Spegillinn - 01.03.1971, Blaðsíða 27
Getraun Spegilsins
Hver er höfundur fréttarinnar ?
Samkvæmt heimildum norsku frétta-
stofunnar, NTB, sem eru áreiðanlegar,
að því er talið er, munu bardagar hafa
verið með eðlilegum hætti í Víetnam
undanfarinn sólarhring.
Lundúnafregnir herma, að háttsettur
talsmaður í ráðuneyti í Saigon, hafi
sagt við fréttamenn frá Associated
Press, Reuter og NTB, að ekki væri
mark takandi á óstaðfestri flugufregn
frá fínnsku blaðakonunni Juttu
Skuggaleinen, sem í fréttaskeyti til
Pósthólf 594
Því miður fékk ég ekki Spegilinn síð-
ast og fellur það illa, því að Spegillinn
er eins nauðsynlegur og hin stjórnar-
blöðin. Já, oft er þörf og nú er lífs-
nauðsyn að fylgjast með stjórnmála-
lífinu, þegar verðstöðvunin er komin
á kaffið, bensínið og ýsuna, og svo
þessi árlega verkfallaflóðbylgja að
skella á og skola síðustu efnahagsráð-
stöfununum út í hafsauga. Nú er orð-
ið ófriðvænlegt í landi, Freymóður
runninn á suma og Hermóður á aðra,
og má heyra vopnabrak og sýrugutl
úr ýmsum áttum, svo vissara er að hafa
NTB skýrði frá því, að Víetcong-liðar,
það er hermenn Þjóðfrelsishreyfingar-
innar, undirbyggju nú stórsókn til að
flytja vistir, hergögn og matvæli, til
kollega sinna norðan við 17. breiddar-
baug, það er að segja friðuðu spild-
una.
Ennfremur segir í fregnum dönsku út-
varpsstofunnar Kalundborg snemma í
morgun, að hryðjuverkamenn hafi
sprengt í loft upp forsetahöllina i
Saigon, hina fegurstu byggingu. Ekki
gát á öllu og fylgjast með fréttum. Og
svo eru kosningarnar á næsta leiti,
þegar við atkvæðin ráðum í einrúmi
kjörklefans og heitum hæstvirtir kjós-
endur, en landsfeðurnir og þeir, sem
langar til að verða landsfeður, hafa
allt í einu áhuga á öllum mögulegum
hlutum, að maður tali nú ekki um
vitið, góðviljann og peningana, sem
þeir ausa útfrá sér. Verst hvað tíminn
er stuttur fyrir vorkosningar til fram-
kvæmda. Það ætti að kjósa á haustin,
því að þá er heilt sumar til að vinna að
kosningaframkvæmdum í næturvinnu,
áður en millikosningadáið leggst á allt
aftur. Það er svo gaman að hlusta,
horfa og lesa, að maður getur næstum
því gleymt því, að kosningavíxillinn
fellur í haust eins og íjalaköttur ofan
í skattgreiðendur.
Með beztu kveðju,
6819-2900
er vitað, hver heimildarmaður frétt-
arinnar er, en sagt er frá því, að Banda-
ríkjamenn dulbúnir sem suðurvíet-
namskir hermenn hafi í hyggju að
fleygja táragassprengjum á Mekong-
óshólmana til að svæla út Víetcong-
liða, sem hafa haldizt þar við í nokkur
.ár.
Siðustu fregnir frá NTB-fréttastofunni
norsku herma, að allt hafi verið með
kyrrum kjörum að öðru leyti í Víet-
nam milli níu og tíu í morgun.
Arétting
úr
Dölum
Þar sem sýslunefnd Dalasýslu
sendi auglýsingu sína í síðasta
Spegli lítt þenkta, sendast hér
með frekari skýringar nefndar-
innar ásamt frómum viðbótar-
óskum.
1) . Drottningamæður skulu þær
heita, sem af sér hafa fætt drottn-
ingar, EF afkvæmin hafa reynzt
eða reynast undirmálspíkur sam-
kvæmt kroppamælingum. Heitir
sú nafngift mæðrasómabætur.
2) . Sýslunefndin beinir því til
heilsumálaráðherra að BANNA
Pilluna í Dölum.
3) . Sýslunefndin skorar á Gylfa
að lögfesta nú þegar einkarétt
Dalamanna á Staðarfellsskóla-
meyjum til allra nytja og án
mannbærnikrafna. Skulu lög þau
inntökuskilyrði. Ókvæntir Fells-
strendingar vitlausu megin við
þrítugt gangi fyrir.
Þökk fyrir fyrri auglýsingu vora.
Dalakútar.
BLIÐUHOT MEÐ,
27