Spegillinn - 01.03.1971, Qupperneq 3
LetÓari
Hugir landsins barna hneigjast mest að holdinu í
seinni tíð. í okkar uppdóbaða harðplastþjóðfélagi er
það orðið hreint sáluhjálparatriði að hugsa um kropp-
inn á sér. Gamli ungmennafélagsdemoninn grasserar
nú afturgenginn í þjóðarsálinni.
Það eru ekki lengur tápmiklir bœndasynir, sem ganga
fram fyrir skjöldu með fagrar sálir í hraustum líköm-
um, heldur sligaðir kontóristar og lífsreyndir rukkarar
með flœktar sálir í feitum líkömum.
Leiðtogar hinnar nýju hreyfingar eru allir úr hópi
eftirstríðsáraaðalsins á mölinni. Staðfastir bisnismenn,
nýgrónir af magasárum, langskólagengnir rukkarar og
aðrir framámenn í efnahagsfiffi þjóðfélagsins, allt
niður í launþega í bönkum. Þeir spretta á morgnana
af springdýnum sínum fyrir allar aldir og viðra ásjónu
sína í beru lofti, sínu eigin holdi til dýrðar og blessunar.
Athafnir þessarar nýju hreyfingar hafa yfir sér ein-
hvern guðlegan Ijóma. Menn ganga út á óbyggða staði
og iðka trúarathafnir sínar, hlaup, hopp, bugtan og
krop - og margt annað meinlœti. Þeim mun göfugra
þykir meinlœtið, því verr sem sköpulag manna og vöxt-
ur er til slíks fallinn. Margir eru reiðubúnir að fórna
lífi sínu hinu nýja trúarkerfi.
Ríkisstjórnin hefur ekki þorað annað en viðurkenna
þessa nýju trúarhreyfingu. Hún hefur látið þau boð út
ganga, að nú skuli allir hlaupa, vilji þeir halda lífi og
limum, en verða aumingjar ella.
Engin hjáleit markmið mega vera samfara þessum trú-
ariðkunum, svo sem vinna, sendiferðir, skemmtigöng-
ur, fjallgöngur, snjómokstur, gluggaþvottur, ekki held-
ur húsbyggingar, uppvask, ryksugun, blómaúðun, né
nokkuð slíkt, allra sízt útrás kynferðislegra nautna,
hversu svo sem þœr brjótast út.
Nei. Trúin á að vera fyrir trúna, trimmið fyrir trimmið,
trimmsins vegna. Þú verður að gefa því sinn tíma og
sinn tilgang. Hin nýja trúarbragðahreyfing hefur mikla
útgáfustarfsemi með höndum á trúarritum, testament-
um og biblíum hinnar nýju trúar.
Þetta er upphaf að enn stórfenglegri byltingu. Byltingu,
sem menn hefur dreymt um allt frá því þeir fóru að
leita sér skjóls fyrir kulda og búa um sig í híbýlum.
Afturhvarf til náttúrunnar. Og það er alls ekki óeðli-
legt, að þeir, sem hafa fórnað mestu í híbýli sín og
veraldlegan munað, séu nú ákafastir á flóttanum.
Spegillinii
SAMVIZKA ÞJÓÐARINNAR
Spegillinn kemur út 10 sinnum á
árinu 1971. Áskriftargjaldið, 420
krónur, greiðist í febrúar. I lausa-
sölu kostar blaðið 60 krónur með
söluskatti.
RITSTJÓRi: Jón Hjartarson.
Sími 20865 kl. 17-19, þriðjudaga
og fimmtudaga.
AÐALTEIKNARI: Ragnar Lár.
Sími 83065.
BRAUTARHOLTI 20, pósthólf 594,
sími 20865 kl. 14-17 daglega
Filmusett og prentað í Lithoprenti.
5 Allt þetta gerði ég,
Viðtal við Jón á
Laxamýri.
7 Þingeyingaljóð
9 Smáauglýsingar.
10 Mun þeim bætast annar
Ólafur. Viðtal við
Álf Engifers.
13 Á afmæli snillings, Ijóð.
15 Óeðlilegir dauðdagar.
19 Úr gömlum Spegli
20 Voða verður gaman
þegar við eigum afmæli.
21 Ólíó íslendinga.
22 Sjónvarp Spegilsins.
24 íslenzkt vögguljóð á
mörsugi.
25 Orð af gefnu tilefni.
Orðuveitingar.
26 Hjónin í húsinu sínu.
27 Getraun Spegilsins.
Pósthólf 594.
Árétting úr dölum.
28 Andvökunótt Erlends.
29 Hvatningarorð.
30 Stjörnuspá.
Stokkhólmsbréf.