Spegillinn - 01.08.1947, Qupperneq 20
XXII. B. BPEGILLINN
ISLAND í MYNÐUM
Ný útgáfa af þessari bók er nú að koma út. Allar myndirnar eru nýjar og prentaðar með nýjum mynda-
mótum. Formálinn er eftir Pálina Hannesson, að mestu leyti saini formáli og var fvrir 1. útgáfu, en með
dálitlum breytingum, vegna breyttra tíma.
Formálinn er nú þýddur bæði á ensku og dönsku, og undir öllum myndum eru skýringar á íslenzku,
ensku og dönsku.
Framan við bókma er litmynd af Heklu gjósandi, prentuð m'eð fjórum litum.
Bókin er öll bundin í mjúkt skinnlíkisband, gylt framan á spjaldið.
Island í myndum hefur á undanförnum árum borið sanna og lifandi- þekkingu á Islandi og íslenzku
þjóðinni um öll lönd jarðar, og orðið landinu til meira gagns en nokkurn óiar fyrir.
Sendið þessa bók til vina ykkar og kunningja erlendis, og hafið hana við höndina, ef góðan gest ber
að garði.
Fyrri upplög bókarinnar liafa selst upp, áður en við var litið. Enn er upplág mjög lítið, vegna þess, bve
erfitt er um pappír. Þess vegna verður bókin ekki fyrst um sinn setl í umboðssölu til bóksala úti um land,
heldur aðeins seld gegn staðgreiðslu.
Bókaverzlun Isafoldar tekur á móti pöntunum, og hún tekur líka að sér fyrir yður að senda bókina
bvert sem er, hér og erlendis.
Isafoldarprentsmiðja h.f.