Spegillinn - 01.02.1959, Blaðsíða 8

Spegillinn - 01.02.1959, Blaðsíða 8
32 SPEGILLINN nefnd til að gefa Norðmönnum Ingólf, sagði ég, til þess að sleppa frá vísitölunni með einhverju móti. — Hann Ingólf? Hver verðxrr þá aðalmaðurinn á Hellu og yfir- ráðherra hjá stjórninni okkar? spurði rakarinn minn steinhissa. — Þú misskilur þetta, sagði ég. — Við förum nú ekki að fleygja þeim Ingólfi í kjaftinn á frændum vorum. — Það er hann Ingólfur sálugi Arnarbur, sem ég meina . — Nú, það var fyrir sig, sagði rakarinn minn, og honum létti sýnilega að missa ekki góðan kúnna út úr landinu. — Það var vitið meira, og í rauninni ekki nema sanngjarnt, þegar þeir eru nú búnir að vera svo almennilegir að gefa okkur hann Snorra, sem núverandi kóngur þeirra rangfeðr- aði í Reykholti forðum. Við skul- um bara vona, að þeir hafi eitt- hvað stabílla efni í Ingólfi, því mér er fortalið, að Snorri skjálfi eins og hrísla, hvenær sem hreyfir vind þarna uppfrá. —Já, þeir ku ætla að steypa hann úr eintómum fimmeyringum, sem nú eru okkar harðasti gjald- eyrir, sagði ég. — Mér finnst það nú bara svona og svona fyrir Norðmennina að fá svona gjöf, sagði rakarinn minn og varð hugsi. — Þeir hljóta að telja Ingólf einskonar landráðamann eða að minnsta kosti strokumann, að hafa stungið af úr landinu, þegar verst gegndi. — Þetta er hinn mesti misskiln- ingur hjá þér, sagði ég. — Ekki ber á því, að við misvirðum það mikið við Richard Beck þó hann færi til Ameríku. Sanni nær að öllum þyki það vel tilvinnandi að birta jafnvel um hann lofgreinar öðru hverju, fyrir að halda sig á vestur- hálfkúlunni. Eins er afstaða Norð- manna til Ingólfs; þeir hefðu varla viljað fá hann til landsins aftur, til þess að drepa fyrir sér fleiri jarlssyni en hann var búinn að. — Ég var að lesa í góðu blaði, sagði rakarinn minn, og var nú orðinn eins og ofurlítið hressari í bragði, — að Kaninn sé búinn að finna það út með geimskotunum sínmn, að jörðin sé alls ekki eins og kúla eða epli í laginu, heldur miklu frekar eins og pera, en þó var ekki neitt nefnt, hvað margra kerta pera, sem mér finnst þó, að hefði átt að fylgja upplýsingunum. — Blessaður vertu ekki að leggja það á minnið, sagði ég. — Þú skalt sanna til, að áður en vikan er lið- in, koma kommarnir og sanna, að hún sé miklu líkari 2. flokks ein- okunarkartöflu á 85 aura kílóið. — Þeim þýðir bara ekkert að sanna það, því þá kemur Æk og segir, að þetta sé ekki annað en grobb og áróður. En veiztu það, að ég var að klippa hann Jón Leifs í gær? — Var það nokkuð merkilegra en vant er? — Jú, það var að því leyti merki- legt, að hann hafði svarið að láta ekki skera hér sitt fyrr en fullur sigur væri imninn á Kananum. Og þegar ég var búinn að raka af honum, sýndi hann mér tékkinn, sem hann fékk frá æðsta manni hersins. — Sá hefur víst ekki verið neinn hégómi? — Ég tók nú ekki eftir sjálfri upphæðinni, en þetta var allra fallegasti tékkur, og mátti líka vera það fyrir hálfan Moggadálk af rétt- indum, sem hann afsalaði fyrir hann; þar á meðal lofaði hann að hætta að höfða eitt mál á dag, eins og hann hefur gert undanfarið ár. En mér fannst bara hárið ekkert líkt því sem það væri búið að vaxa í sjö ár. — Það er ekkert undarlegt. Þú sagðir, að hann hefði ekki l^tið skera það, allan þennan tíma, en þar fyrir er ekkert því til fyrir- stöðu, að hann léti klippa það, eins og aðrir menn, og það hefur hann líka vafalaust gert . — Þarna kemur það! Ekki gat mér dottið þetta í hug hjálparlaust. En svona geta þessir miklu mála- fylgjumenn verið klókir og veitir reyndar ekki af. En þegar ég var Þetta er miskunnarlaus dómur hjá Jóhanni Hafstein yfir Frið- jóni. að hengja hann þannig upp á staur sem tákn um vitlaus kosningalög, sem Sjálfstæðis- menn hafá sjálfir búið til.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.