Spegillinn - 01.07.1955, Blaðsíða 16

Spegillinn - 01.07.1955, Blaðsíða 16
16D SPEEILLINN 73 stunda samn- ingafundur. HANN reyndist langur síðasti samningaf u nduri n n j farmannadei'lunni, 73 klst. sátu samningamenn á fund uir> án þess að fá taekifæri til þess að ieggja sig. Þjóðhátíðarþankar 17. júní rann upp eins og fífill í túni, og vér gerðum oss dagamun eins og venjulega. Þremur skrúðgöngum var hleypt af stokkunum og komu þær saman á Austurvelli að lokinni dauðyflislegri göngu um stræti borgarinnar. Þar talaði Ólaf- ur Thors, og vonuðu þá sumir, að hann gerði grein fyrir síðustu Lundúnaferð sinni, sem nokkur leynd hvílir yfir, og jafnvel getsakir um, að ferðalagið Iiafi ekki verið eins bráðnauðsynlegt og Stjórnin vill vera láta. En Ólafur átti eftir að skamma verkalýðinn dálítið síðan í vor, þegar liann strækaði, og notaði þetta einstæða tækifæri til þess að koma skömmunum á framfæri. Fjórar gamlar konur klöpp- uðu fyrir Ólafi, en þær liættu mjög fljótlega, þegar engir fleiri tóku þátt í klappinu. Síðan kom Asgeir, sæll og blómlegur eftir Noregsreisuna, og lagði blómsveiginn á stéttina hjá Jóni Sigurðssyni, þá koín Fjallkonan, sem var nú reyndar bara liún Gugga Þorbjarnar, og ávarpaði lýðinn. Avarpið var nú reyndar hara flatrímað Ijóð, sem Tómas dundaði við að raða saman aðfaranótt þess 17., og hefur vonandi fengið sæmilega umbun frá bæ og ríki. Auk þessa var svo messað eins og venjulega. Þá fór íþróttamót fram á venjulegmn stað og tíma, og sömuleiðis útiskemmtun á Arnarhóli. í restina var svo dansað á þremur götuhornum eins og venjulega. Yfirleitt var þessi 17. júní nákvæmlega eins og kollegar hans undanfarin 11. ár, síðan vér losuðum oss til fulls úr dönsku hnappheldunni. Og af því að nú er alltaf verið að tala um sparnað hjá bæ og ríki, dettur oss í hug, hvort ekki væri heppilegra, upp á kostnaðinn að gera, að taka hátíðarhöldin upp á plötu eða stálþráð, og spila það svo bara í útvarpið þann 17. júní ár hvert. Upp- takan yrði auðvitað að vera hárnákvæm, t. d. þyrfti hin áhrifaríka þögn, sem varð hjá Guggu Þorbjarnar þegar hún flutti fjallkonuávarpið, að koma greinilega fram á plötunni (eða þræðinum). I annan stað mætti svo svindla dálítið á þessu, þannig að magna þá liði, sem eru helzt til daufir, eins og t. d. klappið fyrir Ólafi Thórs. Vitanlega væri ómögulegt að láta þessar fjórar kerlingar einar um allt þjóðhátíðarklapp um aldur og ævi, en ef engir fullorðnir fengjust til að klappa, mætti fá afbrigðileg börn úr Mela- skólanum til þess. Maður hvíslar bara að þeim: Klappa saman lófunum, reka féð úr móanum, og þá klappa krakk- arnir eins og þau eigi lífið að leysa. Og á stálþræði eða plötu heyrist ekki, livort það er fullorðið fólk eða afbrigði-

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.