Spegillinn - 11.10.1930, Qupperneq 5
18., V.
S p e g i 1 1 i n n
157
Kattafarganiö II.
"Hiiiiiimiiiiiiiiiiimiiimitimmiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii’ mmmmmimiimtiiminim«.iimiiiiiiiiiininiiniiiiiinniin.r.ininiimmmimi»Mn».uimuiiinmmmmiimmmmiinmiiiiimmmiiil»limmii
blaði voru. En auðvitað er henni vork-
un, ef betur er að gáð. Það var bænda-
kjötinu að kenna, að Einar skipherra
gerði vitlaust bestikk þegar hann tók
þýska togarann, og það var líka því
að kenna, að maðurinn frá Kleppi
lagðist svo freklega á niðursuðuna hjá
Knúti. Enginn er kominn til þess að
sjá fyrir endann á skaðabótakröfum
þeim, er þetta tvent kann að hafa í
för með sjer, og verða því allir að við-
urkenna, að ríkisstjórn Spegilsins hafi
farist viturlega, eins og hennar var von
og vísa, er hún gerði ráðstafanir til
þess, að slíkt slys þyrfti ekki að end-
urtaka sig, til stórskaða og skammar
landi og lýð.
Búfræðinc/ur Spefjilsins.
Það væri synd að segja annað en
að Spegiilinn fylgist með menningar-
straumum þeim, sem hafa geisað um
álfuna, ekki síst síðan friðurinn skall
á, 1918. Meðan menn hjer sem ann-
arsstaðar í friðsömum löndum, stundu
og grenjuðu undan ógnum ófriðarins,
var ekki nema eðlilegt, að alt sam-
kvæmislíí færi í kaldakol og hundinn,
og var því ærið að starfa fyrir endur-
reisnarmenn þjóðarinnar á því sviði,
þegar kyrra tók í lofti og ófriðaröl l-
urnar að lækka. Vjer höfum fengið
talmyndir, jazzmúsík og útvarp, og
erum meira að segja vel á vegi með að
fá þjóðleikshúskjallara, því það gildir
í leiklistinni sem á öðrum sviðum, að
fullkomnun næst ekki, nema byrjað sje
neðan frá. Þó fundum vjer sáran til
þess, að það var eitthvað sem vantaði,
til þess að samkvæmislíf vort væri fylli-
lega viðunandi, og eftir mörg heila- og
flöskubrot rann loks ljósið upp fyrir
oss: Það sem oss vantaði, var úrvals-
kvöld. Vjer minnumst þess, að þegar
vjer vorum í Californiu í síðustu utan-
för vorri voru þessi úrvalskvöld topp-
punkturinn af öllum elegans sam-
kvæmislífsins, og eins er það í London;
þar halda „the supper ten“, eins og
Englendingar kalla höfðingjana, slík
úrvalskvöld, og koma þangað ekki aðr-
jFramh. á bls.