Spegillinn - 01.02.1927, Blaðsíða 6
10
SPEGILLINN
Færist nær menningunni!
uðumst, virtist okkur mylnuvængir vera á
hreyfingu hingað og þangað kring um ein-
hverja þúst. Er við komum að þessum undr-
um var stöðvun á skurðgreftinum. Ferlíkið,
sem snjóbíll er nefndur, gerði skrúfu, en
allt liðið 20—30 manns var að berja sjer
upp á landsins kostnað. Jeg komst á »Hól-
inn« um kveldið en austur aldrei. Fimrn
dögum síðar komst jeg heim, hangikjöts-
laus, búinn með nestið og hina dýru snafsa,
en mjer fanst jeg þó hafa grætt á því,
sem jeg sá af hyggjuviti, verklagi og fram-
kvæmdum landa minna, og hvað sem hver
segir, þá er þeim trúandi fyrir landsins fje.
Sagt er, að 14. apríl eigi að opna skurðinn
og má þá búast við hátíðahöldum í Ölves-
inu og balli á Sandhól. * *
e. Umbótamál.
Rukkarahczli.
Eignist „Merry“-viðtæki!
Þessir byltingatímar, sem vjer\nú lifum
á, hljóta að vekja hvern hugsandi íslend-
ing til andlegra umþenkinga og íhugunar
um framtíð þessa lands og þessarar þjóðar.
Hefir þegar verið reynt að hugsa um að
segja og skrifa margt og mikið til þess,
að ætla sjer að koma á margvíslegum um-
bótum, sem kynnu kannske að geta leitt
af sjer vakning meðal ef til vill dugandi
og skynberandi manna, er hugsanlegt væri,
að gætu haft áhrif á tilkomandi kynslóðir.
Hjer hefir þegar verið komið á fót mörg-
um hælum, og það síst að nauðsynjalausu,.
svo sem vitfirringahæli o. fl„ og það sem
nú ríður mest á — næst trúboðinu í Kína —
er að koma upp þjóðkartöflugarði suður á
Kartöflugarðsskaga og Stúdentagarði í Há-
borgíslenskrarmenningar. Elliheimili og sjó-
araheimili hafa þegar verið reist. En það
hæli, sem mest lá á að reisa, næst vit-
lausraspítalanum, er rukkarahœli.
Þetta mál þarfnast engra skýringa, því
hver heilvita maður hlýtur að sjá, hvílík
mannúðarskylda þessari þjóð í þessu landi
ber til að líkna þessum nauðstöddu með-
eða mót-bræðrum vorum. Sennilega eru
þetta þó manneskjur eins og hinir, eða
hefir ekki Drottinn líka skapað þá kann-
ske?????? Eða hver er sá á meðal vor,.
að honum renni það ekki til rifja, að horfa
upp á þessa aumingja hrekjast frá húsi til
húss og vera alstaðar vísað á dyr — sum-
staðar með ómjúkum orðum — og það
stundum um hávetur, hvernig sem viðrar?
Vjer viljum því fastlega skora á allar sann-
kristnar manneskjur með þjóð vorri, að
gangast fyrir samskotum til þess að koma
á þessu bráðnauðsynlega fyrirtæki. »Það er
lakur skúti, sem ekki er betri en úti«, segir
Sjekkspír. — Þetta þyrfti ekki að vera
nema ómerkilegur skúr úr bárujárni, sem
tæpast þyrfti að kosta meira en t. d. kvistur
á húsi. Að eins, að þessir vesalingar ættu
einhvers staðar höfði sínu að að halla, og
fengju blífanlegan samastað, svo þeir þyrftu
ekki að vera á almannafæri.
Vjer efumst ekki um, að hver skynsamur
maður, sem les ofanskráðan greinarstúf.
muni sjá sjer fyrir bestu, að styrkja þessa
tillögu. Sjekkspír sagði: »í dag mjer, á
morgun þjer«, og rataðist honum þá satt
á munn. Það er tæplega hugsanlegt, að sva
vitlaus maður sje til með þessari þjóð, að
hann vilji ekki eitthvað til vinna, að þess-
ari plágu verði ljett af þjóðfjelaginu, þar
sem þetta líka er metnaðarmál, því bæði
Kínverjar og aðrar þjóðir myndu taka sjer
þessa íslensku framtakssemi til fyrirmyndar..
En þetta þarf að gerast fyrir 1930.
Virðingarfylst
H. C. Umbótasen.