Spegillinn - 01.03.1966, Side 27

Spegillinn - 01.03.1966, Side 27
Úr borðkróknum — Hefurðu nokkuð athugað með sjónvarpstækin, spurði frúin formála- laust, þegar ég kom heim í hádegismat- inn einn daginn. — Nei, ekki neitt að ráði, anzaði ég og fálmaði eftir Mogganum til að kom- ast hjá frekari umræðum um sjónvarp. — Nei, auðvitað ekki. En það er nú komið sjónvarp hérna allt í kringum okkur, og við erum að verða að við- undri í allra augurn fyrir að vera ekki búin að fá sjónvarp, sagði frúin og var ekki á því að láta málið sofna umræðu- laust. — Já, góða, ég athuga þetta nú strax á morgun eða hinn daginn, sagði ég upp úr þingfréttum Moggans. — Mig minnir nú, að þú hafir áður ætlað að athuga málið á rnorgun, meira að segja löngu fyrir jól, sagði frúin miðlungi vinsamlega. Og livar ætlurn við svo að hafa sjónvarpstækið? sagði ég áhugalaust upp úr þingsjá Tímans. - Hvar? Auðvitað vio vegginn gegnt hjónarúminu i svefnherberginu okkar. Það er lang-heppilegasti staðurinn fyrir það, sagði frúin með þvílíkum áhuga, að ég þóttist sjá, að hún hefði þegar þrauthugsað málið og þrælstúderað í- búðina með tilliti til staðsetningar á sjónvarpi. — Humrn, já, það held ég nú líka; en liefurðu lesið hvað þeir segja um mjaðmavaggið ykkar hérna í Þjóðvilj- anum? sagði ég til að losna við sjón- varpsmálið af dagskrá. — Ha? sagði frúin stansliissa. — Já, það stendur hérna, að það sé vísindalega sannað, að konurnar hafi enga líkamlega ástæðu til að vagga mjöðmunum, þegar þær ganga, sagði ég- — Ja, hérna, hafa visindamennirnir nú ekkert þarfara að gera en rannsaka göngulagið okkar kvenfólksins, sagði frúin svo, og þótti lítið til fréttarinnár koma. - Þið gangið með þrælstíf lmén og eruð svo stuttstígar, af því kemur vagg- ið, sagði ég upp úr blaðinu. - Hvers lags er þetta maður, er okk- ur ekki frjálst að ganga eins og okkur sýnist; nú og eitthvað rámar mig nú í að hafa heyrt rómantízkar lýsingar á seiðmagninu í göngulagi kvcnfólksins, sagoi frúin dálítið spotzk. Eg var nú kominn í Staksteina Moggans og sagði ekkeft í bili, heldur rýndi í blaðið og hnyklaði jafnvel brún- ir ,eins og ég væri að !esa torskilda lífs- speki. Svoleiðis les ég alltaf Stakstein- ana. Frúin les þá aftur á móti aldrei. — Teppið á holinu er alveg að verða ónýtt; við komumst ekki hjá því að fá nýtt teppi í sumar, sagði frúin, þegar hún taldi að ég væri búinn að lesa Staksteinana nægilega vel. — Er það, já, sagði ég. — Já, það er, og satt að segja hefð- um við þurft að vera búin að fá nýtt teppi á holið, þetta er orðið til hábor- innar skammar, sagði frúin. ■— O, jæja, ég læt það nú allt vera, sagði ég. — Ekki spyr ég að trassahættinum þínum, þegar heimilishaldið er annars vegar. Kannski þér finnist þá að svefn- herbergið megi vera ómálað líka þetta árið, sagði frúin allhvatskeytslega. — Humm, nei, ætli það verði ekki að klína á það einhverri málningu í vor, sagði ég annars hugar. - Mikið var. Nú og svo er þvotta- vélin orðin alveg ónýt; þetta er rétt ómögulðgt að jrvo í henni lengur; já og hvernig var það rneð þessar hansa- hillur, sem áttu að koma á auða vegg- inn í stofunni; eru þær alltaf á leið- inni, eða hvað? sagði frúin með tals- verðri áþefð. — Eiggur þeim svo mjög á, ég meina svona alveg upp á dag, tautaði ég. — Nei, ætli það sé ekki bezt að láta alla hluti drasla eins og þeir eru, Jrá liggur engu á; þá er hægt að lesa Stak- steinana í næði urn hádcgið, og Austra greiharnar og Tímaspekina i rólegheit- unr á kvöldin, sagði frúin óþarflega há- vær. Svona, svona, kona, auðvitað panta ég hillurnar í dag. Þú ættir að líta á teppi ef þú ferð í bæinn eftir hádegið. Nú og þvottavélin, — ja er ekki bezt að fá sjálfvirkustu tegund sem völ er á, góða? — nei, hver fj.......... ég er að verða of seinn í vagninn, sagði ég og henti frá mér blöðunum og spratt á fætur. Unr leið og ég fór út úr dyr- unum harðákvað ég með sjálfum mér að ganga í geðverndarfélagið strax í dag.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.