Spegillinn - 01.03.1971, Blaðsíða 7

Spegillinn - 01.03.1971, Blaðsíða 7
Þingeyingaljóð Nú skal ort um þá Mývatnsmenn, margar hvar gerast sögur. Sitthvað hreytist, þó er þar enn útináttúran fögur. Meðan um sveitir beggja blands bögur hávœrar fjúka, verndi þar allar vcettir lands Vindbelg og aðra hnúka. Lœtur frá hœstum hefðartrón Hermóður boð út ganga: Otterstedt jafnt og önnur flón iðka háttsemi ranga. Uppvœgur ég til ykkar kem, ef þessir djöflar vilja rífa burt grös og runna, sem rollurnar eftir skilja. Þjóðin er öll á flugi og ferð fossa og grös að verja. Kempur hnútum og kvœðagerð kasta í þá, sem herja. Iðka spjaldburð og orðafar allir, sem ganga og skokka. Konur við sögu koma þar, klæddar í rauða sokka. Eigi hrœðumst við orðin grimm. Eftir mun gnægð af ráðum. Svo verða þessir 65 settir í tugthús bráðum. Raknar úr málsins rembihnút, rýmkast í sölum finum. Herrarnir syðra hleypa út Hraun- og Stein-búum sínum. ,,BIessuð sértu (nú) sveitin mín sumarfögur með leirinn, ,,engið,fjöllin (og) áin þín“, angandi morgunþeyrinn. Jafnan ef einhver auðvaldsblók yfirgang fer að sýna, standi þar einsog stafur á bók Starri og Jakobína. Björn

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.