Spegillinn - 01.03.1971, Page 9

Spegillinn - 01.03.1971, Page 9
SMÁAUGLÝSINGAR Tek að mér að telja fram til skatts fyrir lögfræðinga. Sigurður skógarvörður. Okkur er ljúft og skylt að banna allan flutning á verkum okkar í norska ríkisútvarpinu. Þeir færu þá kannski að biðja um eitthvað frá okkur. Rithöfundasamtök íslands. Lofið þreyttum að sofa og bannið þeim það ekki, því að þeir munu vizku hljóta. Jón Skaftason. Áður en ég tek að mér að bjarga þjóðinni, vil ég skrif- lega skuldbindingu Vegagerð- arinnar um, að hún kaupi ekki vegavinnuvélar í sex ár, Hafn- armálaskrifstofunnar, að hún kaupi ekki fjarðalokunarvélar í sex ár; og stjórnmálaflokk- anna, að þeir taki ekki í sex ár upp hugmyndir mínar um nýtt stjórnkerfi á íslandi. Sverrir Raunólfsson. Sé um að taka á móti tilboðum í verk á vegum Pósts og síma og samgöngumálaráðuneytis- ins. Réttur áskilinn til að taka hæsta boði eða hafna öllum. Ingólfur. Hér með vottast, að sýslumað- ur Húnavatnssýslu hefur næga greind til að sjá mun á dauðri hryssu og ófæddri. Björn ríki á Löngumýri. Héðan í frá eru öll ummæli um lögfræðinga bönnuð í ríkisút- varpinu. Bannað er að ræða um þá sem stétt og sem höf- unda, hvort heldur er höfunda skattaskýrslna eða höfunda út- varpsþátta. Útvarpsráð. Vantar hentuga stöðu handa Þórarni Þórarinssyni ritstjóra, sem ég þarf að koma í frí á næsta ári. Tómas um-Tíma-ritstjóri. Við viljum fá að komast í sjónvarp og enginn á að fá það nema við. Félag alvörulistmálara. Þegar ég stakk upp á fjárveit- ingu í nýjan gagnfræðaskóla í Mosfellssveit, átti ég ekki við þennan venjulega gagnfræða- skóla, sem þar er, heldur gagn- fræðaskóla fyrir huldufólks- börn. Jón Skaftason í Sparisjóðnum. Tek að mér að létta verktökum heimreiðarinnar frá Reykjavík að Hellu raunir þeirra með því að láta vörubílstjóra á Sel- fossi taka hluta af verkum þeirra í reikningsvinnu. Ingólfur. Það vottast, að vinstri viðræð- urnar gengu vel. Einu sinni tókst að ná öllum saman, og það þurfti ekki einu sinni að kalla til lögreglu. Gylfi. Hér með tilkynnist, að hér eftir munu engir fá listamanna- laun, nema þeir hafi náð sjö- tugsaldri og hafi einhvern- tíma fengizt við búskap eða verið ritstjórar dagblaða. Helgi Sæm og Halldór á Kirkjubóli. Framtakssamur maður, sem vill koma þessu FÍB fyrir katt- arnef, getur fengið að laun- um hundraðshlut í umfram- skatti bifreiðaeigenda, sem nam 726 milljónum á síðasta ári. Lesið veðurspár vorar og skýja- ferðir í Tímanum. Glókollur og Álfur úr hól. Skrifið vinsamlegast undir á- skorunarskjal til mín um, að ég fari í framboð utanflokka í vor. Ég mun taka áskorun- inni, ef þátttakan í henni verð- ur ekki minni en hinn frábæri stuðningur, sem Kópavogs- menn sýndu mér í prófkjörinu í haust. Sigurður Helgason spariráðsmaður. Vantar tilfinnanlega fleiri og æðisgengnari ævintýri til að lenda i. Vantar landið allt fyr- ir áætlanir mínar, þar á meðal ríkissjóð og forsetaembættið. Ég fer úr landi, ef ekki verður gengið að kröfum mínum. Sverrir Raunólfsson. Höfum opnað nuddstofu í flug- málaráðuneytinu. Loftleiðir hf. Sérfræðingur í mati á lista- mönnum. Tek að mér að á- kveða hvers kyns verðlaun og starfsstyrki til listamanna, hvaða nafni, sem þeir nefnast, hvar í kratahreyfingunni, sem þeir standa. Látið vanan mann meta yður til fjár. Helgi Sæm í úthlutunarnefnd listamannalauna. Helgi Sæm í úthlutunarnefnd starfsstyrkja. Helgi Sæm i úthlutunarnefnd verðlauna Norðurlandaráðs. Helgi Sæm í úthlutunarnefnd rithöfundasjóðs ríkisút- varpsins. Tek að mér að drepa flugfélög fyrir hóflega borgun. Jónas Guðmundsson stýrimaður. Vér erum forustusveit einka- framtaks og frjálsrar sam- keppni. Sölumiðstöð Hraðfrystihús- anna og Stefán Gunnlaugsson. Þeir, sem halda því fram, að ég hafi stolið Skjónu fyrir 13 árum, eru greinilega áhang- endur þjófamafíunnar, sem of- sækir mig. Björn ríki á Löngumýri. Ef yfirmenn á togurum stein- hætta ekki allri Hermóðsku í sambandi við launamálin, sjá- um við oss tilneydda til að gefa upplýsingar um ýmsar aukasporslur þeirra, án þess að nokkuð sé gefið í skyn. Bjórútgerð Reykjavíkur. „Þeir vildu mig ekki en vildu mig samt“, heitir óður Jónas- ar Péturssonar til Austfirðinga. Gefin út á kostnað LÍV. Landssamband íslenzkra Hermannssona. Vanur maður óskast til fiður- hreinsunar. Ásberg Sigurðsson. Lofið Ástralíuförunum að koma til mín og bannið þeim það eigi. Jóhann forsætis. Tékkhefti tapaðist í Vatns- mýrinni fyrir 13 árum. Skil- vís finnandi hafi samband við undirritaðan, en alls ekki við Leif Magnússon. Agnar Koefod. Ingólfur.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.