Stúdentablaðið - 01.12.1926, Síða 13
1926
STÚDENTABLAÐ
7
Fyrv. form. Stúdentaráðsins
Stud. mag'. Þorkell Jóhannesson.
Minningar
frá nýlensku stúdentadeildinni
(Nylands Nation).
Sama daginn og eg kom til Finnlands
fylgdi prófessor H. Pipping mér til húsa
nýlensku stúdentadeildarinnar (Nylands
Nation) og var eg þar ritaður, sem gest-
ur, á stúdentaskrá deildarinnar, en for-
maður hennar (kurator) bauð mig vel-
kominn sem Nýlending.
Nýlenska stúdentadeildin er stærsta
deild finnlenskra stúdenta. Ilún tekur við
stúdentum úr Nýlandi, sem er stærsta og
fjölmennasta Svíabygð í Finnlandi. Hefur
deildin reist sér veglegt hús með rúmgóð-
um veislusal, skála að fornum sið, með
öndvegi umsjónarmanns (inspectors) fyr-
ir miðjum vegg gegnt dyrum, leiksvið í
öðrum enda og glugga með lituðu gleri í
hinum, en nöfn margra góðra og geng-
inna Nýlendinga eru skráð á rúðurnar.
Yfir öndvegi hangir skjaldarmerki Ný-
lands: bátur á bárum, en veggina prýða
annars málverk af umsjónarmönnum
deildarinnar, eða öðrum merkismönnum
hennar, eftir fræga málara (eins og A.
Edelfeldt), meðal þeirra getur að líta
mynd af Eugen Schauman, manninum,
sem skaut rússneska landsstjórann, hinn
illræmda Bobi ikov, og' leysti svo landið úr
ánauð með lífi sjálfs sín (16. júlí 1904).
T þessum sal koma Nýlendingar saman
á hverju þriðjudagskvöldi, til þess að
íæða áhugamál sín og til þess að skemta
sér á stúdenta vísu. Ef alvarleg mál eru
á dagskrá, þá sitja þau fyrir; „samkvæm-
ið“ byrjar með fundi. Umsjónarmaður,
sem ávalt er einn af prófessorum há-
skólans, hefur forsætið og stjórnar fund-
inum, en formaður deilarinnar, kura-
tor eða einhver annar, sem til þess er val-
inn, reifar málið. — Margt merkilegt
hefur gerst í þessum sal og afdrifaríkt í
sögu Finnlendinga á síðustu tímum. Hér
komu menn sér saman um það, að senda
unga menn til Þýskalands, til þess að
nema hernaðarlist, svo að Finnland ætti
á að skipa innlendum foringjum, ef til
þess kæmi, að þeir brytu af sér ok Rússa.
Það voru ,,jágarna“, veiðimennirnir, sem
böiðust með Þjóðverjum gegn Rússum og
komu síðar að ómetanlegu liði í frelsis-
stríði Finnlands.
Mikilvægasta málið á dagskrá hjá Ný-
lendingum, veturinn, sem eg var þar, var
fjársöfnun til aukningar menningarsjóði
allmiklum, er Nýlendingar hafa átt frá því
1874 (Kieseleffska donationsfonden) og
varið sérstaklega til að styrkja stúdenta
og listamenn til rannsókna og utanlands-
ferða. Fénu var safnað með stórri hluta-
veltu, kvöldskemtunum og með því að