Spegillinn - 21.04.1928, Síða 6
62
Spegillinn
8., III
Skýrsla
til stiórnar íþróttasamb. Spegilsins.
SFTIR skipun hinnar heiðruðu stjórn-
ar hefi jeg undanfarið verið að æfa
boxarana tvo, sem sýna áttu sig í
Bárunni páskadag og kjaftshöggvast um
drykkjarhornið það hið mikla, er enski box- |
arinn Sullivan sendi hingað. Aðal-æfing
fór fram á pálmasunnudag um messu-
tímann, en nú verð jeg, þótt leitt þyki
— eins og kóngurinn segir, þegar stjórn
beiðist Iausnar — að tilkynna það, sem
hjer segir: Einhvernveginn hafði svo at-
vikast, að Pusi hafði náð í hundaskamt
og líklega orðið hálffullur í 11. hring
eða umferð, því þá hálfdrap hann Krúsa,
svo sem effirfarandi Iæknisvottorð sýnir:
»Frons beygluð og ekki frítt við heila-
hristing, 7 tenuur og hálf betur slegnar
inn, nef brotið á kafla, 3 rif brotin, hægri
handleggur úr liði og vinstri kjálki sömu-
leiðis«.
Neyddist jeg til að koma Krúsa á spí-
tala til viðgerðar, og einnig Filippusi,
því þótt heita megi, að hann hafi sloppið
vel, þá er hann víða marinn og telur
læknir ekki all-ólíklegt, að hann sje nef-
brotinn, og glóðaraugu hefir hann svo
mörg og stór, að hann verður að halda
sig innan fjögurra veggja minst.
Þar sem áðurnefndir íþróttamenn ætl-
uðu að boxa undir vernd Spegilsins,
þykjast þeir eiga tilkall til þess, að hann
greiði leguna, sem, hvað Krúsa viðvíkur,
mun vart skemmri en til Jónsmessu, og
vil jeg því ráða hinni háu stjórn til, að
hleypa því í mál, því Pusi á eitthvað
til, og það má sanna, að hann braut
boxreglur Alþjóðabandíttalagsins að mun
— enda æstur af snafsinum. Hver bæti
brot á gólfi í Bárunni veit jeg ekki.
Til þess að gabba tilvonandi áhorf-
endur, mætti æfa þá Slagan og Kjálkfer
um bænadagana, þar eð þeir eru efni-
legastir þeirra, er nú eru óbrotnir, en
Föstudagslangakvöld mætti, eftir orrustu
milli þeirra, boxnefndin dæma, hvort ger-
legt sje, að þeir sýni sig opinberlega, og
verður þá tími á laugardaginn til að
auglýsa. Jeg hefi sjeð um, að þeir gangi
í nudd og sjeu vel smurðir með feiti
milli æfinga. Jeg hefi og skrifað Sullivan
um óhappið með Pusa, en þorði þó ekki
að telja öll meiðslin, og sló þeim því
saman i »fracture of the scull«, og vona,
að stjórnin nefni það sama nafni í brjefi
ConJJitL
ENDIIRA
Uncwndiilonalhi & PrrJ>cfuaIIv Quaranteci
Lindarpennar
og
blýantar
eru
besta tækifærisgjöfin
Verslunin
Björa Kristjánsson.
sínu til Mr. Sullivan’s, er hún skrifar
næst. Hiti í Pusa, við síðustu mælingu,
44,8.
Reykjavík, 1. april 1928, kl. 21,45.
Virðingarfylst
Gormur Glónefss
(boxmeistari Spegilsins).
E. S. — 2. apr., kl. 10,14.
Krúsi með hita 46,9 og óráð. Filippus
verður blindur á vinstra auga og er tví-
brotinn á nefi. Þrjár tennur Iausar. Við-
bein brotið. Hiti 27,5. G. G.
Heyr5t hefir
að Þingvallanefnd hafi í hyggju, að láta
gera afar-mikla sundhöll á Þingvöllum,
og leiða þangað heitan sjó í málmpíp-
um, alla leið frá Reykjanesi,