Spegillinn - 01.03.1971, Qupperneq 21

Spegillinn - 01.03.1971, Qupperneq 21
 Vegna sérstöðu íslendinga meðal þjóða heimsins, hvað gáfur snertir, hefur ekki tekizt að koma neinum mælingum við á greind þeirra. Allar tilraunir Matta sál og annarra síkkópatara hafa bara verið eins og hver önnur trix út í loftið. Sem dæmi um gáfnafar íslendinga má nefna, að jafnvel sjálf ríkisstjórnin undrast stórlega, að þjóðin skuli kjósa þessa sömu ríkisstjórn yfir sig kosn- ingar eftir kosningar. Ráðherrar skip- uðu nefnd eftir síðustu kosningar til þess að kanna þetta sérstæða gáfna- far og hversu hægt yrði að mæla það. Nefnd þessi hefur nú þegið laun í hartnær fjögur ár og kemst hún að þeirri niðurstöðu, að eina ráðið til þess að mæla greind íslendinga sé að mæla þá hver við annan. - Með aðstoð tölvu Háskólans tókst að vinza úr nokkra menn, sem höfðu þá lágmarks- greind, sem unnt yrði að styðjast við í mælingunum. Loks var valin úr ein persóna, sem talin var bezt fallin fyrir hið nýja kerfi. Greind þessarar persónu hefur stuðulinn einn, sem er sú greind, sem fólk kemst af með minnsta. Mann- leg greind fyrir neðan þennan stuðul mun að vísu finnanleg, en hún er þó naumast mælanleg, enda ekki nema örfá slík tilfelli til. Hið nýja kerfi hef- ur verið skírt eftir þessari persónu, sem fundin var vestur í Háskóla og heitir það Ólíó-kerfið (nafnið nokkuð stytt). Spegillinn hefur nú ákveðið að slá þessu ólíó máli á nokkra kunna lands- menn, svona til fróðleiks og skemmt- unar lesendum, og mun slíkum mæl- ingum verða haldið áfram í næstu blöðum. 10 S 4 3 2 i>í 1 o ■=r7 +2 +3 f----ibV'! M/£>Ug rfrTcJM v/£> axjt/ myasö AF VÓA/t Sf'AFr/f- 21

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.