Spegillinn - 01.03.1966, Qupperneq 6
Vel klæddur
«ift öll uekiliiTÍ
| ífntMee^ í/feMf
SIO'nMH '*'»
TILLAGA
um þjóðlegu
sjónvarpsdugskra
Kl. 07.00 Morgunhugvekja: Auður Eir hótar hinu versta, ef
þú ekki breytir líferni þínu til hins betra.
Kl. 07.20 Morgunleikfimi: Sýnikcnnsla Guðmundar Jóns-
sonar, óperusöngvara, en hann bregður á leik, og
mun almenningur glaðvakna.
KI. 08.00 Morguntónleikar: Páll Isólfsson leikur á orgel Dóm-
kirkjunnar — fjörug lög.
Kl. 10.00 Veðurfregnir: Páll Bergþórsson segir veðurfréttir
og spáir í bundnu máli, og teiknar lægðir inn á
veðurkort.
Kl. 12.00 Hressandi tónlist, svo að eiginmenn flýti sér al-
mennt heim í matinn, t.d. mun Ómar Ragnarsson
syngja „Lok, lok og læs,“ með látbragði. Eftir frétt-
ir mun Þorvaldur Halldórsson syngja: „Allt í græn-
um sjó“ nýjar stjórnmálavísur, sem eru líklegar til
að verða vinsælasta lagið a.m.k. í sex mánuði.
Kl. 13.30 Búnaðarþáttur: Gísli Kristjánsson fer í heimsókn í
fjósið, og á viðtal við bændur, sem eru að moka
flórinn. Sjáendur komast í nána snertingu við
sveitastörfin, án þess að finna nokkra lykt.
Kl. 15.00 „Við sem heima sitjum“: Jónas Jónasson stjórnar
þættinum og spjallar húsmæður.
Kl. 18.00 Tómstundaþáttur barna og unglinga: Jón Pálsson
dundar við að líma frímerki í album. Ennfremur
mun hann sýna eldspýtustokka.
Fastir liðir eins og venjulega,
Fréttaaukinn er úr Laugardalnum: Sigurður Sig-
urðsson kemst í æsing við að lýsa spennandi hand-
boltaleik á milli úrvalsliðs úr Félagi Sjónvarpsá-
hugamanna og úrvals úr liði 600 stúdenta sem eru
félagar í Mótmælum Ammerísku Sjónvarpi (skamm
stafað MAS). Keppt er um hvort takmarka eigi
útsendingar frá Keflavíkur-hermannasjónvarpinu.
Kl. 21.00 Séra Emil Björnsson skýrir þátt Hitchcock.
Að loknum þættinum syngur Dómkirkjukórinn út-
fararsálm.
Kl. 22.30 „Fyrr var oft í koti kátt“: Svavar Gess sprellar við
landsfólkið með smáaðstoð, til miðnættis. Kemur
öllum lýðnum í gott skap.
Kl. 24.00 Dagskrárlok. Savannah-tríóið syngur „konHvísur“M
6 S p e g i 11 i n n