Stéttabaráttan - 11.08.1976, Side 2

Stéttabaráttan - 11.08.1976, Side 2
Stéttabaráttan 11. ágúst. 197.6. □□ Stéttabaráttan 14. tbl. 5. árg. 11. 8.1976. Ctg. : Kommúnistaflokkur Is- lands m-1. STfiTTA BARATTAN kemur út hál ts m á naðarlega. l’ósti'ang: l'ósthólf 1357, Rvfk. Sími: 27H 10. liitstj. K ábm: Olafur Ingólfsson Gfró:27bl 0. Eflum baráttuna gegn Sovésku sósialheimsvaldastefnunni Þann 21. ágúst eru 8 ár llðin síðan sovéskir skrið- drekar héldu innreið sfna í Prag. Þá var hulunni svipt af hinu rétta eðli sovésku endurskoðunarstefn- unnar og örvæntingarfull frelsisbarátta tékknesku þjóðarinnar opinberaði fyrir alheimi að sovéski "Rauði herinn" var ekki lengur tákn sigursins yfir nasistum, heldur arftaki blóðherja Hitlers. Brésn- eff-klíkan hikaði þá ekki við að brjóta frelsisvið- leitiii tékka á bak aftur með nöktu vopnavaldi, her- nám Tékkóslóvakíu var f senn órækt vitni um stríðs- fyrirætlanir sósíalheimsvaldasinnanna og viðvörun til austantjaldslandanna um að Sovétríkin mynduekki þola sjálfstæða þróun þeirra eða vinslit við sig. Ál- þýða heimsins hefur ekki gleymt hetjulegu viðnámi tékkneskrar alþýðu, hún hefur ekki gleymt Jan Pal- ach og félögum hans, sem hikuðu ekki við að fórna lífi sfnu til að vekja samlanda sína til meðvitundar um nauðsyn 'vopnaðrar baráttu gegn sovésku inn- rásarherjunum. Jafnframt sýndu atburðirnir f Tékkóslóvakíu 1968, að sovésku kúgararnir munu ekki hörfa frá A-Evrópu nema fyrir byssustingjum. Það þarf alþýðustrfð til að sigrast á glæpaherjum Sovétríkjanna og tryggja sigur verkalýðsins í A- Evrópu. Hinir örlagaríku atburðir í Prag fyrir 8 árum leiða hugan ósjálfrátt að þeirri frelsisbaráttu sem fram fer f Póllandi nú. Undir forystu Komm- únistaflokks PólLands (m-1) reis pólsk alþýða sam- huga gegn tilraunum sovésku heimsvaldasinnanna og leppa þeirra f Gierek-stjórninni til að lögfesta stjórnarskrárákvæði þess efnis, að vináttan við Sovétríkin skvldi vera ævarandi. Efnahagsörðug- leikar pólsku endurskoðunarsinnanna, sem valdið hafa mikilli verðbólgu og versnandi kjörum almenn- ings, sýna að kapitalisminn hefur enn að nýju náð undirtökunum f efnahagslffi landsins. Kommúnistaflokkur Islands ml lýsir fullum stuðn- ingi sínum við réttmæta og hetjulega baráttu verka- mannanna f Varsjá, Radom og annars staðar og hvetur íslenska alþýðu til að virks stuðnings við frelsisbaráttu pólskrar alþýðu. Og pólskur verka- lýður sker sig ekki úr nema hvað snertir fórnfýsi og hetjulund í baráttumii. ÍUngverjalandi, Búlgaríu A-Þýskalandi og Tékkóslóvakíu fer baráttan vaxandi þótt hún hafi enn ekki náð sömu útbreiðslu og styrk og í Póllandi. Jafnvel f Sovétríkjunum sjálfum eykst andspyrnan dag frá degi og sovésku sósfal- heimsvaldasinnunum reynist örðugra en fyrr, að blekkja verkalýð heimalandsins til fylgis við hern- aðaraðgerðir sfnar. Það er skylda íslenskrar verkalýðsstéttar að styðja þessa baráttu