Spegillinn


Spegillinn - 04.09.1942, Qupperneq 8

Spegillinn - 04.09.1942, Qupperneq 8
SPEGILLINN XVII. 16. Samtal á förnum vegi Hvað er þetta sem mér sýnist, frú Moðbáss, þér eruð þó ekki búin að fá einn bílinn enn? Nei, þetta er nú sá gamli, síðan í júní, en það er ekki von, að þér þekkið hann aftur. Ég skal nefnilega segja yður, það kom dálítið fyrir hann. En, hvað það gat verið leiðinlegt. Þetta var svo fallegur bíll, sem allir öfunduðu yður af. Þeir geta hætt því úr þessu. Nú er hann ekki betri en hver sardínudós upp úr öskutunnu. En hvað hefur komið fyrir, frú Moðbáss? > 0, ekki annað en það, að ég var búin að læra á hann og meira að segja taka próf hjá Clausen ráðherra — og svo ætl- aði ég nú heldur að keyra heim í dag og var satt að segja að hugsa um að taka meira prófið, til þess að slá vinkonurnar út, sem urðu á und,an mér að verða bílstjórar og um þetta var ég að hugsa og svo um hattinn, sem ég ætlaði að kaupa til að hefna mín á honum Moðbáss, og haldið þér þá ekki að ég rekist á ameríkanska leifturtík. Árangrinum þarf ég ekki að lýsa, því hann sjáið þér. Já, hann fer ekki jafngóður í einkasöluna, þessi! Þér meinið, að ég ætti að skila honum aftur í einkasöluna, eins og hann-Gísli? Já, þér segið nokkuð. Þetta ættuð þér að fá sjúss fyrir, frú Sunnefja, en að mér skyldi ekki sjálfri detta það í hug, en það er nú svona, ég er ekki búin að ná mér enn eftir sjokkið. Það er bara verst, að ég treysti mér ekki til að koma honum niður í einkasölu og enginn fæst til að draga hann, enda er það ekki hægt. Þér skuluð bara heimta, að herstjórnin sendi bíl með hívert á, til þess að taka hann héðan. Þér getið ekki verið þekktar fyrir að láta nokkurn mann sjá hann hérna við húsið. Það er nokkuð til í því. En sannast að segja er ég nú bara fegin, að trogið skyldi fara svona, því, sjáið þér til: Þetta var alls ekki bíll við mitt hæfi og þá á ég heimtingu á að fá annan betri, eins og hann Gísli. Hvað meinið þér, að hann hafi ekki verið við yðar hæfi? Jú, hann var alls ekki nógu fínn. Mér fannst það nú allt af sjálfri, og svo um daginn fékk ég sönnunina. Haldið þér ekki, að hann hafi staðið inni í porti hjá honum Egli, við hlið- ina á bílnum hans Vilhjálms Þórs, og unglingurinn, sem þekk- ir þar á hengilásinn, tekur Vilhjálms bíl en lætur minn kyrr- ann. Ég veit ekki, hvað þér viljið hafa það greinilegra. Varð ekki maðurinn yðar ekki afskaplega sár, þegar bíll- inn fór svona? Hann veit nú ekki um það ennþá, og hann má verða eins sár og hann vill, því ég er svo heppin að vita dálítið um hann, sem ætti að minnsta kosti að nægja fyrir bíl og pels og ryk- sugu. Annars er það nú óþarfi að vera að skila troginu í einka- söluna, þó að þér fáið nýjan. Heldur myndi ég í yðar sporum selja hann fyrir svo sem átján þúsund, það mun vera dags- prísinn á svona beyglum, og fá svo þann nýja fyrir 14 — sem Moðbáss fær að borga, en auðvitað eigið þér hitt sjálfar í vasapeninga. Blessaðar komið þér heldur inn, frú Sunnefja, ég held ég eigi einhverja lögg eftir af púrtvíninu, sem hann Mummi litli fékk í undanþágu, þegar hann var fermdur. Æ, gerið þér svo Skál! Skál! 144

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.