Spegillinn - 01.03.1971, Blaðsíða 20
*
Voða verður gaman þegar við
eigum afmæli
Einu sinni voru litlir strákar að leika
sér saman í stórum, stórum sandkassa.
Þetta voru sætir, litlir strákar, ekki
hrekkjusvín, heldur góðir strákar, sem
léku sér fallega:
Matti: Heyrðu, Glókollur, hvað eig-
um við að gera, þegar við eigum af-
mæli?
Glókollur: Við skulum byggja, Matti.
Við skulum byggja sveitabæ, alvöru
sveitabæ, alveg eins og við sáum á
mynd í bókinni í skólanum.
Matti: Ægilega ertu klár, Glókollur.
Við skulum gera þetta. Við skulum fá
hann Hörð með okkur til að byggja
svona hús. En eigum við ekki að gera
fleira ?
Glókollw: Jú, við skulum byggja fleiri
hús. Við skulum byggja hótel, stórt,
stórt hótel, sem mundi taka alla gest-
ina, sem kæmu að heimsækja okkur á
afmælinu. Hann Gulli Rós sagði, að
svoleiðis hótel væri svo gaman að
byggja á Þingvöllum, þar sem við ætl-
um að leika okkur, þegar við eigum
afmæli.
Matti: Við skulum hafa það stórt
hótel, miklu stærra hótel en nokkuð
hótel, sem við höfum séð. Heyrðu, Gló-
kollur, svo skulum við líka byggja veg
að húsinu, finan veg, sem við getum
keyrt bílana okkar á og allir gestirnir
geta keyrt á líka.
Glókollur: Heyrðu, Matti, eigum við
ekki líka að skrifa leikrit saman og
láta Gulla Rós gefa okkur verðlaun ?
Matti: Og líka kvæði til að syngja.
Við skulum láta alla syngja, og Aski
spilar undir. Guð, hvað ég hlakka til.
Við skulum biðja pabba okkar að gefa
okkur mikla peninga til að kaupa
fyrir.
Glókollw: Við skulum líka byggja
hús úti í eyju, úti í Viðey, og láta alla,
sem koma til okkar, fara þangað með
bátum.
Matti: Og við skulum biðja strákana
að hjálpa okkur, alla stráka, sem við
þekkjum. Við skulum byggja þjóðhýsi
og alþingishús og stjórnarráðshús og
Glókollw: Og við skulum láta skrifa
um okkur bók, stóra, stóra bók, sem
segir, hvernig við urðum til og allt.
Matti: Ja-há, við skulum meira að
segja fá hann Sverri til að skrifa svona
bók. Hann hefur alltaf skrifað svo
fallega um mig, hann Sverrir.
Glókollw: Við skulum aldrei láta Óla
Jóns skrifa um okkur bók.
Matti: Uss!
Glókollw: En hvað eigum við að gera
sjálfir, Matti?
Matti: Við stjórnum öllu. Þú átt að
þykjast tala í símann og stjórna. Ég
ætla að þykjast skrifa um það, sem við
gerum, og halda ræðurnar.
Glókollur: Eigum við nokkuð að leyfa
hinum að vera með, sem ekki eru vin-
ir okkar?
Matti: Nei, bara við og Gulli og góðu
strákarnir.
Báðir: Voða verður gaman, þegar við
eigum afmæli, liggaliggalá!
20