með öllum ráðum og efla baráttuna hérlendis gegn útsendurum sósfalheimsvaldastefnunnar. Þeir sem hérlendis nefna sig andheimsvaldasinna, en lúta þó svo lágt, að þiggja heimboð hinna fasfsku stjórna a-evrópu- ríkjanna, eru engir andheimsvaldasinnar. Þeir eru í sömu sporum og íslenskir þjóðernissinnar, sem gistu Hitlers-Þýskaland á fjórða áratugnum. Yfirlýsingum Þjóðviljans um að Alþýðubandalagið styðji Sovétríkin ekki verður ekki trúað, fyrr en blaðið tekur upp virka baráttu gegn grimmdarverk- um sovésku sósíalheimsvaldastefnunnar. Orð slíkra manna eru ómarktæk þegar haft er f huga, að AB-forystan erí nánum tengslum við Sovétríkin og tekur málstað þeirra í hvívetna. Kommúnistafiokkur Islands ml hvetur alla alþýðu til að sýna hug sinn til myrkraverka sósíalheims- valdastefnunnar í Tékkóslóvakíu og Póllandi með því að taka þátt í fyrirhuguðum mótmælaaðgerðum við sovéska sendiráðið þann 21. ágúst næstkomandi. Fullan stuðning við frelsisbaráttu tékkneskrar alþýðuj - Fordæmum kúgunaraðgerðir endurskoðunarsinna f Póllandi! 8/8 Gerist áskrifendur að STÉTTABARÁTTUNNI Hvar geturðu keypt Stéttabar- áttuna ? SUÐUELAND: Reykjavík: Rauða stjarnan, Lindargötu 15. Bóksala stúdenta í Félags- stofnuninni v/ Hringbraut. Einnig fæst blaðið nú í mörg- um söluturnum. Suðurnes: Jónas H. Jónsson, Holtsgötu 26, Njarðvík. Ilafnarfjörður: Fjóla Rögn- valdsdóttir, Vitastíg 3. Vestmannaeyj ar: Guðrún Garðarsdóttir, Þorlaugsgerði. HVERNIG KEMST Þt I SAM- BAND VIÐ KOMMtTNISTA- FLOKK ÍSLANDS/ML ? Miðstjórn: Pósthólf 1357 Reykjavík, einniyf síma 27810, Ritstjórnir Stéttabaráttumiar og Rauða fánans: Pósthólf 1357, Rvík, einnig Ísfma27810 Reykj avikurdeild: Lindargötu 15, sími: 27810. Akureyrardeild: Guðvarður M. Gunnlaugsson, Helga- magrastræti 23, einnig póst- hólf 650, Akureyri. Suðurnesjadeild: Jónas H. Jónsson, Holtsgötu 26 Njarð- vík, sfmi; 2641. Hafnarfjörður: Ijóla Rögn- valdsdóttir, Vitastíg 3. Neskaupstaður: Stuðnings- deild c/o Messíana Tómasdóttir, Miðhúsum. Snæfellsnes: Sigfús Almars- son, Skólabraut 10, Hellis- sandi. Eiðar, S-Múl,: Stefán Jó- hannsson. Kveðja til Chu Teh Einn af mikilhæfustu leiðtogum mönnunum. Hann gekk í kínverskrar alþýðu , Chu Teh kínverska kommúnistaflolckinn marskálkur er látinn. Chu Teh árið 1922 og varð yfirhers- var elskaður og virtur af höfðingi 8. fastahersins árið kínverskri alþýðu fyrir óeigin- 1937. A 4.þjóðþinginu 1975 var gjarnt starf í þágu byltingarinnar hann kjörinn forseti fastaráðs og fólksins. Hann var ásamt Maóþjóðþingsins og gengdi þeim formanni stjórnandi göngunnar störfum til dauðadags. löngu sem kínverski alþyðuherinn Ævistarf félaga Chu Teh í þágu fór á árunum 1934-36, og á hinni byltingarinnar og heimskommún- 12. 