Spegillinn - 01.08.1947, Side 11

Spegillinn - 01.08.1947, Side 11
SPEGILLINN 137 Mynd: Bína í brekkunni. mig, þar sem ég er farinn að gera mér vonir um, að RM birti einhverntíma einhverja úrvals smásögu eftir mig og láti einhvern úrvals listamann myndskreyta hana duglega. Mér þykir svo gaman að myndskreytingu og álít að mér væri mikill heiður sýndur með slíku tiltæki. En samt ætla ég ekki að fjölyrða meira um sjálfan mig og þessa veiku von mína um viðurkenningu, en snúa mér aftur að hjónunum, degi þeirra og vegi. Frú Hallbjörgu þykir líka ákaflega gaman að myndum, hún er svo iistræn og reynir að fylgja öllum stefnum, eins og efni standa til. Þess vegna varð hún svo einstaklega glöð þegar hún frétti um myndirnar, sem þjóðinni voru færðar að gjöf. — Nú fáum við að sjá myndir eftir frægan mann, sagði hún við mann sinn. — Ætli það verði nú af því fyrst um sinn, anzaði Hálfdán. — Það á að varðveita þær í háskólabyggingunni, því allt er svo vel varðveitt, sem þjóðinni áskotnast. Svo verða þær máske látnar í Listasafnið, sem er allstaðar og hvergi. — Ég gæti þá kannske fengið eitthvað til varðveizlu, ef ég næ réttum samböndum, sagði Hallbjörg. Líf hjónanna var yfirleitt friðsælt og rólegt. Hina fróð- leiksfúsu konu langaði einn daginn til þess að kynna sér siði og háttu slafneskumælandi þjóða, sem hún hafði heyrt getið um í útvarpinu, en næsta dag fóru hjónin á Landbúnaðar- sýninguna, eins og hálf þjóðin gerði. —Það er ekki slorlegt að fást við búskap nú á tímum, með öllum þessum fínu tækjum, sagði frúin. — Hann Högni faðir minn í Dalverpi hefði getað orðið meiri sveitarhöfðingi en hann var, ef hann hefði haft svona nýsköpunaráhöld, og þá um leið fengið að gegna fleiri trún- aðarstörfum fyrir sveitina, en þetta með hundana. -— Þessi tæki voru bara til sýnis þarna og eru ófáanleg, nema með leyfum, sem eru ófáanleg fyrr en batnar í ári með nýjum innstæðum. — Er þá verið að plata sveitamanninn ? Og ég sem hélt að þetta væri nýsköpun. — Sumt á sýningunni var nú ósvikinn landbúnaður, svo sem eins og nautin, og ekki sagði Páll annað en staðreyndir um þau. — Oj. Minnstu nú ekki á það hérna inni, Hálfdán minn. Svona bar margt á góma. Eitt kvöld sátu hjónin við blaðalestur og ræddu um það, sem þau lásu, því Hálfdán var óvenjulega rólegur, eins og allt væri í lagi hjá honum, sem hann hélt að væri. — Þeir hafa verið að gera ýmsar uppgötvanir á þessum þingum, sem nú hafa staðið yfir, sagði frúin. — Hérna stendur að I. S. 1. hafi nú komið auga á, að sárfátt æsku- fólk stundi íþróttir, og að ekki sé hollt að- hugsa eingöngu um stjörnurnar og metaslátt þeirra. Svo hafi þeir mörgu, sem engar íþróttir stunda og ekki eru stjörnur, ekki annað fyrir stafni en að stunda óreglu, en vitanlega er aldrei óregla á stjörnunum. Þetta kalla ég nú aðkallandi vandamál. — Til þess eru víst þessi þing að koma auga á vandamálin, en svo þarf sennilega að kalla önnur saman til þess að finna 'úrbæturnar, sagði Hálfdán. — Það fólk sem getur ekki orðið nógu góðar stjörnur til þess að fara utan til landkynningar, verður þá að snúa sér að öðru nærtækara. En sjáðu nú til. Hérna rekst ég á aðra uppgötvun, sem ekki er síður aðkall- andi vandamál. Einhverjir skólastjórar hafa haldið þing og fundið út, að íslenzkan sé annað og meira en punktar og kommur, sem þeir hafi einkum reynt að troða í nemendur sína undanfarin ár, með þeim árangri, að nú séu orðin sjálf alveg að hverfa úr málinu. — Ósköp eru að heyra þetta. Hvar ætli þetta lendi? spurði frúin andaktug. — Ja, ef þeir halda svona áfram, þá verður alls ekki heil brú eftir í menningunni okkar. Og valútan uppurin. — Þvílíkt og1 annað eins. Aldrei er ein báran stök, stendur einhversstaðar. Hálfdán kom heim eitt kvöld og var mjög æstur. — Hvað hefur nú hent þig, Hálfdán minn? spurði frúin. — Kjallarinn! Það er allt að eyðileggjast í kjallaranum! — Ekki getur þó sjór verið að ganga inn í hann. Okkar hús stendur töluvert hærra en Pósthúsið. — Sjórinn er svo sem ekki verstur. En ég á við það sem er í pokanum vinstra megin í vestri ganginum í norðurálm- unni. Það geta þeir nú ekki lengur séð í friði. # — Á.ttu við skótauið sem við höfum safnað okkur til hörðu áranna? spurði Hallbjörg. — Það er í suðurálmunni, manneskja. Ég á við krónurnar og túkallana, sem ég var svo öruggur með. Þeir ætla nú að ógilda þetta allt saman. Skilurðu það? — Hamingjan góða! — Það er enginn barnaleikur að tryggja efnalegt sjálf- stæði sitt nú á dögum. — Þú finnur sjálfsagt eitthvert ráð eins og endranær, sagði frúin einstaklega mildum og liuggandi málrómi. — Ég veit ekki. Það er erfitt að finna alltaf ný og ný ráð, þegar öll þessi ráð eru sett manni til falls og hindrunar. — Þú meinar ráðin, sem taka af þér ráðin, sagði frúin. Bob á beygjunni.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.