Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Síða 6

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Síða 6
4: STÍJDENTABLAÐ Stúdentamótið í Stokkhólmi 1S56 Kafli úr „Björnsfjerne Björnson", eftir Ágúst H. Bjarnason „Skandinavisminn“ svonefndi fór mjög í vöxt á þessum árum meðal norrænna stúd- fenta. Upp úr stríðinu milli Dana og Þjóð- yerja (1848—51), þar sem fjöldi Norð- manna og Svía höfðu gerzt sjálfboðaliðar í liði Dana, efldist hann mjög og voru stúd- ertamót þá haldin víðsvegar um Norður- lönd, t. d. í Kristianíu 1851, er Björnson hlustaði á Grundtvig. Og nú skyldi annað haldið í Stokkhólmi og Uppsölum 1856. Á þessum stúdentamótum var mikið talað um einingu og samheldni Norðurlanda í stríði og friði, þótt lítið yrði úr efndunum, er til kastanna kom, 1864, þá er Danir misstu bæði Iloltsetaland og Slésvík, óstuddir að mestu af Norðmönnum og Svíum. En nú voru menn fullir eldmóðs og áhuga og sóttu því mót þessi víðs vegar að. Ekki voru járnbrautir komnar í Sviþjóð þá, frekar en annars staðar, og sóttu menn því sjóleiðis suður um Skán, bæði frá Dan- mörku og Noregi. Björnstjerne var einn þeirra, er mótið sóttu; átti hann að vera fréttaritari „Morgunblaðsins" í Kristianíu. Ferðin, samvistirnar við hina mörgu, ungu stúdenta, hinar björtu nætur, allt þetta fyllti huga hans óumræðilegri hrifningu. Áhrifin ultu inn yfir hann og upptendruðu svo sál hans, að hann gat staðið tímunum saman, og þó helzt að næturlagi, þegar aðrir sváfu, frammi í stafni og haldið hrókaræður fyrir frelsinu, Noregi og Skandinavismanum. Hann ávarpaði jafnvel himin og haf. En enginn heyrði til hans, og aldrei þorði hann að taka til rnáls á mótinu. Hann komst aldrei lengra en að ræðustólnum og settist þá gjarna á neðsta þrepið. Þar sat hann bæði í Kalmar, Stokkhólmi og Uppsölum og hlustaði trúlega á hvert það orð, er flaug af vörum ræðumanna. En sjálfan dreymdi hann þá fagra og mikla drauma; hann hét sjálfum sér því, að verða einn af ræðuskör- ungum Norðurlanda, fulltrúi þjóðar sinnar og — skáld! I Riddarahólmskirkjunni í Stokkhólmi, þar sem helztu þjóðhetjur Svía, þeir Gústav Adólf og Karl 12. hvíla undir gunnfánum þjóðar sinnar og fjölda hertekinna fána, varð hann fyrir miklum áhrit'um og skildist hon- um þá mikilvægi sögulegra minja. Svipað þessum konungum höfðu þeir Ólafur JYyggvason og Ólafur helgi látið lífið fyrir trú sína og þjóð, er þeir voru að reyna að hefja til æðra menningarstigs. Og honum fannst hann sjálfur vera í ætt við slíka höfðingja. Ilann ætlaði líka að helga Noregi líf sitt. Og þess vegna hét hann nú sjálf- um sér þv, að varpa öllu fyrir borð, blað- skrifum og öðru, til þess að reyna að verða slváld. Og ósjálfrátt og óafvitandi hlaut hann nú vígslu sína til þessa. Björnson segir svo sjálfur frá þessu at- viki: „Ég þaut úr einni veizlunni í aðra og varð fyrir nýj um og nýj um áhrifum; og er ég nú loks, fullur skáldadrauma, gekk niður að höfninni í hópi danskra og norskra stúd- enta, til þess að stíga á skipsfjöl, þar sem riannþyr-pingin stóð til þess að kveðja okk- ur, veifaði til okkar höndum og varpaði til okkar blómum, gekk allt í einu ung stúlka fram úr mannþrönginni og rétti mér lár- viðarsveig". „Ég hörfaði undan. — Þarna var hún þá komin með leyndustu hugsun mínaogkrýndi hana. Mér fannst hún vera ímynd þjóðar- andans, sem vildi snúa eldmóði augnabliks- ins í sál minni upp í alvöru og starf, nú á íkilnaðarstundinni, svo að þetta yrði há- mark allra þeirra áhrifa, sem ég hafði orðið fyrir. Augnablik stóð ég eins og steini lost-

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.