Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Blaðsíða 20

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Blaðsíða 20
14 STÚDENTABLAÐ 1926 una, lifa hinu frjálsa, vilta lífi, öllu óháð- ir, nema eigin dutlungum og eigin lund. Einnig þeir sitja nú í litlu kránni við Ferjusjó inst við hjarta Bayaraalpanna og hafa höndlað æðsta hnoss lífs þeirra, það að mega spangóla óhultir eins og þeim þóknast best. — Það er stytt upp. — Einn af öðrum gengur út. Sól skín í heiði, regn- dropar glitra á'laufum trjánna, snæviþak- inn hnjúkur Meilerhútte tindrar í geisla- flóðinu og Ferjusjór, sem nú liggur lá- dauður á ný, umvefur alla þessa marg- víslegu fegurð og felur í djúpum sínum. — Nú eru allir komnir út. í ljúfum sogum teyga menn að sér tært fjallaloftið. Hrifn- ing yfir hinni undursamlegu dýrð, sem þania býr, gagntekur alla og standa allir steinhljóðir. I ósnortnu riki þessarar draumkendu fegurðar verða öll orð of hversdagsleg og sitja dauð á vörum. Á friðsælustu stöðvum á þögnin best heima og á fegurstu stundum fær hún ein mælt. — Hópurinn dreifist. Leiðinni er haldið áfram. — Páll Þorleifsson. -----o---- Norræna stúdentamótið f Lubeck. „Þegar vér minnumst eftir á þessara daga, þá getum vér hiklaust sagt, að mark- miði þessa stúdentamóts hafi fullkomlega verið náð. Meðal hinna norrænu gesta, sem yfirleitt töluðu ágæta þýsku, og hinna þýsku félaga þeirra, hafa verið bundin þýð- ingarmikil persónuleg vináttubönd. Næsta viðfangsefnið verður að treysta þessi bönd enn betur, til þess að ryðja veg andlegu bræðralagi meðal þýskra og norrænna há- skólaborgara. Og eigi þarf að efa, að jafn velhepnaðri byrjun fylgi giftudrjúgt fram- haldu. Á þessa leið ritaði eitt Lybikublaðanna um stúdentamótið í Lúbeck 31. maí til 3. júní þ. á. og er það réttilega mælt. Að svo miklu leyti sem hægt er fyrirfram að tala um árangur slíkra móta — því að hann á að koma betur í ljós síðarmeir, í nánara andlegu sambandi milli hlutaðeig- andi þjóða, aukinni samvinnu og skilningi — má ætla að mót þetta hafi tekist ágæta vel. Var það einkum að þakka ritara Nor- dische Gesellschaft, dr. Stodte, sem með óþreytandi elju og dugnaði hafði undir- búið mótið og séð að miklu leyti um það með aðstoð Studentenschaften des Kreises II og des Auslandamtes der „Deutschen Stu- dentenschaftu, sem í félagi við Nordische Gesellschaft hafði efnt til þessa boðs. Voru mættir, auk fulltrúa frá fjórum háskólunum á Norður-þýskalandi (Kiel, Hamburg, Rostock og Greifswald), fulltrú- ar frá Danmörk, Noregi, Svíþjóð, Finn- landi og einn frá íslandi — alls ca. 85 manns. Mótið hófst að kveldi hins 31. maí í Schabbelhaus, eldgömlu húsi í Meng- strasse, er ber nafn sitt af bakara einum, sem varið hafði eigum sínum til að hressa við hinn gamla lybiska byggingarstíl og láta búa það að húsgögnum eftir fornum hætti. Var þá allur þorri fundarmanna kominn. Þar voru sérstaklega ávarpaðir fulltrúar hvers háskóla fyrir sig — heyrði eg sagt — og þar á meðal Reykjavíkur- háskóla. En undirritaður, sem mætti fyrir íslenska stúdenta, gat af vissum ástæðum eigi komið fyrr en kvöldið eftir. — Höfðu þarna verið fluttar nokkrar ræður og eink- um rætt um andlegt sámband milli nor- rænna, germanskra þjóða. Ilefði verið æskilegt, að þar hefði að einhverju leyti verið minst þess hlutverks, sem ísland á í menningarsögu hins norræna kynbálks, en þess var engi kostur, því að eg vissi eigi með neinum sannindum um fund þenna fyrr en morgunin eftir, er Nor- dische Gesellschaft sendi mér skeyti suð- ur til Berlin og bað mig að koma.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.