Stúdentablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Qupperneq 5

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Qupperneq 5
3 STÚDENTABLAÐ skipulagsskrá, er stjórnin samþykkir, hafa verið sett um hana“. Þar sem telja má, að lóð sé fengin, virðist vera kominn tími til þess að hefjast handa. í upphafi var áform- að að hafa eina bygging fyrir 45 stúdenta og var kostnaðaráætlunin 300—350.000 kr. Sigurður húsameistari Guðmundsson gerði uppdrátt af stúdentagarði, er standa skyldi á Skólavörðuhæðinni, en nú hefir verið horfið frá því ráði, en uppdráttur hans var miðaður við þann stað. Komið hefir fram hugmynd um, að reisa heldur tvö liús, og hefir hún ýmsa kosti, einkum þann, að unnt væri að byrja þegar á annarri bygg- ingunni. I fi'amtíðinni má gera ráð fyrir, að á háskólalóðinni verð’ reistar margar bvggingar, rannsóknarstofur o. fl., en hún er svo stór, að auðvelt yrði að koma fyrir stúdentagarði löngu áður en háskólabygg- ingin yrði reist. Skipuleggja þarf háskóla- lóðina og mun það væntanlega verða gert í vetur. Guðmundur prófessor llannesson hefir gert uppdrátt af stúdentagarði fyrir 35 nemendur og er hér sýnd herbergjaskipun cg fyrirkomulag. í kjallara er gert ráð fyr- ir eldhúsi ásamt nokkrum herbergjum fyr- ir þjónustufólk, íþróttasal, billiardsal, fata- klefa, smíðaklefa, geymslu o. fl. Á fyrstu hæð er borðstofa og lestrarsalur, bókalier- bergi, 3 einbýlisstofur og 2 tvíbýlisstofur. I.estrarsalurinn nær upp úr á 2. hæð og eru þar svalir í kring, en á henni eru 8 ein- býlisstofur og 4 tvíbýlisstofur. Á efstu hæð eru loks 4 einbýlisstofur og 4 tvíbýlisstof- ur. Uppdráttur þessi virðist að mörgu leyti mjög hentugur, þótt gera þurfi ef til vill á honum nokkrar breytingar. Stúdentagarður þessi yrði nál. 32 metra á lengd, en bygg- ir.garverð nál. 125.000 krónum. Stúdenta- garðsnefnd og stúdentaráð mun bráðlega ræða þetta mál, hvort halda eigi fast við gömlu hugmyndina um að reisa einn stúd- entagarð eða hvort hallast verður að ]?ví að gera ráð fyrir tveim stúdentabyggingum. Ef hið síðara verður ofan á, má vænta, að byrj- | JAKOB .1. SMÁRI: Kvenlýsing þú ert oi í'ós, on þú ert fögur lilja, í þýðum l)læ sem vaggast hægt um kvöld og dreymir blitt um blámans fjarlæg tjöld ý' á bakka þöguls straums og djúpra bylja. þú hefur töfrað bæði vit og vilja með vorsins rödd, sem þó er dáltið köld, og ekki gleymi' eg, hvorki’ um ár né öld, þvi öllu, sem á henni’ eg þóttist skilja. - Lát hlýrra sumars varma taka völd og vona glóðheitt sólskin loftið ylja; lát ljóma opið allt, sem þú vilt dylja, i ungra blóma sterkri litafjöld. þú verður seinna’ að greiða lífsins gjöld og getur horft til ókominna bylja. að verði á fyrri byggingunni að voi'i kom- anda. íslenzkir stúdentar verða að gera sér ljóst, að hin mikla fjárkreppa ríkissjóðs og þjóð- arinnar geti enn um stund tafið framlög ]>ings og stjórnar til háskólabyggingar og stúdentagarðs. Stúdentar hafa sjálfir safnað allálitlegri fúlgu til stúdentagarðs og þeir mega einnig vera við því búnir að taka þátt í fjársöfnun til háskólabyggingar, ef máli þessu á ekki enn að slá á frest um ófyrir- sjáanlegan tíma. Virðist því, eins og nú horfir við, vera hentugt að byrja á næsia vori að reisa stúdentagarð af svipaðri stærð cg Guðm. prófessor Hannesson gerir ráð fyrir. Það mun koma í ljós, að því fyr sem byrjað verður á stúdentagarði, því fyr verð- i i' háskólabygging reist. En sómi þjóðarinn- ar getur ekki beðið eftir því, að á þessum málum verði enn langur dráttur. Alexander Jóhannesson.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.