500 km. löngu leið stýrði ismans mun lifa í hjörtum allra hann frelsishernum fram hjá saimra marx-lenfnista. Við fjölmörgum hættum og til ótalinnakveðjum félaga Chu Teh með sigra yfir herjum Kuo Min Tang. söknuði og f þeirri vissu að lífs- I styrjöldinni gegn japönsku imi- starf hans verði áfram öllum rásarseggjunum vann hann marga byltingarsinnum hvatning til dáða. VESTURLAND: Hellissandur: Sigfús Almars- son, Skólabraut 10. NORÐURLAND: Akureyri: Guðvarður Gunn- laugsson, Helgamagrastræti 23. Siglufjörður: Söluturnin við Aðalgötu. Húsavík: Þórarinn Ölafsson, Sólbrekku 5. AUSTURLAND: Neskaupsstaður: Messiana Tomasdóttir, Miðhúsum. Islenskir námsmenn erlendis. Nú getið þið keypt Stéttabar- áttuna hjá umboðsmönnum okkar í nokkrum borgum á norður- löndum. NOREGUR: Oslo: Katrfn H. Andrésdóttir, Sogn Studentby 1310, Oslo 8. SVIÞJÖÐ: SOLNA: Magnús Sæmundsson, Kungshamra 23a, 17170, Solna. LUNDUR: Jón Rúnar Sveinsson, Kamnarsvágen 5 D: 218 222 46 Lund. DANMÖRK: ARHUS: Magnús Þorgrímsson, Börglum Kollegiet v 444, Börglumsvej 2, 8240 Risskov. Myndin synir Mao Tsetung og Chu Teh er þeir unnu saman að gerð hernaðaráætlanna f frelsisstrfðinu. Nýkomnar eru í búðina byltingarsinnaðar hljómplötur frá norð- urlöndum. JS|Kinsk;i moísfáiuls siin<|er Inspelode i Sponien >963/64 Einnig fyrstu bindin í ritsafni Stalíns. Heildarsafn verka Leníns (Lenin Collected works) , 45 bindi, er selt á góðum kjörum. Lítið inn og kaupið. RauðaJStjarnan * Bókabúð luudioijai A Bc ik VERKALYÐSFORLAGIÐ hefur gefið út smábækling sem heitir I inngangi að bæklingnum segir: "Þessi bæklingur fjallar um drög þau að frumvarpi um breytingar á núgildandi lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, sem félagsmálaráðherra hefur látið semja. I honum er gert grein fyrir helstu þáttum frum- varpsins, hvernig þessar fyrir- huguðu breytingar miða allar að því að efla og treysta völd borg- arastéttarinnar, múlbinda verk- alýðshreyfinguna og skerða sjálfsögð réttindi verkafólks til að semja um kaup sitt og kjör, Þá er og reynt að gera grein fyrir orsökunum að baki þessari nýju vinnulöggjöf, á hvern hátt íslenskur verkalýður hefur barist gegn öllum tilraun- um ríkisvaldsins til að skerða rétt hans með löggjöf - og síð- ast en ekki síst er bent á þá leið, sem Kommúnistaflokkur Islands m-1 hyggst fara og hvetur allt verkafólk til að fara til að berjast gegn vinnulöggjöf auðvaldsins. " Við samningu bæklingsins var m. a. stuðst við greinar sem birst hafa I STÉTTABARATT- UNNI um þetta mál. Við viljum hvetja verkafólk til að kynna sér innihald bæklings- ins og nota hann sem tæki til að koma af stað umræðum á vinnustöðum og innan fagfélaga um nauðsyn þess að berjast gegn nýrri vinnulöggjöf. Verð bæklingsins er aðeins 150 krónur, og er hægt að kaupa hann hjá sölufólki Stétta- baráttunnar um land allt, og ennfremur hjá bókabúðinni Rauðu Stjörnunni, Lindargötu 15, Reykjavík.

x

Stéttabaráttan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stéttabaráttan
https://timarit.is/publication/344

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.