Spegillinn - 01.03.1970, Side 11
SMÁAUGLÝSINGAR
Maður vanur húsa-, skipa-
og kirkjumálun óskar eftir
starfi. Upplýsingar að
Tjarnargötu 20, eftir út-
sendingu Keflavíkursjón-
varpsins.
Flýttu þér hægt . . . ráð-
leggingabók Steingríms
Sigurðssonar listmálara og
rithöfundar er komin út.
Að gefnu tilefni vil ég taka
fram, að ég tek ekki að
mér útvegun vafasamra
danskra bókmennta, þar
sem það samrýmist ekki
því embætti, er ég hef tekið
við. Vænti ég þess, að
bréfaflóði þar að lútandi
linni brátt. S.B. Kaup-
mannahöfn.
Námskeið í múrverki fyrir
flatningsmenn verður hald-
ið í húsakynnum fiski-
mjölsverksmiðjunnar.
Fulltrúar sjávarútvegs-
málaráðuneytisins.
Húsmæður í Stóragerði at-
hugið: Get enn bætt við
mig sendiferðum á morgn-
ana til kl. 14. Látið vanan
mann annast mjólkur- og
brauðinnkaup yðar. Veiti
ennfremur tæknilegar upp-
lýsingar um, hvernig ekki
eigi að byggja, á skrif-
stofu minni að Grafar-
bakka 50 milljón, kl.
14-17.
Þurfum að ráða fleiri for-
stjóra og framkvæmda-
stjóra. Æskilegt er, að um-
sækjendur séu sköllóttir.
íslenzka álfélagið.
Viljum ráða nokkra
hrausta varðmenn til gæzlu
mannvirkja, þar á meðal
sjónvarpsstöðvar. Varnar-
liðið.
Nýja félagsmenn vantar.
Nefndastörf fylgja. Al-
þýðuflokkurinn.
Hin leiðin hefur týnzt.
Finnandi vinsamlega skili
henni á Hringbraut 30.
Nýjar leiðir vantar til að
hafa fé af opinberum starfs-
mönnum. Upplýsingar hjá
Höskolli í fjármálaráðu-
neytinu.
Gamall skipstjóri óskast
til að fræða ráðherra um
sjávarútvegsmál. Þarf að
eiga auðvelt með að gera
flókið mál einfalt. Upp-
lýsingar í ráðuneytinu.
Þurfum að ráða tíu töl-
fróða menn til að annast
talningu á nefndum ríkis-
ins. Fjármálaráðuneytið.
Tveir þingmenn hafa týnzt.
Finnandi láti vinsamlegast
ekki vita. Alþýðubanda-
lagið.
Óskum eftir liðugum sláttu-
manni, sem kann ensku
og dönsku. Ríkisstjórnin.
Getum enn bætt við okkur
til ýmissa starfa og nefnda-
starfa nokkrum ungum
gamalmennum, helzt við-
skiptafræðingum. Æski-
legt er, að viðkomandi séu
ónothæfir í önnur störf og
mættu gjarna vera fram-
haldsmenntaðir erlendis að
nafninu til. Fjármálaráðu-
neytið.
íslenzku dagblöðin vilja
enn á ný minna þjóðina á
þær skyldur, sem hún gegn-
ir gagnvart hornsteinum
lýðræðisins (lýðskrumsins).
Tekið á móti framlögum á
skrifstofu Fjársöfnunar-
nefndar dagblaðanna.
11