Spegillinn - 01.08.1947, Side 18

Spegillinn - 01.08.1947, Side 18
14-4 SPEGILLINN „Ég ætti ekki annað eftir. Þetta er ailt þér að kenna, kelli mín. Ef þú ekki hefðir þennan leiða vana að þurfa að hirða upp af götu þinni flökkuketti og hunda og Austurlandabúa og prakka þeim upp á vini þína, værum við úti á sjó í dag, á leiðinni í almennilegt lofts- lag. I næsta sinn sem þú verður altekin af náunganskærleika, ættirðu heidur að læsa þig inni hjá þér og fleygja lyklinum út um glugga“. En Tobba var alls ekki að hlusta á mig. Hún hafði bæði augun og hug- ann á kökunni. „Ef þú vildir bara borða hana og taka svo nokkra magadropa á eftir .. .“ vogaði hún sér að segja. En ég leit svo einbeittlega á hana, að hún hafði þá sómatilfinningu að roðna. „Honum þykir svo gaman að búa þær til“, sagði hún, „og hann var alveg ljómandi að gleði þegar hann kom með þær. Hann kann aðra tegund, sem hann er að búa til núna — úr muldum baunum eða einhverju þessháttar. Hlust- aðu bara!“ Ég hlustaði. Utan úr eldhúsinu heyrðust hamarshögg og svo rödd Túfiks, sem var að fara með eitthvert sorgarlag í hálfum hljóðum. „Hann segir, að þetta sé söngur um dali Líbanons", sagði Tobba vesældarlega. „Borðaðu nú helminginn af henni, Lísa mín, ég skal borða hinn helminginn". Ég svaraði með því að taka diskinn og bera hann inn í baðherbergið. Hér dugði ekki annað en láta verkin tala, enda var Tobba ekki eins einbeitt og hún var vön, eða réttara sagt, sýndi það sig í allri þess- ari Túfiks-sögu, að hún var ekkert annað en strá í vindi, ef í hart fór. Hún gat sér til um tilgang minn og elti mig að baðherbergis- dyrunum. „Skildu eftir ofurlitla mola á diskinum", sagði hún lágt. „Það lítur eðlilegar út. En fleygðu steikta brauðinu um leið“. „Tobba!“ sagði ég og var ströng í rómnum, „þetta er hræsni, og eins og þú veizt er hún lítið betri en lýgi. Þetta er fyrsta sporið niður á við. Ég finn það á mér, að þessi drengur er farinn að spilla okkur. Við verður að losna við hann með einhverju rnóti". „Eins og til dæmis hvernig?“ spurði hún kaldhæðnislega. „Senda hann heim til sín“, svaraði ég, ósveigjanleg. „Hann á alls ekki hér heima,. og hann er ekki vanur neinu, sem gengur hraðar en úlfaldi. Hann kann ekkert verk — fremur en aðrir landar hans. Hann er úr landi, þar sem fólk getur étið mat eins og kökurnar þarna, af því að það hefur ekki annað að gera en melta“. Ég hafði á réttu að standa, og það vissi Tobba. Jafnvel Túfik féllst á þetta, þegar við nefndum það við hann. Hann glennti greipar að Austurlanda sið og yppti öxlum. „Ef móðir mín heldur það sé bezt“, sagði hann lágt. „í mí-nu eigin landi er Túfik þekktur — ég sel knipplingana, sem systir mín býr til. Ég drekk vín — ekki vatn. Maginn minn -— ég get ekki étið í þessari Ameríku. En — ég á enga peninga". „Við skulum útvega þér peninga“, svaraði Tobba hægt. En þú verður að lofa einu, Túfik. Þú mátt ekki verða Múhameðstrúarmaður". „Ég dey heldur", svaraði hann hreystilega. „Og svo var annað, Túfik — það er dálítið persónulegt, en ég vil, að þú lofir mér því. Þú ert ekki nema unglingur, en þegar þú ert orðinn maður ...