Spegillinn - 01.03.1971, Page 6
Jakob: Já, þú hefur alltaf verið mikill
félagsmálamaður, Jón, en segðu mér:
í átthagana andinn leitar, er það ekki,
eða fórstu svo ekki að búa á' Laxa-
mýri ? En ferðaðist um landið samt og
kenndir mönnum það, sem þú hafðir
lært. Þú varst kominn með mikla
reynslu, var það ekki ?
Jón: Ég ferðaðist mikið. Ég var alls
staðar eins, hvar sem ég kom. Mér
fannst ísland allt mitt heimili.
Jakob: Og þú varst snemma gestrisinn.
Jón: Já.
Jakob: Þú varst snemma líka gáfaður.
Jón: Já, það var ég, sem stofnaði
Búnaðarsambandið og Sauðfjárrækt-
arsambandið.
Jakob: Og þú kenndir bændum.
Jón: Það var ég og Sigurður búnaðar-
málastjóri, sem fundum upp búskap-
inn í landinu.
Jakob: Þú varst snemma mikill ræðu-
maður og málfær vel
Jón: Ég stóð að stofnun og kom á fót
og hrinti í framkvæmd og stofnaði.
Jakob: Það er einmitt það. Þetta er
bara orðið nokkuð gott hjá okkur. Við
gætum auðvitað haldið svona lengi
áfram, en . . .
Nýtt skemmdarverk við Laxá
Maurasýru hellt á tvo
bíla öðru sinni
(Afo/ziSuvnL. 2.2:7/)
Vélar fyrirtækisins hafa svo
verið rannsakaðar á mánudags-
morgnum. Er það var gert í gær
moreun kom i ljós. að um helg-
Hélt heim með 200 þúsund
krónur handa Laxárbændum
— Skemmtunin i Háskólabiói heppnabist mj'óg vel i" "• stemmnninB, tii damii
I Leifur Þórarinsson og hljómsveitin
rr/6//f 7)
Hafnarblindir
Grímseyingar
Af marggefnu tilefni viljum við taka fram, að Vita- og
hafnarmálaskrifstofa mín lét hanna og byggja höfn í Gríms-
ey í fyrra og hitteðfyrra. Verður það því að teljast frekleg
móðgun við mig og verkfræðinga mína, sem og við almenn-
ing, sem kostaði byggingu þessarar hafnar eins og annarra
slíkra, að þeir eyjarskeggjar fara nú fram á, að byggð verði
önnur höfn á eyskeri þessu, eingöngu vegna þess að þeir
eru svo blindir, að þeir sjá ekki hafnarmannvirki þau, sem
við höfum þarna látið reisa. Það skal tekið fram í eitt skipti
fyrir öll, að við stöndum ekki í því að byggja sífellt hafnir,
sem hverfa jafnóðum og þær eru byggðar. Ef landsmenn
geta ekki varðveitt þau mannvirki, sem við réttum upp í
lúkurnar á þeim, geta þeir bara átt sig.
Aðalsteinn Júlíusson hafnarmálastjóri.
P. s. Góði Eykon, segðu honum Matta að hætta að birta
þetta rugl úr honum Alfreð, oddvita í Grímsey, í Moggan-
um. Það væri strax skárra, ef helvítið fengi hvergi inni nema
í Þjóðvilja eða Tíma, sem enginn tekur mark á. Getur ekki
lika einhver góður augnlæknir farið norður og gefið karl-
inum læknisvottorð upp á það, að hann sé með sjónskekkju.
Karlhólkurinn er alltaf að tala um, að garðurinn, sem ég
lét byggja í höfninni gegn ráði Grimseyinga, sé úti í ballar-
Shepard og Mitchell klitu gígfjall í gær
fi.jO C' £ »
Fundu tunglfararnir grjót
sem er jafngamalt tunglinu?
6