Spegillinn - 01.03.1971, Qupperneq 26
Hjónin í húsinu sínu
Það er eins og hver annar hæfi-
leiki, sem manni er gefinn, að
vera fljótur að læra hlutverk,
segir leikkonan og brosir við
manni sínum, trompetleikaran-
um, sem brosir á móti og blæs
í kaun, því að honum er kalt
eftir að hafa staðið úti í kuld-
anum við að byggja yfir þau
einbýlishús uppi í Mosfellssveit.
Spegillinn sótti leikkonuna heim
í tilefni af því, að henni hefur
nú verið boðið að leika príma-
donnuna í söngleiknum Rugg-
unni í kunnu húsi suður í Prúss-
landi.
Það verður stórkostlegt að
smakka þýzka bjórinn aftur, seg-
ir trompetleikarinn. Hann hef ég
ekki smakkað síðan 1967. Ég
ætla honum alla vega pláss hérna
niðri í hobbýherberginu mínu í
einbýlishúsinu mínu, þessu húsi,
sem ég hef unnið hörðum hönd-
um við að byggja, svo að þessar
sömu hendur titruðu á kvöldin,
þegar ég lyfti trompetinum mín-
um á tónleikum, og þegar ég
blés í trompetinn, titraði á hon-
um maginn. Ég . . .
Ég hef víða leikið, segir leikkon-
an, aðallega í Texas og Evrópu,
þar sem ég kom meðal annars
fram í búningum, sem Grace
Kelly og Sophia Loren höfðu
borið í kvikmyndum. Ég lék
líka í Söru Bernharðs leikhús-
inu í París og í Briissel og í . . .
Ég hef líka leikið, segir trompet-
leikarinn, maður leikkonunnar,
ég lék í sinfóníunni, og víðast
hvar, þar sem heyrist í trompet,
þar stend ég á blístri . . .
Svo fór ég til Danmerkur, svona
til að nálgast ísland, segir þá
leikkonan og klórar sér í nef-
inu, og okkur dettur í hug, að
hún hafl sennilega bein í því.
Ég vildi kynnast einhverju al-
vöru leikhúsi, áður en ég kom
til íslands, og læra meira . . .
Ég lærði líka, segir trompetleik-
arinn og fer að hita kaffi.
Við þökkum leikkonunni fyrir
spjallið og höldum út í snjó-
komuna og dimmuna í Mosfells-
sveit, þar sem þau hjónin eru
langt komin með húsið sitt og
una hag sínum vel, þaðan sem
þau eru samferða í bæinn í
vinnuna og heim á kvöldin, og
okkur fmnst þau alveg draumur
í dós.
Gunni og Solla.
26