Spegillinn


Spegillinn - 04.09.1942, Blaðsíða 2

Spegillinn - 04.09.1942, Blaðsíða 2
SPEGILLINN XVII. 16. niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiliriiihliiiiiiimiimniii) ................................................................................................. Fricgasta skegg heimsins, til- heyrandi hinum ágæta kvikmynda- leikara Clark Gable, hefur nú ver- i3 fellt, í tilefni af því, að eigand- inn gerðist óbreyttur soldáti í her Bandaríkjanna, en slíkum er bönn- uð þessi ginprýði. Morgunblað vort birtir fregn þessa og hefur hana í svörtum ramma á heims- viðburðasíðunni, í stað þess að hafa hana óinnrammaða á kven- síðunni, þar sem hún á heima. Sniðmeistarafélag Reykjavíkur heitir nýjasta félag hér í höfuð- borginni og heíur verið stofnað af tilskerum á klæði og feld. Eru það spár manna, að þetta muni verða sniðugasta félag landsins, að frátöldu iMáli og Menningu. Hitaveituborinn hefur verið í fullum gangi undanfarið, inni við Rauðará, og verið að leita að vatni — heitu eða köldu, segir Mogginn —- og virðist sem hvort- tveggja muni verða jai'n vel þegið. Sennilegast er því, að vatnið verði hálfvolgt, þegar þar að kemur. Bílastöðvar borgarinnar eru nú lokaðar klukkan niu að kvöldinu og' er látið i veðri vaka, að eftir þann tíma sé ekkert að gera og enga bíla að fá. A sömu íorsendum gætu flestar þeirra viðeigandi ver- ið lokaðar allan d&ginn. Amerískur herforingi, C. Bar- nes, sem er eiskonar verkfæraráðu- nautur stjórnarinnar, svipað og' Eylands hér, hefur látið svo um mælt, að hann hafi leynivopn í pckahorninu, sem Hitler muni verða alveg steinhissa á, þegar hann fær að sjá það. Vér höfum hlerað á ólíkleg-ustu stöðum, að leynivopn það, er, hér um ræðir, muni vera haglabyssa og viljum vér þá vel trúa, að hai'ðstjórinn verði hissa og vel það. Gjaldeyrismfnd. hefur nú aug- lýst, að bílainnflutningur til ein- staklinga sé stöðvaður. Er slíkt röggsamleg ráðstöfun, einkum ef þess er gætt, að skipaleysið var 'þegar orðið á undan nefndinni að stöðva þennan innflutning. Auk þess eru þeir einstaklingar orðnir fáir, sem ekki eiga bíl; virðist oss a5 minnsta kosti, ef vér þurfum að fara yfir þvera götu. Ríkisstjórn vor hefur nú sama sem keypt nýtt strandferðaskip, sem ekki er nema fimm ára g'amalt J og er slíkt út af fyrir sig' ótrúleg't. Ennfremur er það grunsamlegt, að Venzúelumenn, sem selja grip- inn, vilji láta hann fyrir sama verð, kominn til Nevv York, eins og' þeim hefur boðizt í hann heima hjá sér í Caracas, og bendir á, að þeim sé þægð í að fá skipið sem lengst burtu og sem fyrst. Ekki er enn farið að skíra skipið, en von- andi verður hallazt að þeirri til- lögu vorri að það verði látið heita Nýja Fornsalan. Tíminn segir það eftir „Reyk- víking“ nokkrum, að þeir Aki Jakobsson og Jón Pálmason hafi verið „illmenni í liði brennu- manna“ i útvarpsumræðunum sælu, hérna fyrir nokkru. Mega hinir aðrir brennumenn þykjast góðu bættir að vera þannig' óbeint kallaðir góðmenni, en þetta bendir til þess, að Framsókn muni ekki vera eins leitt og hún lætur með tilliti til hugsanlegrar samvinnu við Olaf sinn. , Skipi með um 1000 tonn af hita- veituefni hefur nú verið sökkt á leiðinni frá Ameríku hingað. Ekki er enn vitað, hvort þetta veldur miklum töfum á framkvæmd verksins, en trúaðir menn sjá í þessu huggun til handa Fram- sóknarmönnum 5 leiðindum þeirra út af afdrifum kjördæmamálsins. Nýjum bíl var fyrir skömmu stolið úr harðlæstu porti, skömmu áður en honum skyldi úthlutað ein- hverjum verðugum. Var honum ekið upp að Árbæ, en þar þraut einkasölubenzínið; annars var hann auðvitað á leið upp að Reykjum, hinum fyrirheitna stað allra bílaþjófa. Rrunnur einn í Vestmannaeyj- um, sem hingað til hefur verið botnlaus, hefur nú verið botnaður og Iagðar í hann sjóleiðslui', en það þætti nú annars galili á venjulegum brunnum á landjörð- inni. Er þá einni botnleysunni færra á landinu og má slíkt gott heita á þeim tímum, sem nú lifum vér. TJtkomubanninu hefur nú verið létt af kommablaði Breta, Daily Worker. Bendir þessi töf, saman- boi'ið við Þjóðviljann, til þess, að hér sé um kröftugra blað að ræða. H EB.IL/’ tfwdL kwiVC" cr I?afiS ógókvm HÁSKÓLA ISLANDS pjéi7«xÉcirinn byggir upp JanJu) 'Sm. og dáHpisJunnu verkm ‘ijM.fiturteom ■*- - r^n-ri v QI6URÐAR 0MF5>0NAR 138

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.