Spegillinn - 01.07.1966, Page 13
FERÐALJÓÐ
Með kvöldinu tók að kólna,
að kvensunni setti hroll.
Ég bauð henni að fó sér at ferða-
fleyg mínum soldinn toll.
Skrapp ég í Húsafellsskóginn
skvísuna rjóða með.
Þar voru þokkaleg rjóður,
og þar só ég skilningstréð.
Tylltum við niður tjaldi
og tókum upp léttara mas,
síðan var elduð súpa
við svokallað ferðagas.
Þó sveiaði hún og signdi
sjólfa sig hótt og lógt,
— stúlkan var sem sé í stúku
og stabíl ó allan hótt.
Og kuldaskjólftanum skekin
skreið þessi blessuð mær
í svefnpokann, sem ég keypti
d sjö hundruð kall í gær.
•1
Hornauga gaf ég henni
og hugsaði ó þennan veg:
Ekki er nú nóttúra islands
alltaf neitt stórfengleg!
Og úr mínum ferðaföggum
föðurlandsbrók ég dró,
og hét því að ólpast aldrei
aftur í þennan skóg.
Svófum við þarna síðan
sitt hvorum poka í.
„ískaldur Eiríksjökull"
var yfir sig hissa ó því.
Bragi.
bpeg«llinn 13