Spegillinn - 01.07.1966, Page 19
Fjör í
EYJUM
Það er alltaf sama fjörið í
Eyjum. Þar veiðist síld og húm-
ur — og obbolítið í soöið af ýsu.
Þorskurinn hefur yfirgefið ey-
verja, en þeir liafa sem ýmsir
aðrir dyggilega hlýtt þeirri
kenningu eins fræðings vors að
það væri um að gera að drepa
sem mest af þorskinum, því ann
ars yrði hann sjálfdauður. Þetta
reiknaði fræðingurinn út af
stofulærdómi sínum, sem er
mikill. Er ekki vitað, að meiri
reikningskúnst hafi beitt verið
síðan Sölvi heitinn reiknaði
krakkann í kvensniftina forðum
af hyggjuviti sínu. Hefur nú
verið hljótt um kenningar
þeirra félaga beggja um hríð.
Mesta fjörið er þegar Ný Viku-
tíðindi koma í plássið. Þá mynd
ast biðraðir við öll söluop. Þetta
stafar af hinni æsispennandi
skáldsögu Mafiubærinn, sem
hefur haldið lífinu í blaðsneyp-
unni undanfarin misseri. Er nú
hald manna, að Agata gamla
Christie sé nú mjög uggandi um
sitt góða rygti meðal íslenzkra
lesenda.
Nú hafa þeir í Eyjum sam-
þykkt að opna vínhöndlun sína
á nýjan leik. Verður þá áfengis-
útsalan í pósthúsinu flutt þaðan
við hátíðlega athöfn. Er oss
tjáð, að Ingólfur póstmálaráð-
herra og póstfulltrúinn muni
flytja ræður viö það tækifæri,
enda mennirnir báðir málglaðir
í betra lagi. Þá er í ráði að
bjóða nokkrum fulltrúum vina-
bæja á Norðurlöndum.
Þá ku þaé hafa gerzt tíðinda
þar úti, að sjónvarpssali nokkur
klifraði upp á ofurhátt fjall
einn morgun. Þar varð Freist-
arinn á vegi hans, eins og skeð
hefur fyrr og frá er sagt í helg
um ritum. En sá var munurinn,
að tíví-maðurinn féll fyrir freist-
aranum. Hann leiðbeindi geisla
hins blessaða dátasjónvarps yfir
sinn lýð, enda þótt þetta væri
heilög kú Landssímans. Höfðu
útskersbúar lengi horft á stein-
dauða imbakassann og þótt tóm-
legt að vonum, sáu ekki einu
sinni stillimynd VÞG hvað þá
meir. Gaf nú á að líta hinar
dæilegustu myndir á skermin-
um, að vísu með ferlegum
skjálfta sem líktist eldglæring-
um. Hófst nú hið ægilegasta
kapphlaup um hnossið, sem von
legt er, og mega menn vart
vatni halda af hrifningu. Er
oss fortalið, að litið sé á fjall-
göngumanninn sem sanna frels-
ishetju og í ráði að bæjarstjórn-
in gangist fyrir að reisa af hon-
um bursta á fjallinu.
En það eru sögð mestu vand-
ræði með bæjarstjórann. Það
vill enginn vera bæjarstjóri. En
í Hafnarfirði sóttu svo margir,
að bæjarstjórnin vildi ekki gera
upp á milli umsækjenda, svo
hún réði engann þeirra ,en grát
bað gamlan Vestmannaeying að
taka að sér djobbið, hvað hann
og gerði með nokkrum semingi.
Er oss tjáð, að Eyjamönnum
finnist þeir eigi hönk upp í bak-
ið á Fjörðungum fyrir þetta
klækibragð. Hafa þeir fullan
hug á, að krefjast þess af Hafn-
firðingum, að þeir láni þeim
einhvern lysthafendanna þar.
Er þó talið meira en vafasamt
að þeir vilji fá Eirík fyrrver-
andi skattstjóra þeirra, því að
þeir kæri sig ekki um fleiri sér-
menntaða menn i skattaálögum.
Þykir útsvarsskrá hins nýja
bæjarstjórnarmeirihluta bera
með sér, að sérfræðinga sé ekki
þörf.
——————
AXMI
. annað ekki
b p e g 1111 n rt 19