Spegillinn - 04.08.1928, Síða 8
120
S p e g i 11 i n n
15., 111
Uiðbót uið Le5bókina.
Þar að auki var jeg að verða tals-
vert drykkfeldur sérstaklega á Egil og
aðra Gútemplaradrykki, (og svo vildi þá
annað slæðast með) en þar eð jeg er enn
meðlimur (hróðir) í ýmsum stúkum vildi
eg vera sjúr að skandalísera ekki eftir
1. þ. m.
Hér var sólskin fyrstu 4 dagana eftir
eg kom og fyrir taks veður til þess að
vera latur og móka. En í gær kom bless-
uð rigningin með krafti og vakti mig til
andlegra dáða. Auðvitað datt mér fyrst
í hug, kæru Páll og Sigurður eða Sigur-
páll í einu orði sagt, að skrifa ykkur
línu til þess að eitthvað yrði ætilegt í
næsta blaði.
Hjer er enginn sími og ekkert útvarp,
hingað kemur enginn, héðan sést ekkert
af heimsmenningunni svonefnda nema
2 símastaurar lengst niðurfrá og það
aðeins í besta sjónauka. Og síðan eg
varð þess var lít eg aldrei í sjónauka.
Það sem eg heíi aðallega haft fyrir
er að reyna að muna hvað hann heitir,
litli flokkurinn sem eg er i. Mig langar
semsé til að agitera dálítið eins og
Ólafur Thors og Hannes dýralæknir, en
eg sé engin ráð til þess fyr en eg man
hvað flokksfjandinn heitir. Menn eru hér
yfirleitt á móti Dönum og jafnvel Bols-
um líka þótt þeir glæptust á að kjósa
sýslumann í fyrra.
Og Jónasarmenn eru eins og halakliptir
hundar út af nýju tollunum, nýju em-
bættunum. ísafjarðargjöfinni, letigarðinum
o. fl. o. fl. Auk þess langar mig til að,
eða réttara sagt þurfti eg að finna Sig-
urð í bankanum þegar eg kem suður og
segja honum fréttir af góðum horfum,
því eg geri ráð fyrir að mér verði þá
orðið illt í bullunnf.
Eg þyrfti, sem sagt að agitera, Bravó!
nú mundi eg það, fyrir Frelsishernuml
Eg hætti strax þessu bréfí.
Jón Jónsson.
fT)e5ta unöur heimsins
ú 5uiöi 5iglinga.
^PEGILLINN hefir til þessa staðið
fremstur í röð að birta viðburði,
en brást bogalistin er hann kom
síðast út, vegna anna á myndagerð vorri.
Ætluðum vjer að birta lýsingu með mynd
af hinu mikla skipi »California«, sem er
stærsta verslunarskip Bandaríkjanna, 22
þús. smálesta, um 15 sinnum stærra en
»Goðafoss«, knúð með rafmagni, hefir
um 36 björgunarbáta og flytur því fjölda
farþega. En hjer sem í öðru setja Ame-
ríkumenn met og í siglingum hefir aldrei
annað eins spor til framfara verið stigið,
þar sem eftir sögn »Morgunblaðsins« 8.
apr. þ. á. Koinist skipið af með 9 —
níu — manna skipshöfn í stað 120. Mun
þar vera skipstjóri (liklega með punga-
prófi, þar sem ekki má búast við, að
hann hafi tíma til að mæla sól, tungl og
stjörnur og er auk þess ódýrari maður),
1 stýrimaður, 4 hásetar, til að stýra, þvo
þilfar og vera á verði, tveir menn í vjel
og einn kokkur. Eru þá komnir 9 og eiga
þeir að öllu leyti að annast hið mikla
skip. — Vjer sendum skeyti til New-
York til að spyrjast fyrir um þetta undur
og fenguin það svar, að þar sem ómögu-
legt væri að gera farþegum til hæfis,
yrðu þeir að sjá fyrir sjer sjálfir á ferð-
um, svo hvorki væri þjónustufólk nje
ræstingamenn hafðir á skipinu. »Að vísu«,
segir í skeytinu, »virðist örðugt að festa
skipið er það leggur að bryggju, en há-
setar eru fílefldir negrar og verða tveir,
ásamt stýrimanni, þá fram á, en hinir
tveir, ásamt skipstjóra, aftur á, en í lyft-
ingu verður við þau tækifæri annar vjela-
maður, til að blása með eimpípunni ef
þarf; hinn stjórnar vjelinni. Á hana er
borið þannig, að yfir hana er sprautað
Gargoil olíu með garðslöngu og nægir
því einn í vjel á vöku.
Verði árekstur og þurfi að láta þá 36
björgunarbáta á sjóinn, er svo til ætlast,
að það sje ekki ofverk 8—10 hundruð
farþega, enda má búast við betri aga og
minni hræðslu er þeim er fengið verk
til að hugsa um«.
Þannig segir í skeytinu, og mun þessi
nýbreytni eiga að styðja dósametisiðnað
Bandaríkjanna, þar sem kokkurinn einn
getur aðeins sint eldamennsku fyrir skips-
höfnina, en farþegar verða að búa sig
út með nesti, sem mest mun verða dósa-
matur. = Leyfi hefir skipatjóri til að fá
tvo kvenmenn til að ræsta versta sóða-
skapinn, en þó ekki nema á aðalhöfnum.
Er því hjer um geysimikinn sparnað að
ræða og ætti »Eimskip« og önnur skip
að taka þetta upp hjer til sparnaðar og
styrktar niðursuðuverksmiðjum landsins.
— Siðar munum vjer skýra frá sigling-
um þessa sjóferðaviðundurs.
Siglingafrœðingur Spegilsins.
c& ’óznaz- /oncJ.
Suo ridda þá með mjer og fleirum úr
„Fák“
um Framsóknar- og alþgðunnar lendur,
þars Ihalds-grip hvert er hið aumasta
kák
og Árni' í Múla berlœraður stendur. :,:
En heimskan og mannvonskan segja til
sín,
þær sveima þar um alla dali’ og bœi.
Þeir selja þar áfeng og afar-dýr vín
:,: og áhrifin þeir skatta sjer i lagi. :,:
En þau eru lönd heldur þegjandalig,
þar heyrast ekki af viti raddir neinar,
þvi Jónas hann talar þar einn við sjálfan
sig,
en sjera Tryggvi skilur hvað hann
meinar :,:
Z.
Allir,
sem hafa verslunarviðskifti
við Danmörku ættu að aug-
lýsa í Kongeriget Danmarks
Handels-Kalender.