Spegillinn - 04.08.1928, Side 3
15, III
S p e g i 1 1 i n n
115
l?arke!I og lónatan koma bílnum yfir jökulsprungu.
4if .................................................................................................
Hvað gerði nú kennarastjettin, forsjón
uppeldismálanna, leiðtogi mentunarinnar,
vörður hugsjónafrelsins, þegar fávísir
ofsstækisseggir steittu hnefann móti and-
legu frelsi hennar? Hún lagði niður skott-
ið eins og barinn hundur og þagði. Jeg
hefi samið esperantiska orðabók. Flest-
öllum hefi jeg kent esperantó.
Jeg vakna ki. 8 á hverjum morgni og
byrja þá að lesa eða skrifa esperanto í
rúminu. Stundum les jeg Brjef tii Láru
spaldanna á melli og safna úr þeim öll-
um örðunum. Kl. 10 klæði jeg mig, geng
úti í eina klukkustund, iðka líkamsæfing-
ar I. P. Yoga og baða mig upp úr creol-
soda og chlor og baðtóbaki og allskon-
ar undursamlegum lyfjum. Klukkan 12
jet jeg og heid fræðandi fyrirlestra um
stjórnmál og manifestationir hins absol-
uta. Því næst fer jeg heim og les og skrifa
esperantó tii kl. 7. Þá fer jeg á rakara-
stofu og renni augum yfir dagsins poli-
tík. Að því loknu jet jeg. Eftir kvöldmat
les jeg og skrifa esperanto, heimsæki
kunningja mína og fræði þá um stjórn-
mál, esperantó, sálarfræði, dujspeki, há-
speki, guðspeki, heimspeki, stjörnuspek,}
bókmentir og tunglspeki og læt hugann
fljúgá á engiivængjum. Jeg hefi fullkomna
þekkingu á náttúru fólks og kann alveg
afbragðsvel að hegðe mjer. Stundum segi
jeg æfisögur mínar, mannkinssögur og
veraldarsögur, og gæði fólki á drauga-
sögum og bibliusögum og allskonar lyga-
sögum, eða hermi eftir sjera Bjarna og
Ólafi. í þvi er jeg afburða snillingur eins
og öllu öðru, sem jeg tek mjer fyrir hend-
ur. K1 1 legst jeg til hvílu og ligg and-
vaka til kl. 4 og held langar og snjallar
tölur á esperanto og umsný heimskunni
í speki. m vstekk jeg fram á gólf
og baða mig ha og lágt úr carbolvatni
on munnvatni, til þess að vinna bug á
óróleika holdsins. Seinni hluta nætur
upptendrast jeg af fossandi eldmóði, sem
lemur mig til að grípa penna og pappír
og uppbyrja eitt vísdómsþrungið skrífirí,
af því að innaní mjer hamast óviðjafn-
anlegur andi.guð eða djöfull, fyllandi minn
ótæmanlega heila af allskonar vitrunum
og inspirationum, sem þeyta pennanum
með 160 km. hraða eftir pappírnum í 3
klukkustundir. Jeg vakna kl. 8 að morgn-
inum og byrja þá að lesa eða skrifa
esperantó i rúminu. Sfuudum les jeg
Brjef til Láru spaldanna á milli og safna
úr þeim öllum orðunum o. s. frv.
Þorbergur Spegilsins Þórðarson.
w