Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Side 26

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Side 26
1926 STÚDENTABLAÐ 20 eru máttugir og kunnátta þeirra skal breyta þér í ís. Þú skalt flytja með þér kuldann og hræðast sólina“. Kóngurinn hafði mælt. í sama bili kváðu við ömurlegir ómar, Seiðmenn konungs léku hráköldum flngrum á dimmróma hörpur. Það voru samskonar lög, sem heyrast er brimið nauðar á næturþeli við hamra- björgin. Stígandi — fallandi — feigðar- hljómar. Kóngurinn horfði hvössum augum á dótt- ur sína. Hann átti kalann og vald hans. Hún átti ástina og hennar mátt. Allir horfðu á kóngsdóttur. Þeir bjuggust við að sjá bláhvíta íssúlu stíga upp að yfirborði sjávar. Harðúð og ást háðu stríð, kuldi og hiti. Að vörmu spori var dóttir sækóngsins horfin, en silfurhvít þoka leið yfir blæ- lygnan hafflötinn. Þar sem hitinn má sín nokkurs verður aldrei ís. — Hefurðu séð þokuna líða yfir enda- lausa ægisanda? Flókarnir koma einn eft- ir annan, léttir og hálf-gagnsæir. Það er eins og riddarar ríði í fylkingu upp úr hafinu. Hefurðu séð bana yfir mýrunum, þegar sólin skín á háhimni og úðinn glitr- ar í geislunum? Þá er þokan eins og bros í tárum. Hefurðu séð þokuna hvíla á fjöll- unum eins og brúðarslæðu úr fíngerðu silki, eða sitja á tindunum eins og skygð- an hjálm á hetju? En hún getur líka verið ægileg og skot- ið skelk í bringu. Hún færir skipin í viðj- ar, mjúkar en þéttar, hún villir vegfar- anda — gerir ófreskjur og forynjur úr steinum og hólum. Og nú sást þokan fyrsta sinni. Það var heiðmyrkur — himinn heiður hið efra, en myrkur með jörðu. Smalinn frá Garðshorni var á leið að sjónum. Hann ætlaði að finna þá, sem hann unni heitast — þá, sem hafði víkkað sjón- hring hans alla leið ofan í hafsins dimma djúp. Smalinn hljóp og kvað við raust. Söng- ur hans endurómaði frá fjallahlíðum og björgum. Þegar hann kom lengra ofan í dalinn, mætti hann þokunni. Það var fyrsta sinn, að dóttir sævar- kóngsins kom á land upp. Hún grét — tár- in hennar féllu á jörðina. Hún faðmaði að sér unnustann sinn. Hann fann hrollkaldan úðann um brjóst sitt og andlit. Smalinn hljóp. Hann vildi ná til þeirrar veru, sem nú var alt í kringum hann, sveipaði hann sjálfri sér, en vék þó fyrir hverri hans hreyfingu. Hún, sem hann leitaði að, var hjá hon- um. Hana sem hann elskaði, þekti hann ekki. Hann var í hárri brekku og nam stað- ar til þess að litast um, en sá ekkert. Hann stóð kyr eitt andartak, en þegar hann ætl- aði að halda áfram, gat hann ekki hreyft sig. Hann var orðinn að steini. Það voru hans eigin álög. Hvort hann losnar nokkurntíma, veit eg ekki. — Ennþá líður þokan yfir fjöll og fjörðu. Hvað eftir annað hef eg séð hana vefja sig um klettinn uppi í hlíðinni. Tárin hennar væta hann allan. Smalinn á ennþá ást kóngsdótturinnar, en harður steinninn finnur ekki atlot hennar. Hann þekkir ekki þá, sem hann elskar, þegar hún kemur í annarri mynd, Og þó hafði hann sagt: „I augum þínum mætast himinn og haf. Þig mun eg ætíð þekkjau. Jakob Jón&son frá Hrauni.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.