Spegillinn - 01.07.1966, Side 20

Spegillinn - 01.07.1966, Side 20
FRÉTTIR ÚR KARDEMOMMUBÆ Mestu látunum er nú loks að linna suður í Hafnarfirði. Bæjarstjóri feng- inn til frambúðar, sem fiestir geta við unað, aðrir en þeir sem ekki geta sæzt á nema sjálfa sig. Hefði næstum allt verið fallið í Ijúfa löð, ef ekki hefðu reykvískir, af kvikindisskap einum sam- an óhreinkað vatn þeirra Hafnfirðinga, þá loksins að þeir hafa nóg vatn fram á sumar Töldu Rcykvískir vatnsbólið vera baðstað, enda engar hegðunaregl- ur á staðnum Má þó tcljast að sumu leyti praktískt að geta tvínotað sama vatnið, þó að æskilcgra væri, a.m.k. fyrir Hafnfirðinga, að hafa þann hátt á að þeir drekki vatnið fyrst, en Reyk- víkingar baði sig í því síðan. Þetta er nú einungis fyrirkomulagsatriði, sem ætti að vcra auðvelt að ráða fram úr. 20 Spegnlinn Mörg eru vandamál Kardemommu- bæjar, þrátt fyrir að mannval mikið vildi leysa allan vanda. Margt er sérstætt í Kardemommubæ, m.a. er þar nunnuklaustur, sem mun hafa verið byggt þar ,vegna þess að þar væri meiri ró, og meiri hvíldar að njóta, en meðal annarra byggða á land- inu og þó víðar væri leitað. En nú hafa hinar rólyndu nunnur fengið annað að reyna, þrátt fyrir ókleifan múr, sem bægja átti frá forvitnum augum van- helgra. Upp hafa risið byggingar við klausturvægginn, þannig að klaustur- múrar verða eigi lengur skjól klaustur- meyja sem skyldi. Þykja þessar bygg- ingar ótímabær frumhlaup, en samt vildu sumir hækka enn byggingar sín- ar yfir múrinn, cn nýkjörnir forystu- sauðir Kardemommubæjar hafa spyrnt fast á móti frekara frumhlaupi. Heyrst hefir að safnaðarprestur sé meðal þeirra sem hagsmuna hafa átt að gæta, en það hefir lengi við loðað í landi voru að prestar þættu harðdrægir á verald- legu sviði, þótt átakalitlir væru á hinu andlega. Er einnig svo í Kardemommu- bæ. Klerkur vildi upphækka hús sitt og sinna, og hefir kannski lofað að kíkja ekki oft yfir vegginn, enda slíkt vart sæmandi, en veraldlegir nýkjörn- ir jrjónar Kardemommubæjar létu sér ekki segjast, þrátt fyrir umtölur klcrks. Svo harður var aðgangur kcnnimanns gagnvart einum fyrirmanni Karde- mommubæjar, sem ekki lét sér segjast, að klerkur taldi neðri byggðarvist vísa vegna drengskaparleysis við sig, að hér-

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.