa tengdur henni á allan hátt og hefur enga hagsmuni aðra en stéttarinnar, kommúnískan flokk sem ekki verður þingræðislegum örverpishætti að bráð og afmarkar sig skýrt frá henti- stefnumönnunum og stéttasvikurunum í AB og verkalýðsforystunni, kommún-r ískan flokk, sem vex og styrkist í baráttu gegn stéttasamstarfsmönnunum og kratabroddunum £ AB og verkalýðs- forystunni.' Til þess að öreiga- státtin geti skipulagt sig'íslíkan flokk, er henni nauðsynlegt að læra af sameinaðri reynslu verkalýðsins £ baráttu hans gegn borgarastéttinni allt frá dögum Karls Marx til Maós Tsetungs og tengja þessa almennu reynslu hinum sérstöku aðstæðum hér á íslandi. Öreigastéttin verður að hefja byltingarsinnað námsstarf £ marxismanum-1enfnismanum-hugsun Maós Tsetungs. Kommúnistahreyfingin m-1 hefur einsett sér að stefna að mynd- un kommúnfsks byltingarflokks, sem er þess megnugur að leiða öreiga- stéttina til byltingar gegn auðvald- inu. Þess vegna setur KHML fram vfgorðin: STÚTT GEGN STÉTT - LÆRUM AF stéttabarAttunni og gerum þekk- INGU OKKAR AÐ VOPNI TIL FLOKKSMYNB- UNAR - NIÐUR MEÐ KAPlTALISMANN 0G HEIMSVALDASTEFNUNA - LIFI SÓSlALISM- INN 0G ALÞJÖÐAHYGGJA ÖREIGANNA.' ★ Frh.af bls.8 Mai Loc... þessum stöðvum. I Mai Loc stöðinni voru til varnar 7- herdeildin og þeir, sem höfðu komizt af úr hinum föllnu stöðvum. Þessi stöð var nærri einangruð frá umheiminum. Öllum njósnasveitum, sem voru sendar þaðan, var þegar i stað eytt. Smám saman jókst sprengjuárásin, stórskotalið óvinarins varð óvirkt og eldar log- uðu viðsvegar i herstöðinni. 3. april réðst p.L.A.F. (þjóðfrelsis- herinn) inn i Mai Loc herstöðina, felldi flesta úr varnarliðinu og skaut niður þrjár bandariskar flug- vélar, sem reyndu að flytja Saigon- hersveitirnar burt. alþyðan handsamar kvislingana. Margir þeirra, sem komust af, gáfust upp eða voru handteknir af þjóðfrels- ishernum. Studd af þjóðfrelsishernum reis alþýðan upp, sem lokuð hafði verið í fangabúðum, og flæmdi kvisl- ingana út úr grenum sinum. Nokkrir þeirra reyndu að fela sig meðal fjöldans, en þeir voru fljótlega af- hjúpaðir og afhentir þjóðfrelsis- hernum. Eftir heiftarlegar árásir, sem stóðu i 5 daga, eyddi þjóðfrelsisherinn með stuðningi alþýðunnar siðustu leifum 147. hersveitar Saigonshers- Xns. Þýtt úr kinverska blaðinu HSINHUA). Nú.þegar Stéttabaráttan kem- út i annað sinn, er hún bæði stærri og vandaðri en áður og um leið markvissari og tengdari stéttabaráttunni á Islandi. Upplagið hefur tvö- faldazt og áskrifendur safn- azt i ríkum mæli. En það.sem meira máli skiptir, við höf- um dreift kommúniskum áróðri meðal verkamanna og fengið mikinn hljómgrunn meðal þeir- ra. Verkamenn og heiðarlegir stuðningsmenn öreigastéttar- innar'. Lesið Stéttabaráttuna og gerið hana að voldugu vopni til skipulagningar og samhæfingar á baráttunni gegn arðráni og kúgun auð- valdsins'. Ritstjori og ábyrgðarmaður: Kristjén Guðlaugsson ★ KHML hvetur alla byltinga- sinnaða verkamenn til að lesa bæklinginn"Reynslan af kjarabaráttunni"og gera hana að vopni í kjara- baráttunni'. Verð:50kr. Stéttabaráttan^ BYLTINGARSINNAÐIR VERKAMENN'. Gerist áskrifendur að stéttabarAttunni og gerið hana að beittu vopni £ bar- áttunni gegn kúgun og arð- ráni borgarastéttarinnar. Sendið miða til Sigurðar Jóns Olafssonar Öldugötu 7A kj. R. NAFN ____________________________ HEIMILISF____________________- ÁSKRIFT:KR.200 D STUÐNINGSÁSKRIFT:KR.300 D BARÁTTUÁSKRIFT:KR.5000

x

Stéttabaráttan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stéttabaráttan
https://timarit.is/publication/344

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.