Spegillinn - 01.07.1966, Blaðsíða 18
AFMÆLISRABB
Undanfarið hafa ísfirðingar
verið að drauja af 100 ára af-
mælishátíð sinni, með pomp og
prakt Hafa þeir tekið þetta
með nokkrum tilhlaupum, svo
ðboðnir gætu jafnað sig af for-
nemelsi milli atriða. Sýnir það
hyggindi forráðamanna. Saynd-
ar hafa ísfirðingar fremur ver-
ið kenndir við hreysti en hygg-
indi og lifað eftir hinu gamla
boðorði: Sælla er að gefa en
þiggjn — á kjaftinn. Létu þeir
t.d. Arnfirðinga plata upp á sig
Isafjarðarnafninu, sem Flóki
gaf, sællar minningar. Arní'irð-
ingum má svo segja það til
hróss, að þeir lánuðu þeim (Juð-
mund Hagalín, og skráði hann
þar söguna af konunginum á
Kálfskinni, sem bezt bók þótti
um Norðurálfu heims á sinni
tíð, enda eina skinnbókin, sern
um getur hér hin síðari ár
Mjög var til afmælisins vand-
að og lögðust þar margir á eitt.
Barþjónar gerðu verkfall og
kváðust ekki sinna kvotli neinu
um sinn. Réðust þá margir til
farar í vesturveg, því að þar
N ' / A
vissu menn fyrrum ódáinslindir
þær, sem aldrei þraut, og gáfu
ísfiröingar höfuðtorgi sínu nafn
þar af, smb. „Þú sæla heimsins
svala lind, þú silfurskæra tár“.
Aftur á móti var vegamála-
stjóri hinn þverasti. Taldi hann
hina mestu óþurft að því að
þingmannabilum gerðist fær
vegur um Þingmannaheiði.
Væru svo margir vestur þar,
sem gengju með þingmann 1
maga, að óþarft væri við að
bæta.
Hátíðin fór hið bezta fram og
þátttaka almenn. Þó var roll-
um bæjarbúa meinaður aðgang-
ur að hátíðasvæðinu og urðu
þær að hýrast uppi í hlíð þá
daga. Þótti það mörgum all illt
og mætti Ingólfur landbúnaður
ekki á hátíðinni. Hins vegar
mættu þeir Hannibal, bóndi 1
Selárdal og Sigurvin, bóndi á
Rauðasandi, en þeir þykja báð-
ir með helztu mönnum í bænda-
stétt nú, er þó staðfesta þeirra
með nokkrum ólikindum, og
virðist hvor um sig hafa farið
hina leiðina, því Sigurvin drep-
ur seli en Hannibal er rauður.
Allt fór friðsamlega fram og
mæla það nokkrir að þá kyssti
Hannibal á hægri kinn Sigurð-
ar frá Vigur, þá er hann sló
hann á kinnhestinn forðum, og
hélt Hjálpræðisherinn þakkar-
guðsþjónustu af því tilefni, en
Menningar- og friðarsamtök
kvenna hafa enn ekki tekið mál-
ið fyrir á fundi.
Skemmtiatriði þóttu takast
með ágætum og var einkum
rómaður einleikur á munnhörpu
við undirleik lúðrasveitar.
Er það nú von manna að Isa-
fjörður verði sem fyrst 100 ára
á ný.
Rabbi.
Ungt fólk með
drulluvellu
Það er óþarfi að óttast, að ís-
lenzk menning standi höllum
fæti og höfum vér nærtæk dæmi
þess. að unga menn skortir ekki
hugkvæmni né leikni að halda
á penna sínum, né áræði til að
varpa hugarfóstri sínu fram á
sjónarsviðið. í Mbl. 29. júni
sjáum vér i þættinum „Ungt
fólk“ er skrifað m.a eftirfarandi:
„í hjarta þorpsins þar ,sem
allt er svo ógeðslegt húkir ein-
hver viðurstyggilegasta forar-
GefiSyð ur tíma ............................
til að lesa Spegilinn eða gera eitthvað annað
skemmtilegt —
Lótið vélarnar um vandann.
NILFISK
heimsins bezta ryksuga!
★
★
★
★
*
fljótvirkari
fjölvirkari
vandvirkari
hreinlegri
traustari
vilpa sem um getur í veröldinni
í liverri mætast allar skolpieiðsl-
ur þorpsins spúandi solli og
skorkvikindum i leðjuþrungið
illvetnið vaxið daunverstu slím-
plöntum jarðarinnar umvöfðum
vannærðum álum framúr hverra
nösum standa lúsugir ormar og
holdsveikiveirur og yfir öllu
sveima svo berklaveikar endur
og holdsveikir svanir og gæsir
með óaflátanlegan niðurgang.
vilpa þessi þykir ákaflega fögur.
enn er þessi sami meinleysis-
dagur og meðfram tjörninni sitja
skáld og snúa sér hörpustrengi
úr slíi og leika á með hanzka-
klæddum höndum þnnig að úr
verður ein allsherjar drulluvella
Það er ánægjulegt að þjóðin
skuli eiga unga menn, sem
troð i nýjar slóöir á bók-
menntasviðinu. Hvar skyldum
við svo sem gera með stóra upp-
haísstafi né kommusetningu Er
þar ekki aðeins um að ræða I-
þyngingu á móðurmálsnámi,
sem ekki gengur of vel, a.m.k.
hjá sumum.
Þessi ungi maður fer vel af
stað. Það er gott vegarnesti fyr-
ir upprennandi „rithöfund" að
sýnast svolítið skrýtinr
Kannski er þarna á terðinni
næsti jólabókarhöfundur Ragn-
ars í Smára.
Úrval annarra heim
ilistækja sem létta
störfin og fjölga
tómstundunum.
FÖNIX
FYRSTA
FLOKKSl
FRÁ
SÍMI 24420 - SUOUP'WTU 10
18 S p e g 1111 ,i n