Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Page 19

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Page 19
1926 STÚDENTABLAÐ 13 þá varðk villr vega: auðigr þóttumk, es ek annan fann, maðr es manns gaman“. Því hefir verið haldið fram, að langvinn innivera sé mesta böl, sem manninn geti hent. Og að einangrun frá öllum mannleg- um félagsskap sé svo óeðlileg og grimmi- leg hegning, að hún sæmi ekki siðuðum þjóðum. Og svo segir í Hávamálum: „Hrörnar þöll, sús stendr þorpi á, hlýrat henni börkr né barr; svá es maðr, sás manngi ann; hvat skal hann lengi lifa?“ Gunnlaugur Indridason. Við Ferjusjó. Við Ferjusjó sit eg lengst uppi í Bayara- ölpum úti fyrir lítilli krá. Alstaðar um- hverfis sitja rennsveittir ferðalangar, komnir ef til vill um óra, óra vegu, seydd- ir úr solli og glaum bæjanna til samvist- ar við hin frjálsu fjöll, sem þekkja enga menning, engar sorgir og enga tilgerð. Útsteyttar ölvambir, sem minna helst á kýlda ullarsekki, tærðir, íbognir ungling- ar, fórnarlömb stórborganna og ungfrúr með klipta kolla og á stuttbuxum sitja þarna í faðmlögum við hreint og ómengað fjallaloftið. Ung þeraa í bayaraþjóðbún- ingi ber ölið fram. Hún er seinlát og tal- ar fátt, en þó örugg og ákveðin í fram- göngu. Augun eru djúp og dökk. Þau bera þess vitni að hún sé rík af ástríðum og eigi sér djarfa, óuppfylta drauma. — Þarna kemur þá Dr. Haymann, læknirinn frá Leipzig. Hann hefur verið að synda í Ferjusjó. Við hlið hans rennur drengur hans, ærslabelgur á 11. ári, sem kveður óbilgjarna dóma upp um menn, sé því að skifta, tínir löng hár af herðum karl- manna undir borðum og lifir í líðandi stund. Dr. Ilaymann spyr: „Farið þér í bað?“ — „Nei, því miður hefi eg engin baðföt“. — „Baðföt! hér eru mín, gerið þér svo vel“. Eg labba inn eftir lengra, leita mér að hentugum stað til að af- klæða mig. 1 för slæst Þjóðverji, stuttur og digur. Hann er um þrítugt, með hom- spangagleraugu, enni lágt, nef útsett, augu grá, talar gjarnan um sjálfan sig, um ferðir sínar og fyrirætlanir. Göngu- lagið er vaggandi og eins og hann stikli á þúfum, þó að hann gangi á sléttum vegi, sveiflast þá fjaðraskúfurinn í hatti hans fram og aftur eins og takt- mælir. — Við búumst við regni, klæðum okkur úr undir hlöðuvegg. — Regnið streymir niður, þrumur og eldingar skift- ast á, fjöllin kveða við. „Það er hættu- legt að fara í vatnið í þrumuveðri“, seg- ir sá stutti. Eg læt mér það að kenningu verða og baða mig í þess stað í ausandi regninu. — Það er kalt. — Því fór Dr. llaymann að bjóða mér baðföt í þessu veðri? — Aftur göngum við inn að litlu kránni við Ferjusjó, hittum þar mýg'rút ferðamanna, sem sitja nú inni og verma sig. Baðstofuhitann leggur út á móti okk- ur, gufustrókarnir leggja upp af hverjum einum, sameinast allir í einn mökk, sem sveimar vandræðalega yfir freyðandi öl- krúsunum og glöðum gestunum. í einu horni sitja fjórir heljarmiklir beljakar Þeir hafa drukkið fastan og ölið er stigið þeim til höfuðs. Það losnar um einhver bönd, sem endranær sitja föst og vandlega hnýtt. Þeir eru allir í innilegustu faðm- lögum. Þeir syngja eða öllu heldur span- góla, hátt og skerandi og laglaust. Því gátu þeir ekki setið heima og kyrjað þar? Nei, þar býr menningin og lögreglan. Fyr- ir þessa söngva hefði þeim verið borgað með beinhörðu fangelsisgólfi, röku, fúlu lofti og litlum skjáglugga. Einnig þeir eru hingað komnir til að flýja menning-

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.