Stúdentablaðið - 01.12.1932, Side 8
6
STÚDENTABLAÐ
siglutrjánna. Við reyndum samt að fá lok-
að augunum sem bezt við gátum fyrir
krepppunni, hér sem annarsstaðar á leið-
inni og gleymdum heldur ekki að kynna okk-
ur ofboð lítið skemmtanalíf Hamborgar og
þá vitanlega um leið hinn annálaða þýzka
bjór, sem svo ná-tengdur er þýzku félags-
lifi og þýzku þjóðlífi, svo að ekki sé minnst
p hið íslenzka stúdentalíf í Þýzkalandi.
En það var á læknanemamótið í Danmörku,
sem ferðinni var heitið! Hraðlestin skilaði
okkur til Ilafnar í tæka tíð og sunnudags-
iTiOrguninn 14. ágúst hefst mótið.
Söfnuðust þá þátttakendur saman í Rík-
isspítalanum, þar sem þeir voru boðnir vel-
komnir og kynntir hver öðrum.
Norðurlöndin öll tóku þátt í móti þessu
að undanskildu Finnlandi, sem ekki var
kleyft að mæta, en sendi kveðju sína á
mótið. Þátttakendur voru alls liðlega 70, um
eða yfir 20 frá hverju landanna, Danmörku,
Noregi og Svíþjóð, en 10 frá íslandi.
Eftir að ríkisspítalinn hafði verið skoðað-
ur, var stigið í bíla og seinni hluta dagsins
varið í skemmtiferð um Norður-Sjáland. Er
sú leið einkar fögur og skemjntileg, ekki
sízt fyrir þá sök, að á henni er „Studenter-
h.vtten“, sælureitur danskra stúdenta, um-
luktur af skógi, en fram undan kofanum er
lítið vatn. Hér er það, sem stúdentar koma
saman um helgar og í sumarleyfum sínum
til að teyga í sig sveitaloítið, sigla og róa
á vatninu eða baða sig í því og í Ijóshafi
solar. Ilér heyrast stúdentasöngvar með
margskonar hljcðíæi-aslætti og hér ríkir
frjálsræðið, því að hér hefir hinn rétti stú-
dentaandi fengið inni. — Við hugsum heim.
Daginn eftir hefst hinn vísindalegi þátt-
ur mótsins í „Universitetets fysiologiske
Institut“. Það er próf. Aug. Krogh, er hlot-
ið hefir Nóbelsverðlaun fyrir vísindaleg
siörf sín, sem byrjar með því að sýna mjög
fróðlegar kvikmyndir, er hann hefir sjálf-
ur tekið af blóðrásinni í háræðum líkamans
Við „Studenterhytten"
og af því hvernig næringarefnin ganga í
gc gnum þarmaveggina, heilbrigða og sýkta.
Kona hans, dr. med. Marie Krogh, sem
einnig er vísindamaður, sýndi okkur síðan
stofnunina, en að ]->ví loknu var haldið til
Bispebjerg Hospital. Er það tiltölulega nýr
spítali, gerður með svipuðu fyrirkomulagi
og Eppendorf-spítalinn og er talinn með
fullkomnustu spítölum Dana. Þar hittum við
í læknaliðinu tvo kunningja okkar og skóla-
bræður, þá Jón Steffensen og Svein Péturs-
son. Eftir nokkura dvöl á Bispebjerg er
ekið til „Nordisk lnsulin Laboratorium“ í
Gentofte. Er það stórmerk stofnun, sem
dr. med. 11. C. Hagedorn veitir forstöðu.
Stofnunin á sig sjálf og er forrík, enda má
segja að hún sjái heiminum fyrir hinu
þekkta sykursýkislyfi „Insulin", þar eð hún
er svo til ein um að framleiða það. Dr. Hage-
dorn lýsti í fyrirlestri og sýndi kvikmynd af
tilbúningi „insulinsins“. Vinnur hjá honum
við framleiðsluna margt manna, langmest
kvenfólk, ungar og fagrar stúlkur. Var dokt-
orinn svo hugulsamur viö þær — eða lík-
lega öllu heldur við okkur — að bjóða þeim
með öllum skaranum til miðdegisverðar á
„Skodsborg Söbad“. Fyrir miðdegisverðinn
tók þorri manna sér bað þar á baðstaðnum,
er. er menn höfðu matast, var dans stiginn
fram eftir nóttu. Var vel veitt og ríkmann-
lega, og kvaddi doktorinn að lokum gesti