Spegillinn - 01.07.1966, Side 23
„RÁÐLEYSINGI í
RÁÐHERRASTÓU'
„Alþýðuflokkurinn fer með
stjórn sjávarútvegsmála og hef-
ur því tekið á sig ábyrgðina af
hruni togaraútgerðar á íslandi.
Ýmsir höfðu gert sér vonir um
að hinn ömurlegi hlutur flokks-
ins í þessum málum kynni að
skána þegar Eggert Þorsteins-
son tæki við húsbóndavaldinu í
sj ávarútvegsmálaráðuneytinu af
Emil Jónssyni. En ekki er ann-
að sjáanlegt en að Eggert ætli
einnig a ðreynast alger ráðleys-
ingi í ráðherrastóli“.
(Þjóðv. 9. júlí).
Barátta hinna verst launuðu?
Eitt er það verkfall, sem öðr-
«m slíkum fremur hefir vakið
(verðskuldaða?) athygli, en það
er verkfall þjóna. TaliÖ var, og
er ekki mótmælt að ekki hafi
aðallega verið um kjörin deilt,
enda almennt talið að þjónar
hafi yfirleitt meiri tekjur en
þeir sem þeir alla jafna veita
beina.
Hins vegar er aðallega um
deilt hvernig haga skuli starfi,
og þjónar geri upp seldar vörur
sínar til veitingahússeigandans.
Það er svo i þetta sinn, að
um er deilt, hvor valdið hafi,
og hvor skuli skipta arði, en nú
finnst oss skörin hafa færst upp
á bekkinn, þvl að nú sjáum vér
ekki betur en verið sé að skipta
„ránsfeng", a.m.k. í sumum til-
fellum.
Sú var tíðin, að þjónar gerðu
reikning gagnvart húsbónda sln-
um fyrir hverja flösku, eða
stimpluð í kassa, eins og það
er orðað I umræðum um málið,
en ein flaska á að vera 18 sjúss-
ar útseldir. Nú fer það orð af,
að oft verði siússar allt að 20
úr flöskunni, án þess að við-
skiptavinirnir hafi möguleika á
að fylgjast með því. Veitinga-
salinn hefir þá heldur ekki
möguleika á að fylgjast með að
rétt sé í drykkjurútana mælt,
þó að veitingasalinn fái skömm-
ina af illa mældum sjússum, ef
upp kemst.
Þykir mörgum, að þó það sé
aukin vinna fyrir þjóna að
stimpla 1 kassa hvern seldan
sjúss, að þá sé ástæðulaust að
minnka aöhaldið að þjónum,
sem reynslan hefir sýnt, að er
sízt of lítið, Sem betur fer eru
enn margir veitingasalar sem
ekki kæra sig um að hirða hagn-
að af sjússum, sem þeir ekbi
hafa selt, og þess vegna er á-
stæðulaust, að taka af þeim
möguleikana á að fylgjast með
því, sem þjónar þeirra selja.
Þjónar hafa aðeins rýrt álit
sitt gagnvart lýð öllum með ó-
sanngjörnum kröfum, því að
allir vita að þeir hafa mann-
sæmandi kjör, miðað við flest-
ar aðrar stéttir, eins og vera
ber.
Elskið því vinnufriðinn og
látið væringjar niður falla.
Skaðinn verður bættur meS
auknum viðskiptum ánægðari
kúnna, sem óspart munu neyta
guðaveiga hjá þeim þjónum er
nenna að vinna.
S p e g 1111 n ti 23