“. Hér stanzaði Tobba og leit á mig, sér til full- tingis. „Tobba á við, að þá megirðu ekki eiga nema eina konu, Túfik. Við ætlum ekki að fara að borga undir þig til þess þú farir að setja upp kvennabúr. Við erum eindregið andvígar ... öllu svoleiðis". „Túfik á ekki nema eina konu“, sagði hann. „Mín þjóð á ekki nema eina konu. Fyrsta barnið mitt á að heita Tobba, næsta Lísa og þriðja Agga. Svo kalla ég eitt Kalla frænda og eitt Hönnu. Til þess að gleyma ekki Ameríku. Agga varð hálf hvumsa, þegar hún heyrði, hvað við höfðum gert, en eftir að hafa borðað eina köku úr muldum baunum og sykri, og látið Túfik herfa á sig gera það, játaði hún, að svona væri ef til vill bezt að fara að. Um kvöldið fór Túfik með fötin sín í pressun til lítils skraddara, sem gerði við fyrir Tobbu, en á meðan fórum við allar þrjár fram í eldhús, til þess að reyna að laga þar eitthvað til. Þar var hræðileg aðkoma ■— mél og brunnin feiti flóði um allt, hver panna óhrein, fötin úti um allt og hálfreykt sígaretta í sykurdollunni. En eitt var sem hrærði huga okkar allra: Hann hafði fundið mynd af okkur öllum þremur og búið sér til einskonar altari með því að setja hana á hilluna, fyrir framan klukkuna og hafði íaðað blómum kring um myndina, í glösum. HALLDÓR PÉTURSSON og TRYGGVI MAGNÚSSÖN Smáragöíu 14 . Reykjavllc . Sími 2702 (kl 12-13 dagl.). Argangurinn er 12 lölublöð - um 240 bls. - Askritíaverð': kr. 30,00 á ári. Einsiök ibl. kr. 4,00 . Áskriífir greiðisl fyfirfram. - Árifun: SPEGILLINN, Pósfhólf 594, Reykjavik - Blaðið er prenfað í ísáfoldarprenfjmiðiu h.f. Meðan við vorum að horfa á myndina og Agga var við vaskinn að setja vatn í blómaglösin — því hafði Túfik gleymt -— kom nágranni Tobbu, gamall piparkarl, sem bjó ó hæðinni fyrir neðan, og barði að dyrum, bakatil. Tobba opnaði. „Humm!“ sagði nágranninn. „Er hann farinn?“ „Er hver farinn?“ „Þessi sýrlenzki þjófur yðar“. Tobba varð stíf eins og kerti. „Kannske vilduð þér vera svo góður að gefa skýringu .. .“. „Kannske vilduð þér þá skýra, hvað þér hafið gert við blómin mín. Þér ættuð heldur að rækta blóm handa yður sjálf“. Tobba var alveg agndofa, og ég líka. En það var Agga, sem bjargaði sóma okkar. Hún skellti lokinu á teketilinn og smellti honum svo á vélina, svo að glumdi í. „Ef þér eigið við, að við höfum hér einhver blóm frá yður ...“. „Já, ætli ekki það. Eins og eldakonan mín hafi ekki séð sýrlenzka þjófinn stela þeim úr kassanum, sem er úti á brunastiganum“. „Þá viljið þér kannslce vera svo góður að leita að þeim hér í íbúð- inni, og það vandlega, svo að þér getið séð, hvort þau eru hér“. Við Tobba vorum með öndina í hálsinum. Það var ekki fyrr en komumaður hafði leitað af sér allan grun í íbúðinni, að við áttuðum okkur. Teketillinn sauð á vélinni og nú lagði frá honum ilm, sem við könnuðumst við. Agga tók hann ofan og lyfti lokinu. Þar voru blómin, soðin í graut. „Heim til Sýrlands með strákinn!“ sagði Tobba og horfði á þessar sorglegu leifar af blómunum. „Hann gerði þetta af kærleika til okkar, svo að við megum ekki skamma hann fyrir það. En við höfum okkar ódauðlegu sálir að sjá um . ..“. Næsta morgun skeði tvennt. Við gáfum Túfik 120 dali, til þess að kaupa sér farveðil til Sýi'lands og greiða fæði sitt. Og Tobba fékk bréf frá Hönnu: — Kæra ungfrú Tobba! Ég heyri, að þér havið tartarann enþá hjá iður — eða eins og mágur minn orðar það: hann hevur iður. Ég er reiðu- búinn til að halda minn hluta af samningnum, ef þér gerið slíkt hið sama. Iðar Hanna. P.S. Ég er búin að læra eitt nítt sallat — mjög' Ijúvfengt. H. Framh.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.