Spegillinn - 01.03.1966, Blaðsíða 4
PRCSSUUÚD
/ TILEFNI AF HEIMSÓKN
DÖNSKU FORSÆTISRÁÐHERRAHJÓNANNA
Mikið er nú settlegur
mannskapurinn;
dýrleg eru klæðin,
ó, drottinn minn.
Ofan tek ég hattinn,
hneigi mig, og
tuldra oní bringu
mitt bjagaða sprog.
Tuldra ég oní bringu
min taknemligheð,
virðulega gesti
til veizlu ég kveð.
(Ef menn vilja geta þeir raulað Ijóðið
undir laginu: „Kótt er ó jólunum ...").
Senn hefst í Lídó
samnorrænt knall;
prúðbúið fólk streymir
ó pressuball.
Hef ég af skyndingu
herlegan brag:
Sælar verið þér, Helle,
og sæll vertu, Krag.
Sæl verið þér bæði,
baunversku hjón.
Velkomin að gista
mitt viðreisnar-Frón.
Velkomin til Islands;
það segi ég satt,
tek ég þar með ofan
minn Tyrólahatt.