Spegillinn - 01.02.1959, Blaðsíða 15

Spegillinn - 01.02.1959, Blaðsíða 15
SPEGILLINN 39 h re iýlnjiUþáttut Hinir vísu landsfeður vorir í kristnum dómi hafa komið fram með þá hugmynd að vér komum oss upp biskupum tveim, Skál- holtsbiskupi í Reykjavík og Hóla- biskupi á Akureyri, og mun þetta vera einn þáttur í þeirri virðingar- verðu viðleitni til að koma á jafn- vægi í byggð landsins. Margir munu þó vera þeirrar skoðunar að fullkomnara jafnvægi næðist með því að hafa Skálholtsbiskupinn á Akureyri, en Hólabiskupinn í Reykjavík. En fari svo að þessi hugmynd komist í framkvæmd, þarf ekki að efast um að Vestfirðingar og Aust- fjarðalýðurinn rísi upp og heimti sína biskupa, sem ekki virðist held- ur ósanngjörn krafa. Þá sýnist fara vel á því að Vestfirðingar fengju sinn biskup staðsettan t. d. í Trékyllisvík á Ströndum, og nefndist sá Tré- kyllisbiskup eða Hermannsbiskup. Austfirðingar fengju sinn biskup þá aftur á móti staðsettan, segjum í Loðmundarfirði og gæti sá nefnst Loðmundarbiskup eða kannski Vallanessbiskup. En þá fyrst væri fullkomnu jafn- að fýra á mig, dobla ég bara taxt- ann, og venjulega verða þeir svo fegnir að sleppa við frekari eftir- mál, að þeir borga . . . ja, eins og skot. Ha, ha! Og hinn gamli afkomandi Hippókratesar hló hjart- anlega að þessari léttu vittíhið sinni og kollegarnir tóku undir. Bar öllum saman um, að þetta hefði verið langskemmtilegasta læknaþing, sem þeir hefðu nokk- urntíma sótt — en það þarf nú reyndar ekki að segja svo ýkja- mikið. væri náð ef biskup væri skipaður einhversstaðar á miðhálendi lands- ins, segjum t. d. í Kerlingafjöllum og gæti sá borið heitið Kerlingar- fjallabiskup eða þá Háyfirkerling- arfjallabiskup, eða, ef mönnum þætti fara betur Kerlingarháfjalla- biskup. Nema horfið yrði að því ráði að láta hann sitja í Ödáða- hrauni og kalla hann Ódáðabiskup. Vitanlega yrði hann yfir öllum hinum. Ef klerklærðir hliðruðu sér hjá að sækja um stöðuna, sök- um fjarlægðar frá hámenningunni og erfiðleika á að komast þangað með „Listumlandið'*, sýndist engin fjarstæða að skipa í embættið ein- hvern uppgjafarframsóknarbóndá eða eldri krata. Vænti ég að þessar tillögur mæl- ist vel fyrir í dreifbýÍinu og verði teknar alvarlega til athugunar í hákirk j uráðinu. DreifbýÍismaðúr. ------00O00------ — Ég hef dansinn í blóðinu, sagði ung stúlka við vinkonu sína. — Þá hefurðu víst eitthvað trega blóð- rás, svaraði vinkonan, — xir því hann er ekki kominn niður í fæturna ennþá. Maðurinn hringdi dyrabjöllunni, og til dyra kom glæsileg, ljóshærð kona. — Gæti ég fengið að tala við manninn yðar? — Því miður er hann í verzlunarferð og kemur ekki fyrr en eftir hálfan mánuð. — Það er allt í lagi, ég get beðið. Bíóstjórinn var að ráða sér dyravörð. — Og hvað munduð þér gera ef eldur kæmi upp í húsinu? — Það er engin hætta — ég mundi bjarga mér, svaraði umsækjandinn. UiHlanfaniu daga og vikur ipfir gengið um bæinn sterkur rðrómur um, að allntikið sé nú um citu' lvfjasölu hcr, og er taiið að frumkvöðuH hennar sé erlend ur maður, sem hér dveist. Ein aðferðin er sögð su, að söluniaður lætur viðskipta- mann niáta jakkann sinn undir þvi yfirskyni, að hann se að upp lýsa hann um livaða falastterð lucfi lionuin, og geta smahlulir þa auðveldlega farið á milli inann.., svo að ekki sé eftir tek- ið.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.