Spegillinn - 01.07.1966, Blaðsíða 5
Mörgum finnst ískyggilegt, að vinnu-
friður skuli ckki vera tryggður lengur
en til haustsins, og finnst það liggja í
loftinu, að kosningar muni verða þegar
í haust. Líklegt er a. m. k. framsóknar-
menn verði aðilar að nýrri stjórn, og
hætt er við að gengisfelling komi í kjöl-
far nýrra kosninga. En skítt með það,
þó að nú sé kannski eitthvað harðara
í ári en stundum áður, þá hafa flestir
það gott, og munu hafa það á meðan
einhverjir nenna að tapa á því að fiska
síld og á meðan við eigum stórvirkjan-
ir og stóriðju í vændum.
Það er einkennilegt fólk, sem hefir
áhyggjur af því, þó nokkrum gömlum
togurum sé lagt til hliðar af því að þeir
bera sig ekki. Togaraútgerð er ekki
lcngur liagstæð fyrir okkar hagkerfi, og
það er leiðinlegt að við skuhim leggjast
svo lágt að öfunda þær þjóðir, sem
geta rekið togaraútgerð hér við bæjar-
dyrnar hjá okkur, sem er einungis af
því að þeir eru að drepast af fiskhungri
og vesöld. Við ættum hins vegar að
fagna því að erlendar fiskveiðiþjóðir
telja sér hag að því að sækja okkur
heim og hirða molana af allsnægta-
borði (sbr. Kiljan) voru. Vér þurfum
ekki alltaf að miða okkur við aðrar
þjóðir á öllum sviðum. Vér erum sjálf-
stæð og sérstæð þjóð, og okkur þarf
ekki endilega að henta það, sem öðr-
um þykir arðbært. Það er bara lágkúru-
legt að apa allt eftir öðrum.
Heimsóknir útlendra togara hafa
aukizt allmjög í seinni tíð, m. a. hafa
brezkir togarar heimsótt Akureyringa
nokkuð, vinsamlega að mestu, þó að
einhverjir hafi verið húðstrýktir í þeirri
sambúð öðru hvoru. Heyrzt hefir að
brezki hafnarbærinn Hull hafi boðið
Akureyri upp á að gerast vinarbær, og
færi vel á því. Væri þá hægt að endur-
gjalda heimsóknir Breta á liliðstæðan
hátt.
ísfirðingar hafa ekki farið varhluta
af heimsóknum brezkra togara og má
segja að brezkir togaraeigendur brauð-
fæði orðið hluta af ísfirðingum og vona
menn þar að heimsóknirnar lialdi á-
fram þar til farið verður að byggja
menntaskólann, því að þar reikna ísfirð-
ingar með atvinnubótavinnu næstu 10
árin og er það talið langt plan þar
vestra jwí Vestfjarðaráætlunin var
aldrei nema til 5 ára.
Rebbi.
ALMENNARl
TRYGGINGAR
Pósthússtrœti 9, simi 17700
H
Spegillinn 5