Spegillinn - 01.03.1970, Page 21

Spegillinn - 01.03.1970, Page 21
Segulþrýstilestækið, sem Spegillinn hefur eignazt, og skýrt var vísinda- lega frá í síðasta hefti, hefur verið í stöðugri notkun síðan, eins og nærri má geta. Höfum vér notað það til að lesa á milli lína í minningargrein nokkurri hjartnæmri og ástarbréfi, er vér komumst yfir. Þá gerðumst vér svo meinsamir að nota það til að lesa á milli lína í leiðurum tveggja dagblaða. En síðar munum vér koma upp um aðra, svo að þessu máli ljúki ekki fyrr en enginn hlær, nema Speg- illinn. I r minningargrein Hjartkær tengdamóðir mín er borin til grafar í dag. (loksins, loksins, loksins, loksins) Mig brestur orð til að lýsa harmi mínum yfír fráfalli hennar. (sjaldan hef ég fegnari verið um dag- ana en einmitt núna) Góðmennskan, hjartahlýjan, hjálp- semin, gjafmildin, einlægnin, (illmennskan, kaldlyndið, tilcetlunar- semin, nízkan, falsið) trúræknin, jafnaðargeðið og glað- værðin einkenndu hana. (hrœsnin, skapofsinn og leiðinda- nöldrið einkenndu hana) Og nú er þessi góða kona horfin sjón- um okkar og ílutt á braut (og nú er þetta illþýði loksins komið til andskotans) frá okkur að sinni, og við hittumst ekki aftur hérna megin. (sem betur fer og engin hcetta á að rek- ast á hana framar) Úr ástarbréfi Kæri Jón! (ég hata þig, Nonni) Ég vona, að þér líði sem allra bezt um borð í þessum togara. (já, satt að segja máttu gjarna hafa þaó gott, eins og ég) Ég get ekki lýst því með orðum, hvað ég sakna þín mikið. (sjaldan hef ég verið fegnari á cevinni, en síðan þú fórst) Mig dreymir þig á hverri nóttu og þá erum við aftur saman (þú trúir auðvitað þessari þvcelu eins og öllu öðru þvaðri) eins og í gamla daga. Ég tel dagana, þangað til þú kemur. (það er verst, hvaðþeir eru alltof, alltof fáir dagarnir) Stundum ligg ég andvaka uppíloft og hugsa til þín, vinur. (aðallega, þegar Siggi kemur í heim- sókn og það er bara oft) Vertu svo margblessaður, ástin mín, (cejá, maður verður að segja þetta) ég sendi þér þúsund kossa. (og kyssi Sigga á meðan) Þín Stína. (Kristín) Leiðari Alþýðublaðsins 12. febrúar Endurnýjun togaraflotans er erfítt mál, (það sakar ekki að segja þetta enn einu sinni) fyrst og fremst af fjárhagslegum ástæðum. (nú ríður á, að kjósendur séu áncegðir þrátt fyrir allt) Hinir nýju skuttogarar eru orðnir svo dýrir, (þeir voru að minnsta kosti ódýrari í gamla daga) að enginn ræður við að kaupa þá, án aðstoðar hins opinbera. (þetta verða lesendur að vita, ef þeir vita það ekki fyrir) Samt verður að kaupa þessi skip. (loforð kosta ekki neitt, nema erma- fyllina) En eðlilegt er, þegar svo er komið, að hin opinberu (ja, nú verður maður að vanda sig til að gera öllum til hœfis) útgerðarfyrirtæki, sem í rauninni eru í eigu skattgreiðenda, (er ég að skrifa í Alþýóublaðið eða hvað.jú það er víst) séu látin sitja í fyrirrúmi, þegar ráð- stafað er (lesendur eru hvort sem er svo gegn- sýrðir orðnir) opinberu fé til stofnkostnaðar nýrra skipa. (maður huggar sig við, að blaðið er gefið út í fáum eintökum) Leiðari Vísis 12. febrúar Almenningur ræður. (eóa hitt þó heldur) Það er víðar en í Reykjavík, sem sjálfstæðismenn (maður neyðist til að hugsa um sveita- varginn líka) beita hinum sömu lýðræðislegu að- ferðum við undir- (lýðrœði er alltaf jafn fallegt oró og nytsamt) búning kosninganna. Reglurnar, sem farið er eftir, (þetta eru auðvitað afskaplega ó- reglulegar reglur) eru í megindráttum samdar af mið- stjórn flokksins. (þarna tókst mér vel til, að segja: í megindráttum) Þessar reglur eru í samræmi við þá yfirlýstu stefnu (þessar yfirlýstu stefnur eru nokkuð margbreytilegar ) flokksins að opna hann sem allra mest fyrir áhrifum (að sjálfsögðu verður hann ekki opn- aóur upp á gátt) almennings. Þessa opnun eiga menn að nota og stuðla (eins gott, að lesendur taki þetta ekki of alvarlega) þannig að eflingu lýðræðis í landinu. (góður endir og passar á lengdina). LESIÐ MILLI LÍNA

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.