Spegillinn - 01.02.1959, Blaðsíða 13

Spegillinn - 01.02.1959, Blaðsíða 13
SPEBILLINN 37 að hann Jón minn Leifs hafi veitt viðtöku neinum smátékka fyrir all- an þann flutningsrétt, sem hann veitti á móti, sagði Hallbjörg. — Það hafa áreiðanlega verið fleiri núll á honum en verðlaunatékkan- um frá útvarpinu, en þó máske ekki of mörg, þar sem hann rétti þeim ameríska generál aðeins vísi- puttann til þakklætis og staðfest- ingar. En þó rataði hann í þessu þann gullna meðalveg, eins og honum er lagið, þar sem það getur haft alvarlegar afleiðingar að rétta fram litla fingurinn. — Þetta ætlar sennilega að verða gott músíkár, sagði tólftónastrák- urinn, — þar sem að strax eftir þessa sigurfrétt verður uppvíst um Tónabandið hans Freymóðs, sem vafalaust á eftir að gegna glæsi- legu hlutverki í menningarlífi þjóð- arinnar. Ættum við ekki að lýsa yfir ótvíræðum stuðningi okkar allra við Tónabandið? — Ég hélt satt að segja að hjóna- bandið væri þér hugstæðara að sinni, sagði Ketill, en það hefði hann ekki átt að segja, því að strákurinn leit strax hálfsoltnum augum á Díalín, sem til allra ham- ingju leit undan, en Grænveig fór að hlæja eins og bjáni. En Totten- ham biargaði á sinn sérstæða hátt. — Ekki get ég skilið hvers vegna West Bromwich gengur svona rækalli illa á heimavellinum, sem það ágæta félag ætti þó að þekkja allra félaga bezt, sagði hann. — En það eru svo mörg vandamál og erf- ið í ensku knattspyrnunni, annars væri hún máske ekki svo spenn- andi sem raun ber vitni um. — Mikill áhugamaður ertu um líkamsmenninguna og það líkar mér af alhug, sagði Hallbjörg. — Og þar sem ég að þessu sinni get ekki farið og fylgst með afrek- um handknattleiksliðsins okkar í útlöndum, þá vil ég hér með út- nefna þig til fararinnar á minn kostnað, sem okkar sérlegan sendi- mann og fréttaritara. Þú sendir Framh. á bls. 40. Kveðja til alpýðunnar Alþýðuflokki forðum var ég bundinn fúslega borgaði inn á kratafundinn, þar sem ég skemmti þó af lífi og list. — Flokksmerki keypti á hvurjum sunnudegi kosningasjóðinn styrkti heldur en eigi og stritaði líkt og vinnukona í vist. f Alþýðublaðið og Alþýðumann ég keypti Alþýðuskúr, sem mér í skuldir steypti reisti ég fyrir kratalúsarlán. — Krepptur þar sat, með kuldapolla á tánum, krunkuðu flokksmenn löngmn þar á skjánmn færandi kröfur, kvabb og margskyns smán. f alþýðuverzlun allt varð ég að taka, oft var mér gefið vitlaust þar til baka, leiðrétting enga látinn var þó fá. Illharðan hleif úr Alþýðubrauðgerðinni angurvær mátti ég færa konu minni, glorsoltnir krakkar unnu ekki á. Alþýðukveðskap oft fékkst við að rita, og alþýðufræði, sem var gott að vita. Alþýðuprentsmiðjan gerði sér gott af þeim. — Alþýðutrompvist oft ég fékk að spila, öllum gróðanum flokknum varð að skila, en tapið mátti ég taka með mér heim. Alþýðuljóð ég orti af sönnum trega, alþýðukonur faðmaði hjartanlega, alþýðubörn ég eignaðist hér og þar. — Alþýðuböll og alþýðunámskeið sótti alþýðubrjóstvit löngmn nægja þótti, og alþýðlegur í alla staði var. En alla daga smátt úr býtum bar ég, blásnauður æ og litilsmetinn var ég. Alþýðan virti einskis mína fórn. — Loks gaf ég frat í fjandans alþýðuna frá mínu brjósti leið upp hógvær stuna; Hvíslaði að Emli: „Ég skal vera í stjórn“. Framh. á bls. 40.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.